Fréttir
Engir nemar í nokkrum árgöngum Nemendum fer sífellt fækkandi í Bíldudalsskóla en tuttugu og fimm munu nema þar í vetur. Enginn nemandi verður í sjötta bekk og aðeins einn nemandi verður í þeim fyrsta. Í Patreksfjarðarskóla, en báðir þessir skólar heyra undir Grunnskóla Vesturbyggðar, verður enginn nemandi í öðrum bekk að sögn Nönnu Sjafnar Pétursdóttur skólastýru. Innlent 13.10.2005 19:42
Mótmælendur hyggjast kæra Lögreglan réðst í nótt inn í húsakynni hóps mótmælenda, sem mótmælt hafa Kárahnjúkavirkjun og álverinu við Reyðarfjörð, til að birta bréf Útlendingastofnunar að sögn Birgittu Jónsdóttur, eins mótmælendanna. Innlent 13.10.2005 19:42
Varað við saurgerlum í neysluvatni Dvalargestir í orlofshúsunum í Munaðarnesi í Borgarfirði hafa verið varaðir við að drekka neysluvatn í bústöðunum ósoðið. Ástæðan er sú, að nokkurt magn af saurgerlum fannst í vatninu. Innlent 13.10.2005 19:42
Ekki góðar fréttir "Þetta eru ekki góðar fréttir þar sem ég byrja fljótlega í skólanum," segir Kolbrún Jónasdóttir, sem á barn á leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi. Boðað hefur verið til foreldrafundar í leikskólanum á föstudag þar sem mannekla verður rædd. Innlent 13.10.2005 19:42
Brottflutningur af Gaza á áætlun Víða voru haldnar einskonar kveðjuveislur á Gasa áður en svæðið var yfirgefið en gríðarleg sorg ríkir nú í Ísrael. Yfir níu þúsund manns hafa á síðustu dögum þurft að yfirgefa heimili sín og er reiði í garðs Ariels Sharons, forsætisráðherra landsins mikil. Erlent 13.10.2005 19:42
Þrjátíu létust í sprengjuárás Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og yfir fimmtíu særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu með aðeins örfárra mínútna millibili í Baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. Sprengjurnar sprungu báðar nálægt rútubílastöð með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 13.10.2005 19:42
Samfylkingin fram með opinn faðm Tillaga um að Samfylkingin hefji nú þegar undirbúning að framboði fyrir næstu borgarstjórnarkosningar undir eigin merkjum en með opinn faðm verður borin undir fulltrúaráðsfund flokksins í kvöld. Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi segir það betri kost heldur en að búa til nýtt kosningabandalag undir merkjum R-listans. Innlent 13.10.2005 19:42
Sprengjusyrpa í Bangladess Hundruð sprengja voru sprengdar nánast samtímis um allt Bangladess í gær. Tveir eru sagðir látnir og 125 særðir. Erlent 13.10.2005 19:42
Metfarþegafjöldi hjá Icelandair Aldrei hafa fleiri farþegar flogið með Icelandair í einum mánuði en í júlí síðastliðnum. Þá voru farþegarnir um 214 þúsund talsins. Þetta jafngildir því að félagið hafi flutt um sjö þúsund farþega daglega í júlí. Farþegunum fjölgaði um rúm 16% frá júlí í fyrra en þá voru þeir um 184 þúsund talsins. Frá áramótum hefur farþegum Icelandair fjölgað um þrettán og hálft prósent og eru nú 882 þúsund. Innlent 13.10.2005 19:42
Vargdýr ógna lífríki Mývatns Vegna lokunar kísilverksmiðjunnar og minnkandi tekna hefur Skútustaðahreppur neyðst til þess að skera niður fé til minka- og tófuveiða. Öllum ber saman um að lífríki Mývatns kunni að vera hætta búin en hvergi í heiminum verpa jafnmargar andartegundir. Straumönd og Flórgoði eru taldar viðkvæmastar ef minkurinn skyldi ná fótfestu. Innlent 13.10.2005 19:42
Ættleiðingar til samkynhneigðra Engar viðræður eru hafnar við erlend ríki um ættleiðingar barna til samkynhneigðra foreldra. Dómsmálaráðherra segir að fylgst verði með þróuninni á alþjóðavettvangi í kjölfar yfirvofandi lagabreytinga á réttarstöðu samkynhneigðra. Innlent 13.10.2005 19:42
Englendingar niðurlægðir á Parken Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik. Sport 13.10.2005 19:42
Greiðslukortafærslur birtar Við þingfestingu Baugsmálsins í gær lagði ákæruvaldið fram greiðslukortafærslur og töflur yfir úttektir ákærðra, en þær hafa ekki verið birtar áður. Innlent 13.10.2005 19:42
Meintur banamaður var í flughernum Meintur banamaður tvítugu stúlkunnar sem var myrt síðastliðna helgi var í flughernum samkvæmt upplýsingum sem komu fram á fundi sem haldinn var hjá varnarliðinu í dag vegna morðsins. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Innlent 13.10.2005 19:42
Dæling Shell stöðvuð Hundruð reiðra íbúa þorpa við óshólma Níger-fljótsins í Nígeríu lokuðu einni af dælustöðvum Royal Dutch Shell olíufélagsins á svæðinu í gær og þar með dróst olíuframleiðsla landsins saman um 10.000 föt á dag. Erlent 13.10.2005 19:42
Fyrstu flóttamennirnir komnir Fyrstu flóttamennirnir á þessu ári komu til landsins um hádegi í gær en alls verður tekið við þrjátíu og einum á þessu ári. Þennan fyrsta hóp skipar sjö manna fjölskylda frá Kosovó en hún hefur búið síðustu ár í flóttamannabúðum í Bosníu. Innlent 13.10.2005 19:42
Samfylkingin býður fram sér Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í gær var stjórn þess falið að móta hugmyndir um hvernig staðið skuli að framboðsmálum Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Skulu hugmyndir um tilhögun framboðsins lagðar fyrir fulltrúaráðsfund í september. Innlent 13.10.2005 19:42
Á fimmta tug féll í árásum 43 Írakar biðu bana í þremur bílsprengjuárásum í Bagdad í gær og 89 slösuðust. Þetta eru mannskæðustu árásir sem gerðar hafa verið í höfuðborginni í margar vikur. Erlent 13.10.2005 19:42
Mikil mannekla á leikskólum Vísa gæti þurft börnum úr leikskólum Reykjavíkur einhverja daga vikunnar í vetur. Leikskólastjórar sjá fram á mikla manneklu og segja að samkeppni um vinnuafl bitni á láglaunastörfum á borð við störf í leikskólum. Innlent 13.10.2005 19:42
Hrefnuvertíð lokið Hrefnuvertíðinni er lokið og veiddist síðasta hrefnan í nótt. Um eitt hundrað hrefnur hafa veiðst frá því vísindaveiðar hófust fyrir um tveimur árum. Innlent 13.10.2005 19:42
Tvo leikskólakennara vantar Fjöldi umsókna um störf á leikskólum Reykjavíkurborgar bárust Menntasviði borgarinnar í gær að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur, sviðsstjóra Menntasviðs. Enn vantar þó tvo starfsmenn á hvern leikskóla í borginni að meðaltali, en samtals eru milli 140 og 150 störf laus að sögn Gerðar. Innlent 13.10.2005 19:42
Útilokar ekki borgarstjórastólinn Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingar, ætlar að íhuga á næstu vikum hvort hann gefi kost á sér sem leiðtoga samfylkingarmanna í borgarmálunum. Innlent 13.10.2005 19:42
Mengað eldsneyti líklega orsökin Aðskotaefni í eldsneytistönkum er líklega orsök flugslyssins í Venesúela í fyrradag þegar MD-82-þota West Caribbean Airways fórst með 160 manns innanborðs. Erlent 13.10.2005 19:42
Lýst eftir manni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Gunnari Óðni Einarssyni sem er 37 ára. Gunnar er á bifreiðinni JF-797, Suzuki Vitara árgerð 1997, sem er svört að lit. Á bifreiðinni er áberandi L merki að aftan. Ekkert hefur heyrst frá Gunnari eftir að hann fór að heiman frá sér þann 10. ágúst síðastliðinn, en hann er talinn hafa farið út á land. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gunnars og eða bifreiðina JF-797 eru beðnir um að láta lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1103. Innlent 13.10.2005 19:42
Flugliðinn enn í haldi vegna morðrannsóknar Stúlkan sem myrt var á varnasvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli síðastliðið sunnudagskvöld hét Ashley Turner. Hún var fædd í Fredrick í Marylandríki 20. mars árið 1985. Hún gekk til liðs við bandaríska flugherinn að loknu framhaldsskólanámi og að þjálfun lokinni kom hún til starfa í tæknideild björgunarsveitar varnarliðsins. Hún lætur eftir sig foreldra og bróður. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og er liðsmaður flugliðs varnarliðsins enn í haldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 13.10.2005 19:42
Allir opnir fyrir samstarfi Frjálslyndi flokkurinn útilokar ekki samstarf við neina flokka eftir næstu borgarstjórnarkosningar. Sjálfstæðismenn útiloka ekki heldur samstarf við neina flokka að loknum kosningum. Forsvarsmenn Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Reykjavík sögðu í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að á næstunni yrði samstarf flokka skoðað svo bjóða megi fram nýjan R-lista. Innlent 13.10.2005 19:42
Þúsund kynlífsþrælar í Ástralíu Fyrrum alríkislögreglumaður í Ástralíu, sem starfaði við að sporna gegn mansali kvenna frá Asíu til Ástralíu, segir að allt að þúsund konur séu notaðar sem kynlífsþrælar í vændishúsum í Ástralíu. </font /> Erlent 13.10.2005 19:42
ÍE rannsakar nikótínfíkn Íslensk erfðagreining hefur hlotið styrk frá bandarísku heilbrigðisstofnuninni til að leita breytileika í erfðamengi mannsins sem veldur því að ákveðnum einstaklingum er hættara við að verða háðir nikótíni. Innlent 13.10.2005 19:42
Meint brot samþykkt í úttekt Enska lögfræðifyrirtækið Capcon-Argen Limited sem fór yfir ákærurnar 40 í Baugsmálinu að beiðni Baugs, segir ekkert óeðlilegt við hegðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hófst kynning á skýrslunni á Hótel Nordica klukkan níu í morgun. Innlent 13.10.2005 19:42
Blaðamannafundur á Hótel Nordica Blaðamannafundur þar sem breskir lögfræðingar kynna skýrslu um Baugsmálið hófst á Nordica Hótel klukkan níu í morgun, en stjórn Baugs boðaði til fundarins. Breska lögfræðifyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á fyrirtækjum, en það hóf að fara í gegnum ákærurnar í Baugsmálinu fyrir um fimm vikum. Innlent 13.10.2005 19:42