Fréttir
Misskilningur hjá umboðsmanni Alþingis Forstjóri Náttúrufræðistofnunar segir álit umboðsmanns Alþingis um úthlutun úr svokölluðum veiðikortastjóði byggt á misskilningi. Hann segir engan sjóð til heldur sé um að ræða greiðslur fyrir veiðikort. Innlent 12.1.2006 20:05
Danir dæmdir fyrir mannréttindabrot Danskur herforingi og fjórir danskir hermenn voru í dag fundnir sekir um að hafa brotið mannréttindi við yfirheyrslur á föngum í Írak í fyrra. Refsingu yfir þeim var hins vegar frestað, þar sem þeir höfðu ekki fengið nægilega skýr fyrirmæli um hvað væri leyfilegt við yfirheyrslur. Erlent 12.1.2006 19:43
Tilræðismaður við páfa fær frelsi Tyrkinn sem reyndi að myrða Jóhannes Pál páfa annan fyrir aldarfjórðungi var í dag látinn laus úr fangelsi. Tyrkneskir þjóðernissinnar fögnuðu Mehmet Ali Agca eins og þjóðhetju þegar hann kom út úr fangelsinu. Erlent 12.1.2006 19:32
Kvarta undan hærra raforkuverði Iðnfyrirtæki kvarta sáran undan auknum raforkukostnaði og segja hann fæla framleiðslu úr landi. Iðnaðarráðherra vill þó meina að samkeppni á raforkumarkaði sé farin að skila sér í lægra raforkuverði. Innlent 12.1.2006 19:29
Annað áfallið á hajj trúarhátíðnni Síðasti dagur trúarhátíðar múslíma í borginni Mekka breyttist í blóðbað í dag. Talið er að yfir 300 manns hafi látist í miklum troðningi við brú þar sem fjölmargir höfðu safnast saman til að grýta veggi sem eiga að tákna djöfulinn. Erlent 12.1.2006 19:26
Útbreidd reiði vegna skrifa DV Eigendur Bónusverslananna fjarlægðu auglýsingar um DV úr verslunum í dag vegna umræðu um sjálfsvíg manns sem var til umfjöllunar á forsíðu og í fréttum blaðsins. Þá hvetja Samtök auglýsenda alla auglýsendur til að sniðganga blaðið og þingmaður Sjálfstæðisflokksins undirbýr frumvarp um bætta réttarstöðu þolenda í meiðyrðamálum og aukna vernd fyrir friðhelgi einkalífsins. Innlent 12.1.2006 19:24
Reyndu tvisvar að kaupa DV Björgólfsfeðgar hafa í tvígang falast eftir því að kaupa DV, út úr fjölmiðlasamsteypu 365, í því skyni að leggja blaðið niður. Feðgunum líkaði ekki umfjöllun blaðsins um þeirra nánustu. Innlent 12.1.2006 18:18
Lokar í fyrsta sinn yfir 6.000 stigum Úrvalsvísitalan stóð í 6.009 stigum þegar Kauphöllin lokaði í dag og er það í fyrsta skipti í sögunni sem hún lokar í yfir 6.000 stigum. Hækkun á verði hlutabréfa í úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands fyrstu tólf daga ársins er svo mikil að ef hún héldist yfir allt árið myndi verðmæti hlutabréfa hækka um 1.100 prósent til ársloka. Innlent 12.1.2006 17:58
Keyrt á mann Maður slasaðist á höfði og fótbrotnaði þegar ekið var á hann á Rauðarárstíg laust fyrir hádegi. Maðurinn, starfsmaður Orkuveitunnar, var að loka götunni vegna framkvæmda þegar keyrt var á hann. Hann var fluttur á sjúkrahús. Þá hafa sautján árekstrar verið tilkynntir til lögreglu í dag. Innlent 12.1.2006 17:47
Nýr formaður almannavarnaráðs Björn Bjarnason hefur skipað Þorstein Geirsson formann almannavarnaráðs. Þorsteinn, sem er ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, er formaður ráðsins frá síðustu áramótum að telja og varaformaður hans verður Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Innlent 12.1.2006 17:40
Afhenti embættisbréf í Liechtenstein Stefán Haukur Jóhannesson afhenti Alois, erfðaprinsi af Liechtenstein, í dag embættisbréf sitt sem sendiherra Íslands í landinu með aðsetur í Brussel. Innlent 12.1.2006 17:35
Fimmtán vilja smíða varðskip Fimmtán skiluðu inn umsóknum um þátttöku í lokuðu útboði á smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæsluna og eru það í öllum tilvikum erlend skipasmíðafélög. Flest eru félögin frá Evrópu en þau fjarlægustu eru í Síle og Kína. Innlent 12.1.2006 17:18
Vilja draga Íran fyrir öryggisráðið Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjalli um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir komu saman til fundar í Þýskalandi í dag og fóru yfir stöðu mála. Erlent 12.1.2006 17:03
Bachelet sigurstrangleg Vinstrisinninn Michelle Bachelet, sem stefnir að því að verða fyrsti kvenkyns forseti Síle, hefur fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Sebasitan Pinera þremur dögum fyrir kosningar samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Erlent 12.1.2006 16:53
Nær 26.000 hafa undirritað áskorun á DV Tæplega 26 þúsund manns höfðu klukkan fjögur í dag ritað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem skorað er á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu blaðsins og eigendur blaðsins minntir á þeirra ábyrgð á útgáfunni. Innlent 12.1.2006 16:33
Ekki heil brú í fullyrðingum Jónasar Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir ekki heila brú í fullyrðingum Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV, um að sannleikur og tillitssemi sé andstæðir pólar í siðareglum blaðamanna. Innlent 12.1.2006 16:15
Ráðherrar Likud segja sig úr stjórn Þrír ráðherrar úr Likudbandalaginu sögðu sig í dag úr ísraelsku ríkisstjórninni. Búist er við að fjórði og síðasti ráðherra flokksins segi af sér embætti á ríkisstjórnarfundi næsta sunnudag. Erlent 12.1.2006 16:23
345 tróðust undir Heilbrigðisráðherra Sádi-Arabíu staðfesti rétt í þessu að 345 hefðu látist í troðningnum í Mena þar sem hundruð þúsunda manna biðu þess að taka þátt í trúarathöfn þar sem ímynd djöfulsins er grýtt. Erlent 12.1.2006 16:11
Ákveðið með matsmenn á tölvugögnum í Baugsmálinu Fallið var frá mótmælum af hálfu verjenda í Baugsmálinu þegar ákveðið var í Hérasdómi Reykjavíkur í dag hverjir yrðu matsmenn á tölvugögnum í málinu. Innlent 12.1.2006 16:03
Auglýsendur sniðgangi DV Stjórn Samtaka auglýsenda hvetur auglýsendur til að sniðganga DV þar til stjórnendur þess hafa fært siðareglur blaðsins til samræmis við siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Þetta gerir stjórnin þar sem hún telur það skaðlegt fyrir ímynd auglýsenda að auglýsa í blaðinu. Innlent 12.1.2006 15:58
Ófært um Eyrarfjall Ófært er um Eyrarfjall samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og víða gerir hálka og skafrenningur ökumönnum erfitt fyrir. Innlent 12.1.2006 15:50
Stefán Jón og Dagur vinsælastir Stefán Jón Hafstein og Dagur B. Eggertsson njóta mest trausts af þeim sem hafa gefið kost á sér í 1. sæti á lista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningar samkvæmt nýrri könnun Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is. Hvor um sig nýtur stuðnings um 40 prósenta aðspurðra en Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri nýtur stuðnings fjórðungs aðspurðra. Innlent 12.1.2006 15:36
Auglýsingaskilti með forsíðu DV tekin niður Auglýsingaskilti sem hingað til hafa borið forsíðu DV hafa verið tekin niður í verslunum Bónus. Ákvörðun um þetta var tekin eftir myndbirtingu DV á meintum kynferðisbrotamanni og umræðum vegna málsins. Innlent 12.1.2006 15:28
Grænlenskir ísbirnir eitraðastir Meiri eiturefni safnast upp í ísbjörnum á Austur-Grænlandi en á nokkrum öðrum stað í heiminum samkvæmt rannsóknum sem Danmarks Miljøundersøgelser tóku þátt í fyrir skemmstu. Áður höfðu rannsóknir sýnt að mest var af eiturefnum í ísbjörnum á heimskautssvæðinu norðan Svalbarða. Erlent 12.1.2006 15:11
Sprengdi sig í loft upp Palestínskur maður sprengdi sig í loft upp nærri ísraelskum hermönnum í borginni Jenín á Vesturbakkanum. Hermennirnir höfðu gengið hús úr húsi í leit að palestínskum vígamönnum sem þeir hugðust handtaka þegar maðurinn réðist að þeim. Maðurinn lést en hermennirnir sluppu ómeiddir. Erlent 12.1.2006 15:02
Á fjórða hundrað létust í troðningi Talið er að yfir 300 manns hafi látið lífið í miklum troðningi við Jamaratbrú í Mena í Sádi-Arabíu þar sem fjöldi fólks tók þátt í trúarathöfn á síðasta degi Haj, árlegrar trúarhátíðar múslima. Erlent 12.1.2006 14:50
Of lágt boðið í hlut borgarinnar. Borgarfulltrúar allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur eru ósáttir við það verð sem ríkisvaldið er reiðubúið að greiða fyrir hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Stjórnvöld eru reiðubúin að greiða 56 milljarða króna en það eru fulltrúar R-lista, Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda flokksins sammála um að sé of lágt. Innlent 12.1.2006 14:45
"Við viljum göng!" Baráttufundur um bættar samgöngur á norðanverðum Vestfjörðum verður haldinn í Víkurbæ, Bolungarvík á laugardaginn næstkomandi klukkan tvö. Undirskriftarlistar verða látnir ganga manna á milli og er yfirskrift þeirra "Við viljum göng!" Innlent 12.1.2006 13:22
Spölur kemur líklega að framkvæmdum við Sundabraut Líklegt má telja að Spölur komi að framkvæmdum við Sundabraut. Þó hefur ekki verið rætt hvort það snúi einnig að fjármögnun verkefnisins. Innlent 12.1.2006 12:58
Loðnan komin í leitirnar? Svanur RE-45 kom til hafnar í Vopnafirði í morgun með 250 tonn af loðnu til frystingar. Þetta er fyrsta loðnan sem berst á land í þessari vertíð og var hún átulaus og sæmilega stór. Innlent 12.1.2006 13:12