Fréttir
CIA rannsakar upplýsingaleka um leynifangelsi Bandaríska leyniþjónustan hefur hafið rannsókn á því hvernig dagblaðið Washington Post komst yfir upplýsingar um meint leynifangelsi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Leyniþjónustan hefur farið þess á leit að dómsmálaráðuneytið kanni hver hafi lekið upplýsingunum í Washington Post. Erlent 9.11.2005 07:16
Aðgerðaáætlun vegna álvers í Helguvík staðfest Fulltrúar Reykjanesbæjar, Norðuráls og Fjárfestingastofunnar hafa staðfest sameiginlega aðgerðaáætlun um hugsanlega byggingu álvers í nágrenni Helguvíkur. Aðgerðaáætlunin tekur meðal annars til samstarfs þessara aðila um undirbúningsvinnu varðandi útfærslu á staðsetningu álversins, orkuöflun, umhverfisskilyrði og þá fjölmörgu skipulagslegu þætti sem lúta að verkefninu. Innlent 9.11.2005 07:13
Óeirðir áfram víða um Frakkland Útgöngubann og hert löggæsla skiluðu tilætluðum áhrifum í París í nótt. Mikið dró úr óeirðunum í borginni, en sömu sögu er ekki að segja úr öðrum borgum landsins. Í Lyon, Toulouse, Bordeux og Amiens héldu óróaseggir uppteknum hætti og þar logaði allt í óeirðum. Erlent 9.11.2005 07:09
400 milljóna rekstrafgangur Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir tæplega 400 milljóna króna rekstrarafgangi en áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri segir vöxt og grósku hafa sett mark á bæjarbraginn á Akureyri undanfarin ár og svo verði áfram. Innlent 9.11.2005 02:10
Nýr skóli í Reykjanesbæ Akurskóli, nýr grunnskóli í nýju Tjarnahverfi í Reykjanesbæ verður vígður formlega klukkan sex í dag. Fyrsti áfangi skólans var tekinn í notkun nú í haust. Allt að 1500 nýir íbúar eru í þann mund að flytja inn í hverfið. Innlent 8.11.2005 22:23
Ekki lengur fórnarlamb, heldur sigurvegari Ekkert gerist án ástæðu segir heimildamyndgerðakonan Angela Shelton sem stödd er hér á landi um þessar mundir til að kynna heimildamynd sína, Leitin af Angelu Shelton. Angela hafði upp á 40 nöfnum sínum í Bandaríkjunum og komst að því að 24 þeirra hefðu verið misnotaðar kynferðislega, þeim hafði verið nauðgað eða þær beittar ofbeldi. Innlent 9.11.2005 01:31
Lögbann tekið fyrir á morgun Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur athafnakonu á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum sem hún átti hlut að verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Innlent 9.11.2005 01:35
Frakkar setja útgöngubann Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi svo að setja mætti útgöngubann í óeirðabæjum. Villepin forsætisráðherra segir að uppræta verði misréttið sem innflytjendur megi stöðugt þola. Erlent 9.11.2005 02:23
Milljarður með viðhaldi Heilsuverndarstöðin í Reykjavík fór á sölu á almennum markaði um síðustu helgi. Samkvæmt heimildum blaðsins var framkvæmt verðmat á eigninni fyrr á árinu þar sem húsið var metið á yfir sjö hundruð milljónir króna. Innlent 9.11.2005 01:13
Ísland eyðir miklu í heilbrigðismál Útgjöld Íslands til heilbrigðismála eru sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru talsvert hærri hér á landi en að meðaltali í löndum OECD. Þetta kemur fram í skýrslu sem OECD kynnti í gær og miðar við árið 2003. Innlent 8.11.2005 22:22
Komið í veg fyrir stórt hryðjuverk Lögreglan í Ástralíu handtók snemma í gærmorgun sautján manns sem grunaðir eru um samsæri um að fremja mannskæða hryðjuverkaárás í landinu. Meðal hinna handteknu er herskár múslimaklerkur, Abu Bakr að nafni, sem er þekktur fyrir að hafa borið lof á Osama bin Laden. Innlent 9.11.2005 01:17
Kona dæmd fyrir nauðgun Kona var í gær dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir nauðgun í Björgvin. Nauðgunin átti sér stað í byrjun þessa árs en konan sem er 24 ára var þá í samkvæmi ásamt unnusta sínum og öðrum manni á fertugsaldri. Maðurinn bar að hann hefði sofnað en vaknað aftur við að konan var að hafa við hann munnmök meðan unnustinn tók myndir. Erlent 9.11.2005 01:30
Hreyfihamlaðir fá forgang Úthlutun á lóðum undir 200 íbúðir í Krikahverfi í Mosfellsbæ hófst í gær. Sá hátturinn verður hafður á, í fyrsta sinn á Íslandi svo vitað sé, að hreyfihömluðum og fjölskyldum þeirra er veittur forgangur að umsóknum um fjögur einbýlishús víðs vegar í hverfinu. Innlent 9.11.2005 02:29
Mismunað í velferð Dæmi eru þess að fjölskyldur aldraðra á hjúkrunarheimilinu Skjóli hafi ráðið sérstaka starfsmenn vegna ónógrar þjónustu. Heilbrigðisráðherra kveðst andvígur einu velferðarkerfi fyrir vel stæða og öðru fyrir hina sem minna hafa. Innlent 9.11.2005 01:22
Vont að nýta sér spilafíkn Samanlagðar tekjur Happdrættis Háskóla Íslands árin 2003 og 2004 að frádregnum vinningum og kostnaði námu um 960 milljónum króna. Tekjur Íslandsspils af söfnunarkössum námu á sama tímabili tæpum 1.730 milljónum króna að frádregnum vinningum og kostnaði. Heildarvelta þessara tveggja fyrirtækja árið 2004 var nálægt 3,2 milljörðum króna. Innlent 9.11.2005 01:43
Víetnami deyr úr fuglaflensu Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann er sá fyrsti sem deyr af völdum veikinnar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Erlent 9.11.2005 01:40
Weah talinn líklegri Síðari umferð forsetakosninganna í Líberíu fór fram í gær þar sem áttust við Harvard- menntaður hagfræðingur og heimsþekktur knattspyrnukappi. Ellen Johnson-Sirleaf og George Weah voru hlutskörpust í fyrri umferðinni sem fram fór 11. október síðastliðinn. Erlent 9.11.2005 02:19
Stórskert þjónusta við nýrnasjúka Átta af tólf hjúkrunarfræðingum hætta störfum um áramót því starfssamningi þeirra hefur verið sagt upp vegna breytinga á vaktakerfi. Hjúkrunarfræðingar segja breytinguna gerða í sparnaðarskyni. Innlent 9.11.2005 01:09
Borguðu fyrir eiginkonurnar Fjórir bæjarráðsfulltrúar Akraness fóru með forsvarsmönnum HB Granda til Leeds í Englandi. Þeir hittu Alex Ferguson sem fékk heimboð upp á Skaga. Innlent 9.11.2005 02:15
Sá sjóræningjann glotta við tönn Áhöfn og farþegar skemmtiferðaskipsins Seabourn Spirit komust í hann krappan úti fyrir ströndum Sómalíu um helgina þegar sjóræningjar gerðu tilraun til að ræna skipinu. "Þetta var óhugnanleg upplifun, ég get fullvissað þig um það," sagði Charles Supple, stríðshetja úr síðari heimsstyrjöldinni og einn af 160 farþegum Seabourn Spirit, í samtali við AP-fréttastofuna á mánudag, en þá lagði skipið að bryggju á Seychelleseyjum í Indlandshafi. Erlent 9.11.2005 02:34
Áætlun um byggingu álvers í Helguvík Fulltrúar Reykjanesbæjar, Norðuráls og Fjárfestingastofunnar hafa staðfest sameiginlega aðgerðaáætlun um hugsanlega byggingu álvers í nágrenni Helguvíkur. Innlent 8.11.2005 22:47
Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Sport 8.11.2005 22:00
Bikarmeistararnir úr leik Bikarmeistarar ÍR eru úr leik í SS-bikarnum í handbolta, en íR-ingar töpuðu fyrir Fylki í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld 31-28. HK vann Aftureldingu 28-23, Aðallið FH sigraði FH Elítuna 31-28 og Fram valtaði yfir FH B 48-14. Sport 8.11.2005 21:56
Fjórir af hverjum tíu halda framhjá Fjórir af hverjum tíu Íslendingum hafa stundað framhjáhald. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri Durex kynlífskönnun. Könnunin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum en yfir þrjúhundruð og sautján þúsund manns frá fjörtíu og einu landi tóku þátt í könnunnni. Innlent 8.11.2005 20:22
Kostnaðarsamar kosningar Kostnaður vegna sameiningakosninga í ár nemur nærri hundrað og þrjátíu milljónum króna. Þrátt fyrir fjárútlátin var árangurinn magur: í aðeins einu tilfelli var sameiningin samþykkt. Innlent 8.11.2005 20:03
Gengur af bekkjakerfinu dauðu Forseti Alþingis tók við undirskriftum á annað hundrað reiðra framhaldskólakennara á Austurvelli í dag. Stytting á námi til stúdentsprófs gengur af bekkjarkerfinu dauðu segja kennarar. Innlent 8.11.2005 20:00
Undirbúningur hryðjuverkaárásar var á lokastigi Ástralska lögreglan handtók sautján grunaða hryðjuverkamenn í morgun og segist með því hafa komið í veg fyrir meiri háttar hryðjuverkaárás í landinu. Undirbúningur árásarinnar á að hafa verið á lokastigi. Erlent 8.11.2005 19:47
Snarráður flutningabílstjóri Lögreglan í Kaliforníu hafði elt bílstjóra í klukkustund á I-5 hraðbrautinni og reynt allt til að fá hann til að stoppa, þegar skjótráður flutningabílstjóri ákvað að taka málið í sínar hendur. Erlent 8.11.2005 19:47
Athugasemdir við framkvæmd kosninga Það fór eins og búast mátti við í þingkosningunum í Aserbædjan um helgina. Flokkur forsetans Ilham Alievs fagnaði sigri, en alþjóðleg eftirlitsnefnd taldi margt athugavert við framkvæmd kosninganna. Erlent 8.11.2005 19:46
Fimm stjörnu hótel í Kabúl Fjórum árum eftir að talibanastjórnin var hrakin frá völdum í Afganistan opnaði fyrsta fimm stjörnu hótelið í Kabúl. Sjálfur forsetinn, Hamid Karzai, var mættur til að fagna þessum áfanga, en viðurkenndi að það væru ýmis vandamál óleyst enn. Erlent 8.11.2005 19:45