Fréttir
Búist við átökum hjá ÖBÍ Búist er við átökum á fundi aðalstjórnar Öryrkjabandalagsins nú síðdegis vegna starfsloka framkvæmdastjórans. Arnþór Helgason hefur ráðið sér lögfræðinginn Gunnar Guðmundsson til að aðstoða sig við eftirmál vegna starfsloka sinna hjá Öryrkjabandalaginu. Innlent 12.1.2006 12:53
Íslensk skúta á Skipper's d'Islande Áhöfnin á seglskútunni Besta hefur skráð sig í alþjóðlegu siglingakeppnina Skippers d'Islande. Áhöfnin vann Íslandsbikarinn síðast liðið sumar, vann Reykjavíkurmeistaramótið og varð Íslandsmeistari í siglingum. Innlent 12.1.2006 11:21
Krefjast afsagnar menntamálaráðherrans Íhaldsmenn á breska þinginu og fjölmargir foreldrar í Bretlandi krefjast nú afsagnar menntamálaráðherra landsins, Ruth Kelly, eftir að í ljós kom að dæmdur kynferðisbrotamaður fékk vinnu sem kennari í skóla þar í landi. Erlent 12.1.2006 09:57
Vísitala neysluverðs hækkar Vísitala neysluverðs hækkar um 0,32 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Hækkun á húsnæðisverði og ýmsum liðum, tengdum húsnæði, eins og meðalvöxtum og lóðaleigu, vegur hvað þyngst í hækkuninni auk hækkunar á bensínverði. Vetrarútsölur og lækkun leikskólagjalda ná að slá aðeins á hækkunina. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um hálft prósent, sem jafngildir rétt liðlega tveggja prósenta verðbólgu á ári. Innlent 12.1.2006 10:22
Víða ófært Klukkan tíu var víða ófært eða illfært á vegum landsins. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að ófært sé fyrir fólksbíla um Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og um Klettaháls. Þá er þungfært um Breiðdalsheiði, Ennishálsi og og ófært um Eyrarfjall. . Innlent 12.1.2006 10:12
24 lík finnast á Haítí Tuttugu og fjögur lík fundust í vegkanti í Dóminíska lýðveldinu í gær. Lögreglan í landinu segir að þau séu af ólöglegum innflytjendum frá nágrannaríkinu Haítí en þau fundust skammt frá þar sem lögreglan stöðvaði vöruflutningabíl sem var með sextíu ólöglega innflytjendur innanborðs. Erlent 12.1.2006 09:37
40 grömm af hassi fundust í bíl og íbúð manns Lögreglan í Kópavogi handtók mann í nótt eftir að talsvert af fíkniefnum fundust í bíl hans og er hann grunaður um að hafa ætlað að selja efnin. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá honum og fundust samtals rösklega 40 grömm af hassi. Innlent 12.1.2006 09:34
Hvetja Öryggisráð S.þ. til aðgerða gegn Íran Ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hvetja Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til aðgerða gegn Íran vegna kjarnorkurannsókna þeirra. Á miðvikudag sagði forseti Írans að staðið yrði við kjarnorkuáætlanir landsins þrátt fyrir áhyggjur alþjóðasamfélagsins. Erlent 12.1.2006 09:31
111% verðmunur á rauðsprettu Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði síðastliðinn þriðjudag. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. Innlent 12.1.2006 09:26
Enginn fíkniefnaneytandi greindist með HIV-smit Enginn fíkniefnaneytandi var í hópi þeirra átta sem greindust með HIV-smit á Íslandi á síðasta ári. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis. Innlent 12.1.2006 09:24
4 mánuðir skilorðsbundnir fyrir vörslu barnakláms Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tæplega 800 ljósmyndir af barnaklámi og 60 hreyfimyndir með samskonar efni í fórum sínum, og að veita öðrum aðgang að því. Innlent 12.1.2006 09:19
Íslendingar láta ekki fuglaflensu trufla fyrirhugaðar sólarlandaferðir Á sama tíma og fréttir berast af fuglaflensutilfellum í mönnum í Tyrklandi er ekkert lát á bókunum hér á Íslandi á sólarlandaferðum til Tyrklands í sumar. Innlent 12.1.2006 00:45
Fyrirtæki í eigu Baugs byggir 200 orlofshús í Tyrklandi Danska fasteignafyrirtækið Keops, sem Baugur eignaðist þriðjungs hlut í nýverið, er að ráðast í byggingu tvö hundruð orlofshúsa í Istanbúl í Tyrklandi. Það ætlar auk þess að reisa þar nýjar höfuðstöðvar félagsins. Innlent 12.1.2006 08:39
Fuglaflensan hefur fundist í 30 héruðum Fuglaflensa hefur nú fundist í 30 héruðum í Tyrklandi. Evrópusambandið segir veikina nú mikla ógn við landið sem og löndin í kring. Erlent 12.1.2006 08:34
Orkuveitan gerir samning við sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og Fast TV Orkuveita Reykjavíkur hefur gert samning við evrópska sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og íslenska kvikmyndaleyfishafann SAM um að sjónvarpsstöðvar Fast TV verði aðgengilegar heimilum sem tengd eru ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar. Innlent 12.1.2006 08:07
Réðst með hnífi á fólk í bænahúsi Átta manns særðust, þar af fjórir alvarlega, þegar maður réðst að fólki með hnífi þegar skammt var liðið á kvöldbænir í bænahúsi gyðinga í miðborg Moskvu í gær. Utanríkisráðuneyti Rússlands fordæmdi árásina, sagði hana ögrun og eina tilgang hennar að efna til kynþáttahaturs. Innlent 12.1.2006 07:44
Færeyska lögreglan rannsakar meint landhelgisbrot í íslenskri lögsögu Lögreglan í Þórshöfn í Færeyjum rannsakar nú meint landhelgisbrot togara frá Færeyjum í íslenskri efnahagslögsögu fyrir tæpri viku. Þá flaug flugvél Landhelgisgæslunnar yfir togarann að veiðum Íslandsmegin við miðlínuna á milli Færeyja og Íslands og reyndi án árangurs að ná sambandi við skipstjórann. Innlent 12.1.2006 07:35
Sharon sýnir ótrúlega hröð batamerki Læknar Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segja hann sýna ótrúlega hröð batamerki. Hann er talinn úr lífshættu en er enn á gjörgæsludeild. Erlent 12.1.2006 07:16
Björgúlfur vildi hætta útgáfu DV skömmu fyrir jól Mikil umræða hefur spunnist um fréttaflutning DV síðasta sólarhring eftir að maður á Ísafirði svipti sig lífi, í kjölfar myndbirtingar og ásakana á hendur honum í blaðinu. Hörð gagnrýni á DV er þó ekki ný af nálinni, þótt sviptingarnar hafi ekki alltaf komist upp á yfirborðið. Blaðið er hluti fjölmiðlasamsteypunnar 365, eins og Fréttablaðið, Stöð 2 og NFS. Allt er þetta í eigu móðurfélagsins Dagsbrúnar, þar sem Baugur ræður mestu, en Landsbankinn á líka lítinn hlut í Dagsbrún. Innlent 11.1.2006 23:03
Mikið annríki hjá Hafnafjarðarlögreglu Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglu. Flest þeirra má rekja til óvarkárni en mjög hált hefur verið þar í allan dag. Engin meiðsl hafa verið á fólki en lögreglan vill minna fólk á að fara varlega. Innlent 11.1.2006 23:01
Pílagrímar grýta steinvegginar í Mína Pílagrímatími múslíma stendur sem hæst og í dag grýttu tugþúsundir trúaðra steinveggina í Mína, skammt utan við Mekka í Sádi-Arabíu. Ríflega tvær og hálf milljón múslíma hafa lagt leið sína til hinnar helgu borgar núna um hadsj-tímann. Al-Jamarat-veggirnir eru tákn djöfulsins og trúa pílagrímarnir því að þeir fái syndaaflausn með grjótkastinu. Margir rökuðu af sér hárið að því loknu til marks um að þeir hefðu farið í pílagrímsför, en í slíka ferð verður hver múslími að fara að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Innlent 11.1.2006 20:46
Vinsældir Kadima-flokksins aukast Vinsældir Kadima-flokksins hafa aukist eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk heilablóðfall. Skoðanakönnun dagblaðsins Haaretz sýnir að Kadima, undir stjórn Ehuds Olmerts, fengi fjörutíu og fjögur sæti á ísraelska þinginu Knesset væri kosið nú. Bæði Likud-bandalagið og Verkamannaflokkurinn eru rétt hálfdrættingar á við Kadima. Enn er verið að vekja Sharon úr dáinu, en læknar segja hann úr lífshættu. Innlent 11.1.2006 20:32
Bókun stjórnar Lögmannafélags Íslands Stjórn Lögmannafélags Íslands hefur sent frá sér bókun frá fundi stjórnarinnar í dag vegna fréttaflutnings um aðgengi Fjármálaeftirlitsins að bankareikningum lögmanna. Hún er svohljóðandi: Innlent 11.1.2006 20:11
Fuglaflensa að verða landlæg í Tyrklandi? Fuglaflensa getur orðið landlæg í Tyrklandi og breiðst út til nágrannaríkjanna að mati Sameinuðu þjóðanna. Rússneski þjóðernissinninn Vladímír Sírínovskí vill að herinn skjóti farfugla frá Tyrklandi. Innlent 11.1.2006 20:04
Undirskriftalistar til að mótmæla ritstjórn DV Mál málanna í dag hefur verið umfjöllun DV um grunaðan kynferðisbrotamann, sem svipti sig lífi eftir að blaðið hafði samband við hann. Lögreglan á Ísafirði hefur ekki ákveðið hvort rannsókn á meintu kynferðislegu ofbeldi hans gegn tveimur unglingspiltum verði haldið áfram, þótt hann sé látinn. Lögmenn segja rannsókninni þó sjálfhætt samkvæmt íslenskum réttarreglum. Innlent 11.1.2006 20:00
Efnafræðingur sem fann upp LSD 100 ára Albert Hofmann er 100 ára í dag. Hofmann sem er þekktastur fyrir að hafa fundið upp ofskynjunarlyfið LSD seint á fjórða áratugnum, hélt upp á afmælið sitt í dag og sagði við það tækifæri að veislan hefði verið yndisleg og hefði víkkað sjóndeildarhring sinn þrátt fyrir að hann væri ekki á LSD. Innlent 11.1.2006 18:02
Hluthafalisti Íslandsbanka eftir viðskipti undanfarinna daga Íslandsbanki hefur birt áætlaðan hluthafalista eftir undangengin viðskipti og hlutfjárhækkun síðustu daga. Frágangi útboðs lýkur í næstu viku og þá verður nýr hluthafalisti gefinn út. Þess ber að geta að hlutur Þáttar/Milestone er skv. tilkynningu á Kauphöll um viðskipti innherja og telur því með framvirka samninga. Hlutur Íslandsbanka er að frádregnum framvirkum samningum. Innlent 11.1.2006 17:46
Fyrsta kvenkyns árekstrardúkkan Svíar eru hanna dúkku sem líkist kvenmanni til að nota í árekstrarprófum. Fram að þessu hafa allar dúkkur sem notaður hafa verið í slíkum prófum verið í karlmannsmynd eða barnsmynd og því hafa niðurstöður slíkra prófa ekki getað sagt til um hvaða áhrif árekstrar hafa á kvenlíkama. Innlent 11.1.2006 17:36
Landspítalinn skaðabótaskyldur gagnvart konu Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Landspítalinn væri skaðabótaskyldur gagnvart fimmtugri konu vegna læknismeðferðar hjá spítalanum. Innlent 11.1.2006 17:28
KLH rannsóknastofa öðlast faggildingu Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára, eða KLH hefur tekið við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar. KLH er fyrsta íslenska rannsóknastofa á heilbrigðissviði sem öðlast faggildingu. Innlent 11.1.2006 17:04