„Nýtt verkefni og nýr leikur“ Sölvi Geir Ottesen segir lið Víkings vera búið að leggja fyrsta tap sumarsins um síðustu helgi til hliðar og á von á hörkuleik gegn sterku liði Keflavíkur í kvöld. Íslenski boltinn 24.7.2026 12:31
Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram. Íslenski boltinn 23.7.2026 22:27
Kaupa Conteh frá Stjörnunni Keflavík hefur keypt Alpha Conteh frá Stjörnunni. Hann hefur leikið sem lánsmaður með Keflvíkingum á þessu tímabili og látið mikið að sér kveða. Íslenski boltinn 23.7.2026 19:01
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn 16.7.2026 09:02
„Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Sérfræðingar Stúkunnar telja að Keflvíkingar hafi verið hlunnfarnir af dómurum leiksins gegn Blikum í Bestu deild karla í gær. Mark var dæmt af Keflavík í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 14. júlí 2026 07:59
„Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur við stórar dómaraákvarðanir sem féllu liði hans í óhag eftir 2-1 tap fyrir Breiðabliki í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 22:15
Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Jónatan Guðni Arnarsson, 19 ára kantmaður Breiðabliks, var hæstánægður eftir 2-1 sigur á Keflavík í Bestu deildinni á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Í leiknum skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik og um leið fyrsta mark í efstu deild. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 22:06
Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Hinn 35 ára gamli Kristinn Jónsson kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark Blika í 2-1 sigri á Keflavík á Kópavogsvellinum í lokaleik fjórtándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 21:05
Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Keflavík og Fram skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í gær. Með stiginu komust Keflvíkingar upp í efri hluta deildarinnar. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 12:45
Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Keflavík og Fram skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í Reykjanesbæ í kvöld. Fram er áfram í þriðja sæti deildarinnar en Keflavík fer upp í sjötta sæti þökk sé stiginu. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 21:10
„Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Körfuboltamaðurinn Bragi Guðmundsson segist vera spenntur fyrir næsta kafla sínum á parketinu, með Keflavík og vonandi áfram í stóru hlutverki. Körfubolti 3. júlí 2026 08:02
Keflavík sækir liðsstyrk Bragi Guðmundsson hefur gengið til liðs við Keflavík og mun leika með þeim í Bónus deild karla. Bragi kemur frá Ármanni en hann er uppalinn hjá Grindavík. Körfubolti 29. júní 2026 21:16
Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem Keflavík, Valur og Stjarnan fögnuðu öll sigri en nú má sjá mörkin úr þeim öllum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 29. júní 2026 08:15
„Ég miða alltaf í fjærhornið svo ég fann það strax“ Keflavík vann gríðarlega mikilvægan og góðan 3-2 sigur á KR í Bestu deild karla í kvöld. Sigurmarkið kom undir lok leiks og var það Alpha Conteh sem skoraði það með frábæru skoti. Sport 28. júní 2026 20:11
Uppgjörið: Keflavík - KR 3-2| Frábært sigurmark batt enda á 18 ára bið eftir sigri gegn KR Keflavík tók á móti KR á HS-Orku vellinum þegar tólfta umferð Bestu deild karla hélt áfram göngu sinni í dag. Keflavík hafði ekki unnið sigur á KR í 18 ár en það breyttist í dag þegar Keflavík vann góðan 3-2 sigur. Íslenski boltinn 28. júní 2026 20:11
KR skoraði sex og fór á toppinn Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag. KR-ingar voru í miklum ham og tylltu sér á toppinn. Íslenski boltinn 27. júní 2026 19:20
Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Íslandsmeistarar Víkings hafa samið við Eið Orra Ragnarsson út árið 2029. Hann klárar tímabilið með Keflavík. Íslenski boltinn 26. júní 2026 13:04
Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 22. júní 2026 09:42
Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Hér fer fram bein textalýsing frá leik Vals og Keflavíkur í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á N1 vellinum að Hlíðarenda klukkan sex. Íslenski boltinn 21. júní 2026 21:04
Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar FH-ingar sóttu fyrsta sigur sinn í Bestu deild karla í fótbolta í sumar til Keflavíkur í botnbaráttuslag í kvöld. Fótbolti 14. júní 2026 18:52
HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum HK hafði aðeins skorað sjö mörk í fyrstu fimm leikjum sínum í Lengjudeild kvenna í sumar en Kópavogsliðið bætti heldur betur úr því í dag í stórsigri á Tindastóli. Íslenski boltinn 13. júní 2026 18:27
Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Það vantaði ekki mörkin í Bestu deild karla í fótbolta í níundu umferðinni í gærkvöldi og nú má sjá þau öll hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 1. júní 2026 07:53
Uppgjörið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna ÍBV kjöldró nýliða Keflavíkur, 6-1, í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Með sigrinum, sínum fyrsta í sumar, fór ÍBV af botni deildarinnar og er nú í 11. og næstneðsta sæti með fimm stig. Keflavík er í sjöunda sæti með 11 stig. Íslenski boltinn 31. maí 2026 18:53
Halldór Garðar kveður Keflavík Halldór Garðar Hermannsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir körfuboltalið Keflavíkur. Félagið tilkynnti um brottför hans í dag. Körfubolti 23. maí 2026 11:01
Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum Keflavík fagnaði 1-0 sigri gegn Þór frá Akureyri í 8. umferð Bestu deildar karla. Þórsarar fengu tækifæri til að jafna leikinn í uppbótartíma en brást bogalistin af vítapunktinum. Íslenski boltinn 22. maí 2026 17:18