Öll köst Guðna Vals ógild á Ólympíuleikunum í nótt Guðni Valur Guðnason er úr leik eftir undankeppni kringlukastsins á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt en hann náði ekki einu kasti gildu í keppninni. Sport 30. júlí 2021 06:30
Austurríkismaður leiðir eftir fyrsta hring í Japan Hinn austurríski Sepp Straka er í forystu eftir fyrsta hring í golfkeppni karla á Ólympíuleikunum í Japan. Fyrsti hringurinn fór fram í nótt á Kasumigaseki-vellinum í Saitama. Golf 29. júlí 2021 20:01
Fámennasta þjóðin sem vinnur verðlaun á Ólympíuleikum Alessandra Perilli skráði sig og þjóð sína, San Marinó, í sögubækur Ólympíuleikanna þegar hún vann til bronsverðlauna í skotfimi kvenna. Zuzana Rehák-Stefeceková frá Slóvakíu hreppti gullið á nýju Ólympíumeti og hin bandaríska Kayle Browning varð önnur. Sport 29. júlí 2021 16:01
Sjáðu viðbrögð fjölskyldu Sunisu Lee þegar hún vann Ólympíugullið Sunisa Lee er nýr Ólympíumeistari í fjölþraut kvenna í fimleikum eftir frábæra frammistöðu í dag. Hún hélt uppi heiðri Bandaríkjamanna í fjarveru Simone Biles. Sport 29. júlí 2021 15:00
Mourinho fagnaði fyrstu verðlaunum Portúgals á ÓL vel og innilega Jorge Fonseca vann fyrstu verðlaun Portúgals á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Fótboltaþjálfarinn þekkti, José Mourinho, fagnaði árangri landa síns vel og innilega. Sport 29. júlí 2021 14:31
Sunisa Lee hélt sigurgöngu Bandaríkjanna í fjölþrautinni áfram Hin átján ára Sunisa Lee frá Bandaríkjunum vann sigur í fjölþraut kvenna í fimleikakeppninni á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Sport 29. júlí 2021 13:21
Úrræðagóður Ólympíumeistari notaði smokk til laga kajakann sinn Jessica Fox varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn á ferlinum þegar hún tryggði sér sigur í svigkeppni á kanó. Hún hefur þar með unnið öll möguleg verðlaun á Ólympíuleikum, gull, silfur og brons. Sport 29. júlí 2021 13:01
Hefur ekki séð konuna sína í fjóra mánuði en erfiðar æfingar skiluðu Ólympíugulli Suður Kórea vann gull í liðakeppni í skylmingum á Ólympíuleikunum í Tókýó og það er óhætt að segja að Kóreubúarnir hafi verið tilbúnir að fórna miklu fyrir árangur á leikunum í ár. Sport 29. júlí 2021 11:00
Guðni Valur kvartar ekki yfir pappakassarúmunum í Ólympíuþorpinu Frjálsíþróttamaðurinn Guðni Valur Guðnason er eini íslenski keppandinn sem á eftir að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó en hann keppir í undankeppni kringlukastsins aðfaranótt föstudags. Sport 29. júlí 2021 09:30
Norsku stelpurnar keyrðu yfir lið Svartfjallalands í seinni hálfleik Norska kvennalandsliðið í handbolta hélt sigurgöngu sinni áfram á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt og eru þær öruggar í átta liða úrslitin þegar tveir leikir eru eftir. Handbolti 29. júlí 2021 08:51
Luka Doncic með stig á mínútu í stórsigri á heimamönnum Luka Doncic og félagar í slóvenska körfuboltalandsliðinu áttu ekki í miklum erfiðleikum með að landa sínum öðrum sigri á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Körfubolti 29. júlí 2021 08:35
Heimsmeistarinn með kórónuveiruna og missir af Ólympíuleikunum Bandaríski stangarstökkvarinn Sam Kendricks verður ekki með á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir að hann greindist með COVID-19. Sport 29. júlí 2021 08:00
Allur verðlaunapallurinn undir heimsmetinu þegar það fyrsta féll á ÓL í ár Fyrsta heimsmetið í sundkeppninni á Ólympíuleikunum í Tókýó féll í nótt og það voru kínversku stelpurnar sem unnu þar óvænt gullverðlaunin. Kínverska sundkonan Zhang Yufei vann tvö gull í nótt og Bandaríkjamaðurinn Caeleb Dressel vann líka sitt annað gull á leikunum. Sport 29. júlí 2021 07:31
„Ég stend fyrir 82 milljónir flóttamanna og allar konur í Afghanistan“ Afganska hjólreiðakonan Masomah Ali Zada er á meðal 25 manns sem keppir fyrir lið flóttafólks á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir hana persónulega, heldur einnig fyrir þúsundir kvenna um heim allan sem mega ekki einu sinni ferðast um á reiðhjóli. Sport 28. júlí 2021 23:31
Sest í helgan stein eftir áttundu Ólympíuleikana Fimleikakonan Oksana Chusovitina er sest í helgan stein eftir nær fjögurra áratuga feril. Chusovitina keppti á sínum áttundu og síðustu Ólympíuleikum, í Tókýó í Japan, en hún hefur keppt á hverjum einustu leikum frá árinu 1992 þegar leikarnir fóru fram í Barcelona. Sport 28. júlí 2021 20:58
Lærisveinn Vésteins sefur ekki á papparúmunum í Ólympíuþorpinu Sænski kringlukastarinn Daniel Ståhl, sem Vésteinn Hafsteinsson þjálfar, sefur í sérhönnuðu rúmi í Ólympíuþorpinu í Tókýó. Sport 28. júlí 2021 17:01
Gat nú fagnað ÓL-gullinu sem hún hélt að hún hefði unnið um helgina Hollenska hjólreiðakonan Annemiek van Vleuten varð Ólympíumeistari í brautarkeppni hjólreiðanna í Tókýó í nótt. Hún vann þar sín fyrstu gullverðlaun á leikunum en var þó ekki að fagna sigri í fyrsta sinn á þessum Ólympíuleikum. Sport 28. júlí 2021 14:31
Annað grátlegt tap hjá strákunum hans Alfreðs Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltalandsliðinu urðu að sætta sig við tap fyrir Frakklandi, 30-29, í þriðja leik sínum í A-riðli Ólympíuleikanna í Tókýó. Handbolti 28. júlí 2021 14:03
„Vekur marga til umhugsunar um það álag sem er á herðum þessara keppenda“ Sú ákvörðun fimleikastjörnunnar Simone Biles að draga sig úr keppni á Ólympíuleikunum til að huga að andlegri heilsu sinni gæti haft mikil áhrif til frambúðar og skapað aukna umræðu um það umhverfi sem stærstu íþróttastjörnur heims lifa og hrærast í. Þetta segir Haukur Ingi Guðnason, fyrrverandi fótboltamaður sem hefur starfað við og kennt íþróttasálfræði. Sport 28. júlí 2021 13:01
Þjálfarinn sló hana í andlitið rétt fyrir keppni á Ólympíuleikunum Þýska júdókonan Martyna Trajdos var langt frá því að keppa um verðlaun í júdókeppni Ólympíuleikanna í Tókýó en hún var samt á milli tannanna hjá fólki eftir keppnina. Sport 28. júlí 2021 12:30
„Ef ég dey, berð þú þá ábyrgðina“ Rússinn Daniil Medvedev er kominn í átta manna úrslit í tenniskeppni Ólympíuleikanna en hann átti í miklum erfiðleikum í hitanum í nótt. Sport 28. júlí 2021 12:01
Phelps styður Biles: Í lagi að vera ekki í lagi Sigursælasti keppandi í sögu Ólympíuleikanna, Michael Phelps, styður ákvörðun fimleikastjörnunnar Simone Biles um að draga sig úr keppni í úrslitum fjölþrautarinnar á leikunum í Tókýó. Sport 28. júlí 2021 11:30
Snæfríður Sól bætti sinn besta árangur en Ragnheiður heldur Íslandsmetinu Snæfríður Sól Jórunnardóttir endaði í 34. sæti í undanrásum í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Sport 28. júlí 2021 10:20
Aly Raisman stolt af Simone Biles: Það þurfti hugrekki til að hætta keppni Það hafa miklu fleiri hrósað fimleikakonunni Simone Biles en hafa gagnrýnt hana eftir óvænta atburði gærdagsins. Sport 28. júlí 2021 09:31
Gullið kom loksins hjá Ledecky en í kjölfarið á verstu frammistöðu ferilsins: „Hugsaði til ömmu og afa“ Katie Ledecky vann sín fyrstu gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt en þetta hafa þó ekki verið neinir draumaleikar hjá bandarísku sundstjörnunni. Sport 28. júlí 2021 08:31
Þriðja tapið í röð hjá liðum Dags og Arons Lærisveinar íslensku þjálfaranna Dags Sigurðssonar og Aron Kristjánssonar hafa enn ekki ná að fagna sigri í handboltakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó. Handbolti 28. júlí 2021 08:01
Bandaríska körfuboltalandsliðið svaraði fyrir sig með risasigri í nótt Bandaríska körfuboltalandsliðið er komið á blað á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir 54 stiga sigur á Íran, 120-66, í öðrum leik sínum á leikunum. Körfubolti 28. júlí 2021 07:30
Hætt við að keppa: Biles mun ekki verja Ólympíutitil sinn í fjölþrautinni Bandaríska fimleikastjarnan Simone Biles mun ekki keppa í úrslitum fjölþrautarinnar á morgun á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 28. júlí 2021 06:57
Fór úr því að geta varla gengið í að vinna Ólympíugull Bretinn Tom Dean hlaut í dag gullverðlaun á Ólympíuleikunum eftir hafa komið fyrstur í bakkann í 200 metra skriðsundi í lauginni í Tókýó. Dean átti erfiða leið á leikana. Sport 27. júlí 2021 23:31
Vill ekki staðfesta hvort hún taki frekari þátt á ÓL Fimleikastjarnan Simone Biles segir andlegt álag hafa valdið því að hún dró sig úr keppni er liðakeppni fór fram á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Bandaríkin hlutu silfur án Biles en Rússland fagnaði sigri. Sport 27. júlí 2021 19:31