Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Bandero dregið úr höfn og flutt til Akra­ness

Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar

Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu.

Neytendur
Fréttamynd

Brotist inn í Barnaloppuna

Brotist var inn í verslun Barnaloppunnar að Köllunarklettsvegi í nótt og þurfti að seinka opnun hennar í morgun á meðan rannsóknarstarf lögreglu fór fram.

Innlent
Fréttamynd

Styrkir Minningar­sjóð Bryn­dísar Klöru á Menningar­nótt og skorar á aðra

Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum.

Tónlist
Fréttamynd

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“

Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi.

Innlent
Fréttamynd

Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla

Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. 

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi öku­manna á von á kæru

Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. 

Innlent
Fréttamynd

„Biðin er dýrust“

Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Einn fluttur á sjúkra­hús og eldurinn slökktur

Einstaklingur sem tengist trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi þa sem eldur kviknaði í morgun var fluttur til að aðhlynningar á sjúkrahús. Búið er að slökkva eldinn sem byrjaði í útsogskefi fyrir vélar verkstæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Við­búnaður vegna elds­voða í Grafar­vogi

Bílar frá öllum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sinna nú útkalli vegna elds í byggingu við Gylfaflöt í Grafarvogi. Eldurinn er sagður í loftstokki við hlið trésmíðaverkstæðis.

Innlent
Fréttamynd

Gripinn með stolið kredit­kort og hand­tekinn

Lögreglu barst tilkynning um aðila sem reynt hafði að greiða með stolnu kreditkorti í verslun miðsvæðis í Reykjavík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að aðilinn var með þýfi á sér úr annarri verslun og var hann handtekinn. Maðurinn var einnig með meint fíkniefni á sér.

Innlent
Fréttamynd

Kveikt á götu­lýsingu í sól­myrkva á stofn­brautum

Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst.

Innlent