Fréttir
Ríkið lækki álögur á bensíni Neytendasamtökin vilja að ríkið lækki álögur sínar á bensín og olíu en hækkun bensínsverði að undaförnu þýðir í það minnsta 660 milljóna króna aukningu á virðisaukaskattstekjum af eldsneyti. Á heimasíðu Neytendasamtakanna krefjast samtökin þess að ríkið lækki álögur sínar á eldsneyti en þær eru hærri en almennt gerist í löndunum í kringum okkur. Innlent 18.4.2006 21:36
Framkvæmdum við Sundabraut sjálfhætt eða ekki Ummæli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, um Sundabrautina eru óábyrg og kaldar kveðjur til Reykvíkinga að mati Framsóknar og Samfylkingar. Vilhjálmur segist aðeins hafa verið að greina frá staðreyndum málsins. Innlent 18.4.2006 20:32
Meirihlutinn á Akureyri fallinn skv. skoðanakönnun Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 18.4.2006 19:13
Vill fíkniefnahund og gegnumlýsingartæki Forstöðumaður Litla-Hrauns segir vonlaust fyrir fangaverði að koma í veg fyrir að fíkniefni komist inn í fangelsið. Hann vill fá gegnumlýsingartæki og fíkniefnahund. Innlent 18.4.2006 18:41
Ungt fólk bjartsýnt á framtíðina Ungt fólk á Íslandi er upp til hópa bjartsýnt á framtíðarhorfur sínar í heimi hnattvæðingar og alþjóðlegrar samkeppni, ef marka má niðurstöður könnunar sem Samtök atvinnulífsins létu gera á dögunum. Liðlega átta af hverjum tíu hugnast betur að starfa hjá einkafyrirtæki en hinu opinbera og þá eru jeppar og einkaþotur þau farartæki sem ungmennum hugnast einna best. Innlent 18.4.2006 18:45
Hafa náð meira af amfetamíni nú en allt árið í fyrra Lögregla hefur, það sem af er ársins, lagt hald á meira magn af amfetamíni heldur en allt árið í fyrra. Einn Íslendinganna þriggja, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna umfangsmikils fíkniefnamáls, kom líka við sögu í stóru fíkniefnamáli árið 2004 en var ekki ákærður. Innlent 18.4.2006 18:36
Skúli skipaður sóknarprestur í Keflavík Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað séra Skúla Sigurð Ólafsson í embætti sóknarprests í Keflavíkurprestakalli. Biskup Íslands mælti með Skúla eftir að valnefnd prestakallsins klofnaði í málinu. Hópur sóknarbarna stóð í síðustu viku fyrir undirskriftasöfnun þar sem þess var krafist að dómsmálaráðherra skipaði séra Sigfús B. Ingvarsson í embættið. Innlent 18.4.2006 18:35
Bresku hermannatjaldi slegið upp í Nauthólsvík Listinni eru engin takmörk sett og það á einnig við um staðsetningu. Breskt hermannatjald er að rísa í Nauthólsvík en það mun hýsa nýja leiksýningu sem frumsýnd verður bráðlega. Innlent 18.4.2006 17:01
Tveggja prósenta lækkun úrvalsvísitölu Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um rúm tvö prósent í dag. Mest varð lækkunin á hlutabréfum í FL Group, tæp fimm prósent. Hlutabréf í Landsbankanum lækkuðu næst mest, eða um rúm fjögur prósent. Innlent 18.4.2006 16:57
Hægt að tapa á að kaupa ódýrari orku Fólk getur tapað peningum á því að færa viðskipti sín frá einu raforkufyrirtæki til annars þrátt fyrir að fyrirtækið sem fólk flytur sig til rukki lægra verð fyrir orkuna. Innlent 18.4.2006 16:37
Fannst látinn Ungi maðurinn, sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í morgunn fannst látinn fyrr í dag. Mannsins hafði verið saknað frá því gærnótt. Lát hans bar ekki að með saknæmum hætti. Innlent 18.4.2006 16:30
Mikil vonbrigði með samningafundinn Fyrsti samningafundur milli samninganefnda Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu olli forsvarsmönnum ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilin miklum vonbrigðum. Fundinum lauk um klukkan fjögur. Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra, segir að samninganefnd Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hafi ekki haft neitt nýtt fram að færa. Innlent 18.4.2006 16:25
Hótanir gegn Írönum halda olíuverði uppi Olíuverð lækkar á ný ef vesturveldin hætta harðlínutali sínu gagnvart Írönum segir Edmund Daukoru, forseti OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, í dag. Hann sagði að spennan milli Ísraela og Palestínumanna bætti ekki heldur úr skák. Erlent 18.4.2006 16:07
Borgarafundur á Akureyri á NFS Í kvöld stendur NFS fyrir borgarafundi í beinni útsendingu frá Akureyri. Í þættinum verða birt úrslit nýrrar skoðanakönnunar NFS um fylgi framboða til bæjarstjórnar Akureyrar í kosningunum í vor. Þetta er þriðji borgarafundurinn sem NFS stendur fyrir, en áður hafa verið fundir á Akranesi og í Árborg. Innlent 18.4.2006 15:57
Stefna í fremstu röð í fiskeldi Samherji ætlar sér að verða í fremstu röð í lúðueldi og þorskeldi og setur stefnuna á að ná meira en helmings markaðshlutdeild í eldisbleikju. Þessu greindi forstjóri Samherja frá þegar tilkynnt var um stuðning stjórnvalda við fiskeldi í dag. Innlent 18.4.2006 15:09
TF-Sif á leið til Noregs Björgunarþyrlan TF-Sif er nú á leið til Stavanger í Noregi þar sem vélin fer í skoðun og endurbætur. Ráðgert er að fullgilda ýmsan búnað í vélinni og betrumbæta. Endurbætur verða á fjarskipta- og tölvubúnaði þyrlunnar og þá verður aðstaða fyrir áhöfn einnig bætt. Innlent 18.4.2006 15:05
Vonast til að leysa kjaradeiluna sem fyrst Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sitja nú á fundi í húsakynnum Eflingar, vegna kjarabaráttu starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þetta er fyrsti formlegi samningafundurinn en ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum. Vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku. Innlent 18.4.2006 14:54
Segja heimastjórn Palestínumanna bera ábyrgðina Ísraelar segja heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-samtakanna, bera ábyrgð á sjálfsvígsárás sem varð níu manns að bana í Tel Aviv í gær. Herforingjar vilja svara með árás á heimastjórnarsvæðið. Hamas-liðar hafa ekki viljað fordæma árásina í gær og segja hana réttmæta sjálfsvörn. Innlent 18.4.2006 14:47
Öll heimili fá 1000 kr. til bókakaupa Vika bókarinnar hefst á morgun. Að því tilefni hleypir Félag íslenskra bókaútgefenda í félagi við bóksala og Glitni af stokkunum átakinu Þjóðargjöfin þar sem öll íslensk heimili fá senda ávísun að andvirði 1.000 krónur til bókakaupa. Innlent 18.4.2006 14:41
Rue de Net og Skýrr í samstarf Rue de Net ehf. og Skýrr hf. hafa undirritað samning um almennt samstarf og sölu lausna hvor annars hvað snertir viðskiptalausnir og þróunarumhverfi Microsoft. Fyrirtækin hyggjast taka sameiginlega þátt í verkefnum og útboðum þar sem styrkleikar beggja nýtast. Viðskipti innlent 18.4.2006 14:11
Sandstormur í Peking Um það bil þrjú hundruð og þrjátíu þúsund tonn af sandi skullu á Peking, höfuðborg Kína, í gær en mikill sandstormur geisaði þar í sólarhring. Íbúar vöknuðu því upp við vondan draum í gær þegar þeir áttuðu sig á því að bílar þeirra voru þaktir sandi auk þess sem hann huldi götur Peking. Erlent 18.4.2006 14:09
Nestlé mögulegur kaupandi McCartneys Líkur eru sagðar á að svissneska matvælafyrirtækið Nestlé kaupi matvörufyrirtæki Lindu McCartney, sem fyrrum eiginkona bítilsins Pauls McCartneys stofnaði árið 1991. Fyrirtækið McCartney er nú í eigu bandaríska matvörufyrirtækisins Heinz. Viðskipti erlent 18.4.2006 13:50
Ætti Seðlabankinn að hætta að eltast við húsnæðisverð? Fjármálaráðgjafi segir að verðbólgan væri undir markmiðum Seðlabankans ef bankinn hætti að eltast við húsnæðisverð í viðmiðunum sínum. Hann efast um að kauphækkanir myndu auka enn við verðbólguna. Innlent 18.4.2006 13:49
Nokkur afskipti af samkvæmum í heimahúsum Nokkuð bar á samkvæmum í heimahúsum í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði um Páskahelgina og þurfti lögreglan að hafa afskipti af nokkrum þeirra vegna hávaða. Sjö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu og alls voru 77 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðann akstur. Innlent 18.4.2006 13:17
Landhelgisgæslan leigir tvær þyrlur Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í morgun um að leigja tvær sambærilegar þyrlur til Landhelgisgæslunnar og hún hefur nú til umráða. Í tilkynningu frá dómsmálaráðherra segir að starfsfólki Landhelgisgæslunnar verði fjölgað þannig að unnt verði að reka fleiri þyrlur og halda úti tveimur þyrluvöktum allan sólarhringinn. Innlent 18.4.2006 13:14
Framsókn furðar sig á ummælum um Sundabraut Framsóknarflokkurinn í Reykjavík lýsir furðu sinni á ummælum oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni í Fréttablaðinu í dag um að framkvæmdum við Sundabraut sé sjálfhætt í bili vegna stöðu efnahagsmála. Innlent 18.4.2006 12:59
Hesta og gæludýrakeppni hjá Íshestum á sumardaginn fyrsta Íshestar standa fyrir hesta og gæludýrakeppni sumardaginn fyrsta í höfuðstöðvum Íshesta í Hafnafirði. Framkvæmd á skemmti- og hátíðardagskrá þennan dag er í höndum Önnu Marínar Kristjánsdóttur fagmanns á sviði hunda og hesta. Dagskráin er með nokkuð hefðbundnu sniði eins og fyrri ár, þ.e.fjölbreytt fjölskyldudagskrá þar sem ýmislegt er í boði, en gaman er að segja frá því að í fyrsta skipti á Íslandi verður haldinn almenn gæludýrakeppni. Innlent 18.4.2006 12:50
66 urðu að endurgreiða tryggingafélögum 66 ökumenn þurftu að greiða samanlagt tuttugu milljónir króna til tryggingarfélaganna á síðasta ári vegna tjóns sem þeir ollu í umferðinni. Innlent 18.4.2006 11:33
Einn Íslendinganna aðili að öðru stóru fíkniefnamáli Einn Íslendinganna þriggja sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna umfangsmikils fíkniefnamáls kom líka við sögu í stóru fíkniefnamáli árið 2004 en var ekki ákærður. Innlent 18.4.2006 12:09
Ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða gegn verðbólgunni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að grípa til sértækra aðgerða gegn verðbólgu. Þetta sagði hann í samtali við fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagðist eiga von á því að verðbólguskotið gangi fljótt yfir. Innlent 18.4.2006 12:26