Skoðun

Reykja­vík á ekki að gera allt ein

Björg Magnúsdóttir skrifar

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er ein af perlum borgarinnar - það er óumdeilt. Reykvísk börn úr leik- og grunnskólum fara reglulega í heimsókn þangað, læra um húsdýrin og njóta þess að vera í návist þeirra inni í miðri borg og margar fjölskyldur eiga árskort í garðinum. Garðurinn er byggður fyrir útsvarstekjur Reykvíkinga - Reykvíkingar eiga garðinn - og Reykvíkingar, börn og fjölskyldur, munu áfram hafa aðgengi að garðinum á sanngjörnu og viðráðanlegu verði.

Er einhver þarna úti með hugmynd?

Í gær samþykkti borgarstjórn að kanna hvort einhverjir þarna úti, einkaaðilar, atvinnulíf, veitingamenn eða aðrir hafi áhuga á því að stíga frekar inn í uppbyggingu og rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins með Reykjavíkurborg. Tillagan er opin, einmitt vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því að sjaldnast hafa stjórnmálamenn bestu hugmyndirnar um það sem gera má. En vel er hægt að sjá fyrir sér að einhverjir hafi áhuga á því að að opna veitingastaði inni í garðinum, búa til veislusal sem hægt er að leigja út og sjái tækifæri til þess að þróa frekar uppbyggingu afþreyingar og tækja í garðinum.

Atvinnulífið er ekki óvinur

Við í Viðreisn lítum ekki á atvinnulíf og einkaframtak sem óvini eða einhvern framandi þjóðflokk sem við eigum að vera hrædd við. Þvert á móti finnst okkur lykilatriði að borgin sé áfram í góðu samstarfi við einkaaðila og atvinnulíf og horfi til tækifæra til þess að útvista eða efna til samstarfs þar sem það á við. Reykjavík er ekki best til þess fallin að gera allt ein. Reykjavík er heldur ekki best til þess fallin að sjá um og viðhalda fjölmörgum eignum sínum einsog bersýnilega hefur komið í ljós.

Innviðaskuld hleypur á tugum milljarða

Sú innviðaskuld sem borgin stendur frammi fyrir er svimandi há. Samtök iðnaðarins gerðu úttekt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga í byrjun síðasta árs og niðurstaðan er sú að uppsöfnuð viðhaldsskuld eingöngu á fasteignum sveitarfélaga eru 95 milljarðar, Reykjavík á sirka þriðjung af því. Það átti að gera við Laugardalslaugina fyrir smáþjóðaleikana - þeir fóru fram árið 1997. Enn hefur ekki verið gert við laugina. Laugarnesskóli hefur verið í myglu og viðhaldsveseni í mörg ár, Vörðuskóli, Stúkan, Kvistaborg, Ölduselsskóli, Hagaskóli, Vinagerði, ÍR heimilið, aðstaða Fylkis, ástand vega og gangstétta í borginni. Viðhaldslistinn er því miður miklu lengri. Meirihlutinn í borginni lokar ekki augunum og lætur einsog hér sé allt í lukkunnar velstandi. Ástand á sameiginlegum eigum okkar, eigum Reykvíkinga, er fjarri því að vera í lagi. Ef vel á að vera þyrftum við að fjárfesta í innviðum fyrir á fjórða tug milljarða á næsta ári. Við náum rétt rúmum helmingnum af því.

Perlan og Klambrar Bistro

Perlan er gott dæmi um eign sem borgin seldi frá sér á síðasta kjörtímabili og blómstrar nú í höndum einkaaðila og er á hverju ári einn af eftirsóttustu ferðamannastöðum í Reykjavík. Víðar höfum við góða reynslu af innkomu einkaaðila t.d. í uppbyggingu leik- og grunnskóla en eins má nefna veitingastaðinn á Kjarvalsstöðum Klambrar Bistro sem blómstrar í höndunum á fagfólki sem eru ekki beinir starfsmenn Reykjavíkur. Við viljum gjarnan fá meira samtal við einkaaðila, atvinnulíf og hugmyndaríkt fólk sem vill hjálpa okkur að gera Reykjavík enn betri.

Nú kortleggjum við tækifærin til þess að gera Fjölskyldu- og húsdýragarðinn ennþá betri og eftirsóttari, án þess að fórna þeim miklum gæðum sem í garðinum eru fólgin fyrir reykvísk börn. Við í Viðreisn fögnum þessari tillögu og hlökkum til vinnunnar framundan.

Höfundur er oddviti Viðreisnar og forseti borgarstjórnar. 




Skoðun

Sjá meira


×