Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Inga Lind selur rauða ein­býlis­húsið

Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg í miðbæ Reykjavíkur á sölu eftir tveggja ára dvöl í húsinu. Hún keypti húsið eftir sögulega sölu á einbýlishúsi við Mávanes í Garðabæ á 850 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

„Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“

Halldór Eldjárn heldur tónleikasýningu, blöndu af tónleikum og sýningu, í Tjarnarbíói á miðvikudaginn og smíðaði fyrir hana tvö ný hljóðfæri. Annars vegar byggði hann pípuorgel frá grunni og hins vegar endurskapaði hann kliðhörpu sem uppfinningamaðurinn Magnús K. Guðnason bjó til á fyrri hluta síðustu aldar. Halldór heillaðist nýverið af Magnúsi sem lifði við harðan kost, fann upp ýmsar uppfinningar og keyrði sig áfram á hugsjóninni.

Tónlist
Fréttamynd

Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli

Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli í ljósi þess að móttekið magn á stöðvunum hefur minnkað síðustu mánuði og heimsóknum fyrir hádegi fækkað. Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026.

Neytendur
Fréttamynd

Brotist inn í tvö fyrir­tæki

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um innbrot á svipuðu svæði miðsvæðis í Reykjavík í dag. Málin eru bæði í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda

Bílar hafa verið rispaðir í að minnsta kosti þremur hverfum Reykjavíkur undanfarna daga. Íbúi í Vesturbæ segir ljóst að um mikið tjón sé að ræða fyrir íbúa en sjálfur greiddi hann 150 þúsund krónur fyrir viðgerð vegna hakakross sem rispaður var á bíl hans. 

Innlent
Fréttamynd

Eig­endur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar

Hjónin Markús Hauksson og Bríet Guðrúnardóttir opnuðu nýlega kaffihúsið Róst að Suðurlandsbraut 8 þar sem Te og kaffi var áður til húsa. Þau tóku við rekstri kaffihússins Kaffi Laugalækjar fyrir rúmu ári síðan og segja að töluverð samlegðaráhrif verði með kaffihúsunum þó það séu ólíkar áherslur. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum

Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið og vilja draga umræður um bílastæði og samgöngumál upp úr skotgröfunum. 

Innlent
Fréttamynd

Á annað hundrað sektaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði yfir hundrað ökumenn fyrir að leggja ólöglega við Laugardalshöll og víða um Laugardal í Reykjavík í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Þrír réðust á einn

Þrír voru handteknir og vistaðir í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að ráðast á einn. Sá var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en ekki er vitað um alvarleika meiðsla. Tveir hinna handteknu eru undir átján ára aldri.

Innlent
Fréttamynd

Opið hús í Höfða í dag

Landsmönnum gefst kostur á að skoða hið sögumerka hús Höfða í Reykjavík í dag en þar er búið að koma fyrir söguhorni. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, fékk nýverið símtal sem engan foreldra langar að fá. Það var lögreglan sem hringdi sem hafði haft afskipti af syni hans. Sá hafði tapað í fjárhættuspili og refsingin varð fréttamatur allra helstu fjölmiðla landsins.

Lífið
Fréttamynd

Segjast geta hafið fram­kvæmdir á morgun

Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi segir fjármögnun kirkjubyggingar við Mýrargötu tryggða og allan undirbúning að baki. Ákvörðun borgarráðs um að afturkalla lóðaúthlutunina hafi komið söfnuðinum á óvart. Hann óskar eftir samtali við borgaryfirvöld um framhaldið.

Innlent
Fréttamynd

Einn fékk fimm ár, annar á­tján mánuði en þriðji sýknaður

Kareem M. M. Abufarhah hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars síðastliðnum. Mohamed Sayidali Ahmed var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás en þriðji maðurinn sem var ákærður, Qossay Ali Yahya Alsadi, var sýknaður.

Innlent
Fréttamynd

Borað eftir heitu vatni í Laugar­dal

Í dag hefst flutningur á hundrað tonna bor frá Hellisheiði í Laugardalinn, en þar ætla Veitur að bora í leit sinni að heitu vatni. Í tilkynningu segir að Veitur hafi undanfarið undirbúið borun eftir heitu vatni á tveimur stöðum, við Engjateig og Bolholt.

Innlent
Fréttamynd

Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna

Friðarsúlan, listaverk Yoko Ono í Viðey, verður tendruð í tuttugasta sinn klukkan 20 í kvöld. Frá því að fyrst var kveikt á verkinu árið 2007 hefur það kostað Listasafn Reykjavíkur rúmlega 96 milljónir króna. Þar er tekið tillit til fjórtán milljóna króna styrks sem listamaðurinn sjálfur, Reykjavíkurborg og Orkuveitan veittu vegna endurnýjunar búnaðar. Kostnaður hleypur því á um 110 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Borgin aftur­kallar lóðir trúfélaganna

Lóðir sem voru úthlutaðar til annars vegar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi verða afturkallaðar. Málinu var fyrst um sinn frestað eftir að félögin komu af fjöllum.

Innlent
Fréttamynd

Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar?

Meirihlutinn í borgarstjórn hefur tilkynnt að fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur hafi verið eða verði tekin aftur í notkun á næstu dögum. Ýmist fá bekkir, blómapottar eða aðrir hlutir því að fjúka úr stæðunum. 

Innlent
Fréttamynd

Máttu tæma lónið

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið.

Innlent
Fréttamynd

„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“

Ræðukeppni Menntaskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands hefur verið frestað fram til sunnudags eftir að knattspyrnuleikur milli skólanna fór úr böndunum í gærkvöldi. Í pósti til nemenda og forráðamanna segir hún atburðina vera með öllu óásættanlega og varpa skugga á gervallt skólasamfélagið. Nemendafélögin segjast munu draga lærdóm af atvikinu.

Innlent
Fréttamynd

Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda

Ekið var á gangandi vegfaranda í hverfi 104 í dag. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum lyfja við aksturinn, að sögn lögreglu, sem handtók hann og færði á lögreglustöð til frekari afgreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram

Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir það miður hvernig fór á knattspyrnumóti MR og Verslunarskólans í gærkvöldi, sem virðist hafa farið úr böndunum. Einn fékk flösku í hausinn og kjaftshögg voru látin fljúga. Dagskrá í Hljómskálagarðinum í dag hefur nú verið frestað vegna uppákomunnar og skólastjórnendur skoða nú „hvernig við ætlum að afgreiða“ ræðukeppnina sem til stendur að halda á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Vill fækka borgar­full­trúum um átta

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra í tuttugu og þrjá hafi bætt málefni borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Skims opnar í Kringlunni

Skims, undirfatamerki í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, opnar tímabundið útibú í Kringlunni. Eigendur Mathilda standa að opnuninni en um er að ræða afar vinsælt vörumerki.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kveikja og slökkva á ljósa­staurum vegna bilunar

Víðtæk bilun varð á ljósastaurum víða á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í gærkvöldi. Samkvæmt svörum frá Veitum er um að ræða bilun í ljósnema sem nemur birtustigið úti. Samkvæmt svari átti að taka hann úr rekstri um áramótin. Hann verður gerður óvirkur fyrr og verður ljósunum handstýrt þar til nýtt kerfi er komið í notkun.

Innlent
Fréttamynd

23?

Í Stjórnarskránni segir í 1. málsgrein 78. greinar: Sveitarfélög skulu sjálf ráða málefnum sínum - eftir því sem lög ákveða.Vissulega er ákveðin mótsögn í greininni; sveitarfélög skulu sjálf ráða sínum málum - þegar Alþingi er búið að leggja línur.

Skoðun