Fréttir

Fréttamynd

Skiptar skoðanir um flugvöll

Samstarfsnefnd samgönguráðherra og borgarstjóra kannar nú hvort flugvöllur á Lönguskerjum geti komið í stað Reykjavíkurflugvallar. Sturla Böðvarsson segir þetta framtíðarmál enda sé í gildi skipulag til ársins 2024. Forstjóri Flugleiða telur flugvellinum áfram best fyrirkomið í Vatnsmýrinni.

Innlent
Fréttamynd

Gíslatökumaður skotinn

Öryggissveitir í Georgíu skutu í morgun mann til bana sem hafði ruðst inn í höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins þar í landi. Maðurinn æddi inn á stöðina um klukkan fimm í morgun, tók nokkra gísla og krafðist þess að fá að tala við ríkissaksóknara.

Erlent
Fréttamynd

Mannekla hefur slæm áhrif

Leiðbeinandi á leikskólanum Sjónarhóli segir manneklu valda því að ekki sé hægt að stunda markvissa vinnu í leikskólanum. Launin verði að hækka til þess að fá hæft fólk til starfa. Foreldri er undrandi á því að vandamál vegna manneklu komi upp á hverju ári.

Innlent
Fréttamynd

Lyfjarisi fær 16 milljarða sekt

Kviðdómur í Texas komst í kvöld að þeirri niðurstöðu að lyfjarisinn Merck & Co. bæri ábyrgð á dauða manns sem hafði tekið inn verkjalyfið Vioxx og lést úr hjartaáfalli. Ekkja mannsins fær andvirði rúmra sextán milljarða íslenskra króna í skaðabætur. 

Erlent
Fréttamynd

Fjórtán ára stöðvaður á bíl

Fjórtán ára drengur var stöðvaður á bíl foreldra sinna í Kópavogi um klukkan hálf þrjú í nótt. Vegfarandi tilkynnti lögreglunni í Kópavogi að hann hefði séð óvenju smávaxinn og unglegan ökumann undir stýri.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af aðild að 11. september

Dómstóll í Hamborg dæmdi í gær Mounir el Motassadeq, marokkóskan mann sem búsettur er í Þýskalandi, fyrir að vera félagi í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. Hann var hins vegar sýknaður af þátttöku í hryðjuverkaárásunum 11. september 2001.

Erlent
Fréttamynd

Litrík stjórnmálakona látin

Mo Mowlam var án efa með litríkustu stjórnmálamönnum Bretlands en hennar verður fyrst og fremst minnst fyrir þátt hennar í friðarferlinu á Norður-Írlandi.

Erlent
Fréttamynd

Ungmenni drukknuðu í helli í Utah

Lík fjögurra ungmenna fundust í helli í Utah í Bandaríkjunum í gærkvöld. Fólkið, sem var á aldrinum 18 til 28 ára, hafði ætlað að reyna að synda í gegnum vatnsfyllt göng á milli tveggja hella en drukknað á leiðinni. Fimmti meðlimur hópsins hringdi á hjálp klukkutíma eftir að félagar hans höfðu synt af stað.

Erlent
Fréttamynd

Náðugt hjá Ísraelsher

Brottfllutningi landtökumanna af Gaza-svæðinu miðar vel áfram. Ekki kom til neinna alvarlegra átaka á svæðinu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Fjármálaráðuneyti hafnaði áskorun

Fjármálaráðuneytið hafnaði áskorun Félags íslenskra bifreiðareigenda um lækkun skatta á bensíni fyrir bifreiðar. Á heimasíðu FÍB segir að félagið vænti þess að erindi um lækkun skatta á bensíni hafi verið tekið fyrir hjá ríkisstjórninni þó að á svarbréfinu virðist sem það hafi eingöngu verið tekið fyrir hjá fjármálaráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Vantar kvenlega varkárni í akstur

Ef karlar ækju eins og konur létust helmingi færri í umferðinni. Þetta kemur fram í sænskri greiningu á bílslysum sem gerð var af sænska umferðaröryggiseftirlitinu.

Erlent
Fréttamynd

Deilt um breytingar á leiðakerfi

Ágreiningur í stjórn Strætó bs. á fundi í gær varð til þess að Björk Vilhelmsdóttir stjórnarformaður dró til baka tvær tillögur sínar um breytingar á þjónustu strætisvagna. Meirihluti stjórnar telur að kostnaður við breytingar á þjónustutíma, leiðakerfi og tímatöflum verði of mikill.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur

Karlmaður er alvarlega slasaður eftir árekstur strætisvagns og vörubíls á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugvegar í morgun. Sex farþegar strætisvagnsins voru fluttir á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Al-Kaída lýsti ábyrgð

Þremur eldflaugum var skotið á skotmörk í Jórdaníu og Ísrael í gær. Ein sprakk rétt hjá bandarísku herskipi en önnur hafnaði nærri flugvelli. Einn maður lést í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Dönsk fyrirtæki krafin skýringa

Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur krafið yfir sjötíu dönsk fyrirtæki um skýringar á samskiptum sínum við Íraksstjórn meðan á olíusöluáætlun samtakanna stóð.

Erlent
Fréttamynd

Friðarmamman farin heim

Friðarmamman Cindy Sheehan, sem hefur haldið til fyrir utan búgarð Bush forseta frá síðustu mánaðamótum  gafst upp í gærkvöldi. Hún hafði heitið því að vera við búgarðinn í Texas þar til Bush hitti hana og svaraði spurningum hennar.

Erlent
Fréttamynd

Setning HR og Tækniháskólans

Fyrsta skólasetning sameinaðs skóla, Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík var í dag. Metfjöldi umsókna er um vist í skólanum eða átján hundruð og fékk liðlega helmingur skólavist. Boðið verður upp á tíu nýjar námsbrautir, en meðal þeirra eru verkfræðigreinar sem ekki hefur verið boðið upp á hér á landi áður, svo sem fjármála- og heilbrigðisverkfræði.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólga minnst á Íslandi

Verðbólga mælist minnst á Íslandi af löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Það skal þó tekið fram að í þessum mælikvarða er vísitala eigin húsnæðis ekki tekin með. Ef sú eining er tekin með mælist verðbólgan 3,7 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Nú má guð bíða aðeins lengur

117 ára gömul kona, sem kann að vera sú elsta í heimi, gekkst í gær undir augnaðgerð. "Hér áður bað ég guð um að fara að taka við mér en nú þoli ég að bíða aðeins lengur," sagði Hanna Barisevitsj frá Hvíta-Rússlandi eftir að hún gekkst undir aðgerðina.

Erlent
Fréttamynd

Verðbólgukippur í aðsigi

KB-banki spáir því að verðbólga taki kipp á næstu mánuðum. Ekkert lát er á hækkun fasteignaverðs. Nýjasta vísitölumæling sýnir hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 3,4 prósent á aðeins einum mánuði og hækkun á sérbýli um 50 prósent á einu ári.

Innlent
Fréttamynd

Ástæða fluglsyss enn óljós

Frumrannsóknir á líkum farþeganna um borð í kýpversku farþegaþotunni sem fórst á Grikklandi í síðustu viku leiddu í ljós að engar líkur eru á að hættulegar lofttegundir hafi dreifst um vélina og valdið meðvitundarleysi eða dauða þeirra sem voru um borð.

Erlent
Fréttamynd

Aldnir mega aka rútum

"Frá umferðaröryggissjónarmiði er þetta aldeilis út úr kú og ég mun beita mér fyrir því að þessu verði breytt," segir Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu.

Innlent
Fréttamynd

Flestir ánægðir með innflytjendur

Flestir Íslendingar eru tiltölulega ánægðir með innflytjendur hérlendis og áhrif þeirra á efnahagslífið, samkvæmt nýrri könnun Rauða kross Íslands. Þó vildi rúmur fimmtungur síður að múslímar byggju í nánd við þá.

Innlent
Fréttamynd

Disney sakað um arðrán

Walt Disney fyrirtækið hefur fyrirskipað rannsókn á ásökunum á hendur verksmiðjum í Kína sem framleiða ýmsan varning fyrir fyrirtækið.

Erlent
Fréttamynd

Dróst 20 metra með vörubílnum

Sjö voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætisvagns og vörubifreiðar á gatnamótum Laugavegs, Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar á tíunda tímanum í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Innflytjendur hafa góð áhrif

Meirihluti Íslendinga telur að innflytjendur hafi góð áhrif á efnahagslífið en aðeins sextán prósent telja áhrifin slæm. Þetta eru niðurstöður könnunar sem IMG Gallup gerði fyrir Rauða krossinn. Neikvæðustu viðhorfin eru gagnvart múslímum og geðfötluðum.

Innlent
Fréttamynd

BTK morðinginn dæmdur

BTK-fjöldamorðinginn, Dennis Rader, var í gær dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir dómstóli í Kansas í Bandaríkjunum. Rader sem er 60 ára gamall myrti 10 manns með hrottafengnum hætti í Kansas á árunum 1974 til 1991.

Erlent
Fréttamynd

Þrjú verkefni fengu háan styrk

Þrjú íslensk verkefni fengu samtals um áttatíu milljónir íslenskra króna í styrk frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna Leonardo da Vinci starfsmenntunaráætlunar 2005. Er þetta næst hæsta upphæð sem Ísland hefur fengið úthlutað úr áætluninni frá því Ísland hóf að taka þátt árið 1995.

Innlent
Fréttamynd

Ástarvika í Bolungarvík

Árleg Ástarvika Bolvíkinga hefst á sunnudag. Þar verður hjartalaga blöðrum sleppt í hundraðatali og boðið upp á kaffi ásamt hjartakökum og ástarpungum. Markmið ástarvikunnar er að fjölga Bolvíkingum og eftir níu mánuði, eða í maí á næsta ári verður uppskeruhátíð.

Innlent
Fréttamynd

Kjötfjöll úr sögunni

Hátt í fimmtíu tonn af kjöti hafa verið flutt til landsins á þessu ári. Neysla lambakjöts hefur aukist það mikið að allt kjöt frá síðustu sláturtíð klárast í haust.

Innlent