Fréttir
Myndbandsupptaka af frönskum gísl í Írak Mannræningjar í Írak birtu í gær myndbandsupptöku af frönskum verkfræðingi sem er í haldi þeirra. Á myndbandinu beina þeir byssum að höfði mannsins og hóta að drepa hann, ef allir Frakkar sem starfa í Írak verði ekki kallaðir heim hið fyrsta. Erlent 29.12.2005 09:46
Opið í Hlíðarfjalli í dag Það verður opið í Hlíðarfjalli í dag frá kl. 12-20. Flestar lyftur verða í gangi og skíðafærið er troðinn þurr snjór og framleiddur snjór. Snjóvélarnar hafa verið í gangi síðan snemma í morgunn þegar vind lægði. Innlent 29.12.2005 09:34
Býður sig fram í fjórða sætið Andrés Jónsson, formaður Ungra jafnaðarmanna, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Prófkjörið fer fram 12. og 13. janúar næstkomandi. Innlent 29.12.2005 09:27
Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og ýmist eru hálkublettir eða snjóþekja á vegum um mest allt Suðurland. Á Vesturlandi og á Vestfjörðum er víðast hálka og hálkublettir. Innlent 29.12.2005 09:18
116 flóttamenn á barnsaldri hafa horfið í Svíþjóð í ár Sífellt fleiri börn sem sem koma á eigin vegum sem flóttamenn til Svíþjóðar, hverfa frá sænskum flóttamannathvörfum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem byggir á tölulegum upplýsingum frá flóttamannaráði þar í landi. Samkvæmt rannsókninni, sem gerð er af tímaritinu Tomb í stamstarfi við dagblaðið Metro, hafa 350 börn sem eru á eigin vegum, sótt um hæli sem flóttamaður í Svíþjóð í ár. Erlent 29.12.2005 07:56
Sjö létust í eldsvoða Sjö létust og tólf eru slasaðir eftir að eldur braust út á geðsjúkrahúsi nærri Moskvu, höfuðborg Rússlands, í nótt. Á sjötta tug manna var á sjúkrahúsinu þegar eldurinn kviknaði. Ekki er vitað um eldsupptök. Erlent 29.12.2005 07:17
Fjórir látnir eftir skógarelda Að minnsta kosti fjórir hafa látist í skógareldum í Texas í Bandaríkjunum undanfarna daga, auk þess sem óvíst er um afdrif þriggja. Meira en hundrað hús, meirihlutinn íbúðarhús, hafa brunnið í eldunum sem náð hafa yfir 13 þúsund ekra svæði. Erlent 29.12.2005 07:13
Hálka kom ökumönnum í opna skjöldu Skyndileg hálkumyndun kom ökumönnum á Hafnarfjarðarvegi á óvart í gærkvöldi. Þrír árekstrar voru tilkynntir til lögreglu frá rúmlega níu í gærkvöldi til um klukkan ellefu. Engin meiðsl voru þó á fólki en eitthvert eignatjón. Innlent 29.12.2005 06:17
Einn lést í sprengjuárás Sprengja sprakk við farartæki ísraelska hersins við varðstöð á Vesturbakkanum fyrir fáeinum mínútum. Einn hið minnsta lést og annar særðist í árásinni en frásagnir af henni eru misvísandi. Erlent 29.12.2005 07:53
Sprengdu rúður í íþróttahúsi Flugeldavertíðin er hafin og sprengjugerð sem vill stundum fylgja henni. Tvær rúður brotnuðu í Íþróttahúsinu á Akureyri í gærkvöldi eftir að ungmenni höfðu komið heimatilbúnum sprengjum þar fyrir en að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Innlent 29.12.2005 06:24
Gunnar vill áfram vera í forystu í Kópavogi Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hyggst sækjast eftir því að leiða áfram sjálfstæðismenn í Kópavogi í bæjarstjórnarkosningunum í vor, en prófkjör vegna kosninganna verður haldið 21. janúar. Fjórir af fimm bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins hyggjast áfram gefa kost á sér. Innlent 28.12.2005 23:15
Ungur Svíi sem saknað hefur verið í tvö ár fannst í vikunni 25 ára gamall Svíi sem saknað hefur verið í tvö ár, fannst í vikunni við umferðareftirlit í bænum Karlshavn í Svíþjóð. Mannsins hefur verið saknað í tvö ár en hann hvarf eftir að hafði farið einn út á litlum bát í skerjagarðinum fyrir utan Kragö í september árið 2003. Viðamikil leit var gerð af manninum og bátnum talið var að maðurinn hefði drukknað. Erlent 29.12.2005 07:32
Logarnir stóðu út um glugga Einn var fluttur á slysadeild með reykeitrun eftir að eldur kom upp í kjallaraíbúð við Bergþórugötu í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn stóðu logar út um glugga íbúðarinnar en íbúi hafði þá komið sér út á götu. Innlent 29.12.2005 06:12
Víðast hálka fyrir vestan Hálka eða hálkublettir eru víðast hvar á Vesturlandi og Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þæfingsfærð er í nágrenni Patreksfjarðar en þar er unnið að því að hreinsa vegi. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar verða mokaðar fyrir hádegi. Innlent 29.12.2005 07:18
Tekinn með mikið magn marijúana Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn eftir að 120 grömm af marijúana fundust við leit lögreglunnar í Reykjanesbæ í bifreið hans á ellefta tímanum í gærkvöldi. Innlent 29.12.2005 06:44
Flestar konur með erlent ríkisfang á Vestfjörðum Hlutfall kvenna af erlendum uppruna er hvergi hærra en á Vestfjörðum en þar eru 6,6 prósent kvenna með erlent ríkisfang. Þetta kemur fram í frétt Bæjarins besta á Ísafirði. Þá er hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Vestfjörðum það næst hæsta á landinu eða 6,2 prósent en hæst er hlutfallið á Austurlandi þar sem 24,6% íbúa er með erlent ríkisfang. Innlent 29.12.2005 06:27
Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 64% á árinu Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um rúm 64% á árinu og hækkaði í gær um 0,33%. Hlutabréf í þremur fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa meira en tvöfaldað sig á árinu. Innlent 28.12.2005 23:12
Tveir árekstrar á Hafnarfjarðarvegi Tveir árekstrar hafa orðið á Hafnarfjarðarvegi í kvöld. Hvorugur þeirra hefur þó verið harður og engin meiðsl á fólki. Þá lentu tveir bílar í árekstri á Ísafirði en þar var ekkert um meiðsli. Innlent 28.12.2005 22:12
Fá minna rafmagn en fyrir tveim mánuðum Íbúar Bagdad fá aðeins rafmagn í sex klukkustundir á dag, það er nær helmingi minna en í október þegar borgarbúar gátu treyst á að hafa rafmagn ellefu klukkustundir dag hvern. Fólk á erfitt með hvort tveggja vinnu og heimilislíf því rafmagnið fer oft af stórum borgarhlutum. Erlent 28.12.2005 17:15
Niðurstaðan kemur ekki á óvart Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir niðurstöðu Kjaradóms ekki koma sér á óvart. Það hefði verið hæpið fyrir dóminn að fara inn í málið með nýjan efnislegan úrskurð eftir beiðni forsætisráðherra um að hann færi aftur yfir málið. Innlent 28.12.2005 22:02
Augnslys og brunasár algengustu flugeldaslysin Um hver áramót verður að jafnaði um tugur slysa þar sem óvarlega er farið með flugelda. Slysin eru misalvarleg en slys á augum og brunasár eru algengust. Innlent 28.12.2005 22:00
Innflytjendum fjölgar í Ísrael Fleiri innflytjendur fluttu til Ísraels í ár en í fyrra og er það í fyrsta sinn á þeim fimm árum sem liðin eru síðan uppreisn Palestínumanna hófst að innflytjendum fjölgar milli ára. 23 þúsund gyðingar fluttu til Ísraels í ár, tvö þúsund fleiri en í fyrra. Erlent 28.12.2005 18:08
Til í að endurskoða forsendurnar Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir flokk sinn reiðubúinn að taka þátt í nefndarstörfum þar sem farið er yfir lög um kjaradóm. Innlent 28.12.2005 21:04
Ósáttur við niðurstöðu kjaradóms Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, er ósáttur við niðurstöðu kjaradóms. Hann telur niðurstöðuna óábyrga. Halldór ætlar að skipa nefnd sem fulltrúar allra stjórnmálaflokka eiga fulltrúa í og mun sú nefnd fara yfir málið. Innlent 28.12.2005 20:53
Langeðlilegast að Alþingi taki nú á málinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að niðurstaða Kjaradóms komi sér ekki á óvart. Kjaradómi sé mikill vandi á höndum eftir skilaboðin sem hann fékk frá forsætisráðherra. Ingibjörg telur langeðlilegast að Alþingi taki á málinu. Skoða verði þær forsendur sem kjaradómi er uppálagt að fara eftir. Innlent 28.12.2005 20:45
Flökkusagan um kettlinga í þvottavélum sönn Flökkusagan um kettlinga sem lenda í þvottavélum með skelfilegum afleiðingum er ekki bara sönn, heldur gerist þetta bara nokkuð oft. Dýralæknir segir nauðsynlegt að kattaeigendur hugi vel að því að Keli litli eða Snúlla séu víðsfjarri þegar þvottavélin er sett í gang. Innlent 28.12.2005 20:34
Setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda "Þetta kemur mér talsvert í opna skjöldu," segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, um þá niðurstöðu Kjaradóms að úrskurður hans um laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna frá 19. desember skuli standa óbreyttur. "Þetta setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda." Innlent 28.12.2005 20:39
Mikil ofankoma í Frakklandi Hótel og gistiskýli í Norður-Frakklandi fylltust í gærkvöldi, þegar mörg hundruð manns komust hvorki lönd né strönd vegna mikillar ofankomu og slæmrar færðar. Þá voru íbúar í austurhluta Englands hvattir til að leggja bílum sínum í dag - og víðar í Evrópu er færð á vegum með versta móti Erlent 28.12.2005 20:00
Úrskurður Kjaradóms stendur Úrskurður Kjaradóms um launahækkanir þingmanna, ráðherra og embættismanna frá 19. desember stendur óbreyttur. Þetta er niðurstaðan af fundi Kjaradóms síðla dags en Kjaradómur var kallaður saman að beiðni forsætisráðherra sem vildi að dómurinn færi aftur yfir forsendur úrskurðar síns. Innlent 28.12.2005 19:58
Risaborar að Kárahnjúkum allir farnir að snúast Risaborarnir þrír í Kárahnjúkavirkjun eru nú allir farnir snúast og boruðu þeir samtals sjötíu metra í gær. Haldi þeir þessum afköstum mun takast að klára þá fimmtán kílómetra sem eftir eru á tilsettum tíma fyrir næsta haust. Innlent 28.12.2005 18:50