Fréttir
Spánverjar í úrslitaleikinn - lögðu Dani Það verða Spánverjar sem leika til úrslita á EM í handbolta gegn Frökkum en heimsmeistararnir lögðu Dani í undanúrslitum nú síðdegis, 34-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Dani sem leika því um 3. sætið á mótinu gegn Króötum. Sport 4.2.2006 17:33
Útisigur hjá Arsenal Newcastle lagði Portsmouth 2-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að knattspyrnustjórinn Graeme Souness var rekinn í vikunni. Arsenal lagði Birmingham á útivelli, 0-2 þar sem Thierry Henry skoraði 200. mark sitt fyrir félagið. Sport 4.2.2006 17:29
Heiðar í byrjunarliðinu gegn Man Utd Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn er nýhafinn. Louis Saha er í byrjunarliði Man Utd og því að leika gegn sínum gömlu félögum frá London. Sport 4.2.2006 17:21
Nígería í undanúrslit Nígeríumenn voru rétt í þessu að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu með því að sigra ríkjandi Afríkumeistara Túnis í vítaspyrnukeppni. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og ekkert var skorað í framlengingu. Sport 4.2.2006 16:13
Lítt þekktur kylfingur fer á kostum Þrítugur Bandaríkjamaður, JJ Henry, sem aldrei hefur sigrað á móti í bandarísku atvinnuimannamótaröðinni lék stórkostlega á öðrum degi á móti í Scottsdale í Arizona. Hann fékk 7 fugla í röð og var einu höggi frá því að bæta PGA-metið. Sport 4.2.2006 15:51
750 krakkar á handboltamóti Handboltamót fyrir yngstu handboltamenn landsins stendur nú yfir í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Ákamótið er nú haldið í 10. sinn en það er HK í Kópavogi sem heldur mótið sem kennt er við Þorvarð Áka Eiríksson sem var fyrsti formaður félagsins. 750 krakkar úr 78 liðum taka þátt í mótinu. Sport 4.2.2006 15:30
Ívar og Jói Kalli í byrjunarliðum Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester City sem mætir Wolves í ensku Championship deildinni (B-deild) í fótbolta í dag en hefur nú lokið við að taka út tveggja leikja bann. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading sem heimsækir Crewe en Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk Reading. Sport 4.2.2006 15:10
Frakkar í úrslit Frakkar leika til úrslita á HM í handbolta en þeir lögðu Króata í undanúrslitum í dag með 6 marka mun, 29-23. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Frakka sem mæta annað hvort Dönum eða Spánverjum í úrslitaleiknum á morgun en þau lið mætast nú kl. 16. Sport 4.2.2006 14:57
Grönholm með forystu í Svíþjóð Finnski ökuþórinn, Markus Grönholm, hafði nauma forystu eftir keppni gærdagsins í sænska rallinu. Norðmaðurinn Petter Solberg sem sigraði í þessu ralli fyrir tveimur árum er aðeins í 18. sæti. Sænska rallið er eina vetrarrallið og norrænir ökumenn hafa þar oft haft betur í baráttu við þá sem eru sérfræðingar á malbikuðum vegum. Sport 4.2.2006 14:45
Charlotte lagði Lakers Að venju var leikið í NBA deildinni í körfbolta í Bandaríkjunum í nótt og ber þar hæst tap LA Lakers fyrir Charlotte Bobcats, 112,-102. Kobe Bryant skoraði 35 stig fyrir Lakers en hann skoraði ekkert í síðasta leikhlutanum. Jumaine Jones setti prsónulegt stigamet þegar hann gerði 31 stig fyrir Charlotte en fyrir leikinn höfðu Bobcats tapað 13 leikjum í röð. Sport 4.2.2006 14:28
Þjóðverjar í 5. sæti Þjóðverjar höfnuðu í 5. sæti á Evrópumóti landsliða í handbolta í Sviss en þeir sigruðu Rússa í leik um sætið í dag, 32-30. Staðan í hálfleik var 18-16 fyrir Rússa. Nú eigast við Króatar og Frakkar í fyrri undanúrslitaleik mótsins og er staðan í hálfleik 12-10 fyrir Frakka. Síðar í dag mætast svo Danir og Spánverjar í hinum undanúrslitaleiknum. Sport 4.2.2006 14:04
Ekkert lát er á mótmælum vegna myndbirtinga af Múhameð spámanni. Ekkert lát er á mótmælum múslíma um allan heim vegna myndbirtinga af Múhameð spámanni. Hóta öfgasinnuð samtök morðum og hryðjuverkum í Danmörku sem og í fleiri Evrópuríkjum. Erlent 4.2.2006 13:31
Konur eru aðeins um 10% af stjórnarmönnum fyrirtækja Konur eru aðeins um tíu prósent af stjórnarmönnum fyrirtækja. Formaður Félags kvenna í endurskoðun segir engan skort á hæfum konum í störfin og að um vannýtan mannauð sé að ræða. Innlent 4.2.2006 12:59
Kjörsókn hefur farið rólega af stað Kjörsókn hefur farið rólega af stað í prófkjöri Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Á Seltjarnarnesi er gerð atlaga að oddvitanum. Innlent 4.2.2006 12:49
300 hefur verið bjargað Um þrjú hundruð farþegum ferjunnar sem sökk í Rauðahafið í fyrrinótt hefur verið bjargað en enn er óttast um afdrif um ellefu hundruð manna. Alls voru um fjórtán hundruð manns um borð en litlar líkur eru taldar á að fleiri finnist á lífi. Erlent 4.2.2006 11:15
Viggó að hætta Viggó Sigurðsson gæti hafa stýrt íslenska handboltalandsliðinu í síðasta leik sínum gegn Norðmönnum á Evrópumótinu í Sviss í fyrradag. Morgunblaðið greinir frá því í morgun að Viggó hafi sagt upp samningi sínum fyrir áramót og hætti 1. apríl. Viggó segir í samtali við Morgunblaðið að hann sé óánægður með launakjör sín, starfsumhverfi og að hægt sé að segja honum upp með þriggja mánaða fyrirvara. Sport 4.2.2006 13:53
Ólga meðal kennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í fyrradag. Samkvæmt því verður höfð samvinna um endurskoðun á námi í tenslum við styttingu námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. Innlent 4.2.2006 10:56
Mörg hundruð manns tróðust undir Að minnsta kosti áttatíu og átta manns létu lífið og yfir þrjú hundruð slösuðust þegar þeir tróðust undir í biðröð við leikvang í Manila, höfuðborg Filipseyja í morgun. Yfir tuttug þúsund manns biðu eftir að komast inn á leikvanginn en þar átti að taka upp vinsælan sjónvarpsþátt. Innlent 4.2.2006 10:05
Ekið á ungan mann Ekið var á ungan mann við Glaumbar í Tryggvagötu í nótt. Að sögn lögreglu virðist sem að maðurinn hafi hlaupið fyrir bílinn og var hann fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús til aðhlynningar. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg og hefur hann verið útskrifaður. Mikill erill var hjá lögreglunni í nótt og á slysadeild. Innlent 4.2.2006 10:02
Komið í veg fyrir pólitískt stórslys Þingmaður Samfylkingarinnar fagnar frestun menntamálaráðherra á styttingu námstíma til stúdentsprófs og segir að komið hafi verið í veg fyrir pólitískt stórslys. Félag kennara í Menntaskólanum í Reykjavík lítur svo á að forysta kennarafélaganna hafi ekki haft umboð til að undirrita samkomulag við menntamálaráherra. Innlent 3.2.2006 23:17
Stærsta bryggja landsins vígð við Grundartanga Stærsta bryggja landsins var tekin í notkun á Grundartanga í dag. Henni er ekki aðeins ætlað að þjóna vaxandi stóriðju heldur einnig höfuðborgarsvæðinu. Innlent 3.2.2006 23:16
Bygging hátæknisjúkrahúss vitleysa Fyrrverandi yfirlæknir á Landspítalanum segir byggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbraut gamla og vitlausa stefnu sem kosti of mikið. Hann segir nær að nýta betur þann góða spítala sem Landspítalinn í Fossvogi er. Innlent 3.2.2006 23:10
Dorrit komin heim á Bessastaði Dorrit Mussajef, forsetafrú, gekkst undir rannsóknir á sjúkrahúsi í morgun en hún fékk aðsvif á Bessastöðum í gær, skömmu fyrir athöfn vegna íslensku bókmenntaverðlaunanna. Forsetafrúin var undir læknishendi mestan fyrrihluta dagsins en hvílir sig nú á Bessastöðum. Innlent 3.2.2006 23:09
Aukið magn eiturefna Þreföldun hefur orðið á eiturefnum á Austurlandi. Þar vega Kárahnjúkaframkvæmdir þyngst. Eiturefni eru flutt á milli landshluta í stórum stíl en líkur á umhverfisslysi eru þó taldar minniháttar. Innlent 3.2.2006 23:07
Ekkert neyðarkall barst frá egypsku ferjunni Ekkert neyðarkall barst frá egypsku ferjunni áður en hún hvarf af ratsjá og sökk í Rauðahafið í nótt. Talið er að um þrettán hundruð manns hafi verið um borð en aðeins hefur tekist að bjarga um eitt hundrað þeirra. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 3.2.2006 23:00
Múslimar á Íslandi eru áhyggjufullir yfir stöðu mála Múslímar hér á landi hafa miklar áhyggjur af því hvernig mál hafa þróast og óttast að almenn reiði gegn múslímum muni snúast gegn sér. Þórir Guðmundsson var viðstaddur bænastund í mosku múslíma í Reykjavík í dag. Innlent 3.2.2006 22:58
Íslensk leyniþjónusta í bígerð? Sérstök deild sem rannsakar hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi verður starfrækt hjá embætti Ríkislögreglustjóra verði frumvarp dómsmálaráðherra til breytingar á lögreglulögum samþykkt á Alþingi. Þingmaður Samfylkingar óttast að verið sé að stofna eins konar leyniþjónustu. Innlent 3.2.2006 22:57
Ókeypis hádegismatur ella verði stéttaskipting Bjóða þarf grunnskólabörnum upp á ókeypis hádegismat til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu að mati leiðtoga Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Innlent 3.2.2006 22:52
Svarar ekki ásökunum um blekkingar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kýs að svara ekki ásökunum um að ráðuneyti hans hafi farið vísvitandi með blekkingar í fréttatilkynningu um skattalækkanir. Hagfræðingur Landssambands eldri borgara sagði í fréttum NFS í gær að framsetning fjármálaráðuneytisins á tölum væri fyrir neðan allar hellur. Þau svör fengust frá ráðherranum í dag að hann hygðist ekki svara þessu. Innlent 3.2.2006 22:36
Öfgatrúarmönnum heitt í hamsi Öfgatrúarmenn hótuðu öllu illu í dag, á helgidegi múslíma, vegna birtinga á skopmyndum af spámanninum Múhameð. Í Indónesíu réðst múgur að danska sendiráðinu. Í Líbanon og Íran gengu þúsundir manna um götur og brenndu danska og norska fánann. Ritstjóri norska blaðsins sem birti myndirnar segist nú sjá eftir því. Og í Danmörku átti forsætisráðherrann fund með sendiherrum múslímaþjóða. Erlent 3.2.2006 22:27