Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 7. október 2026 21:50 vísir/Anton Íslandsmeistararnir í Njarðvík tóku á móti nágrönnum sínum og Bikarmeisturum í Keflavík í 2. umferð Bónus deild kvenna í kvöld. Eftir mikla baráttu eru það Njarðvíkingar sem eiga montréttinn eftir fjögurra stiga sigur 83-79. Leikurinn fór skemmtilega af stað og nýttu bæði lið sínar fyrstu sóknir. Hannah Little kom Keflavík á bragðið en Helena Rafnsdóttir svaraði með þrist úr horninu fyrir Njarðvík til þess að byrja fyrsta leikhlutann. Keflavík var að valda Njarðvík allskonar vandræðum og átti Njarðvík virkilega erfitt með að halda aftur af Hannah Little sem skoraði 12 stig í fyrsta leikhluta. Liðin skiptust á áhlaupum og var allt í járnum 25-25 eftir fyrsta leikhluta. Njarðvík byrjaði annan leikhluta sterkt og Brittany Dinkins var að setja góð skot. Keflavík gaf þó ekkert eftir og hélt þessu alveg í járnum. Njarðvík fann þó annan gír sem Keflavík réð illa við og byrjuðu að byggja upp forskot. Það var fátt sem benti til annars en að Njarðvík færi með öruggt forskot inn í hálfleikinn en Keflavík setti tvo þrista í röð undir lok leikhlutans og minnkaði muninn niður í aðeins tvö stig 47-45. Þriðji leikhluti einkenndist af gríðarlega mikilli baráttu þar sem bæði lið þurftu að hafa fyrir sínum stigum. Keflavík gerði sig líklega til þess að komast í gott áhlaup en Njarðvík svaraði. Keflavík var þó ögn sterkari í leikhlutanum og náði að fara inn í fjórða leikhlutann með forystu en eftir þriðja leikhluta var staðan 64-66 Keflavík í vil. Afmælisbarnið Anna Ingunn Svansdóttir opnaði fjórða leikhlutann með því að negla niður þrist fyrir Keflavík. Leikurinn hélt áfram að vera gríðarlega jafn og spennandi. Eftir spennuþrungnar loka mínútur reyndust Njarðvík á endum vera sterkari og þær fóru með öflugan fjögurra stiga sigur á nágrönnum sínum í Keflavík 83-79. Atvik leiksins Þegar allt var í járnum og spennustigið hátt seint í fjórða leikhluta þurfti eitthvað sérstakt til þess að komast skrefinu framar og það skref tók Brittany Dinkins þegar hún stal boltanum og kom Njarðvík í þriggja stiga forystu. Hún hafði komið Njarðvík yfir í leiknum í sókninni á undan. Stjörnur og skúrkar Brittany Dinkins var leiðandi í sóknarleik Njarðvíkur og endaði stigahæst á vellinum með 36 stig. Frábær leikmaður í alla staði.Helena Rafnsdóttir átti einnig öflugan leik fyrir Njarðvík og endaði með 18 stig og var að setja mikilvæg skot í leiknum. Hjá Keflavík var Hannah Little frábær og olli Njarðvíkurliðinu oft á tíðum miklum vandræðum. Hún endaði leikinn með 27 stig og tók að auki 12 fráköst. DómararnirBjarki Þór, Davíð Kristján og Stefán sáu um dómgæsluna í þessum leik. Heilt yfir fannst mér þeir komast bara þokkalega frá sínu í kvöld. Ekki gallalaust en línan sem þeir settu fannst mér haldast nokkuð skýr út leikinn.Stemning og umgjörðÞað er alltaf stemning að líta við í IceMar höllina í Njarðvík og þegar þessi lið mætast sama í hvaða keppni það er þá eru þeir leikir alltaf aðeins sérstakari. Montrétturinn undir og allt það sem við elskum við Körfubolta.Einar Árni Jóhannsson þjálfari NjarðvíkurAnton Brink/Vísir„Að ná að klára þetta er bara styrkur“„Ég er bara fyrir það fyrsta ánægður með að vinna, hörku leikur eins og við var að búast“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld.„Það voru fullt af hlutum sem að eins og er oft bara snemma í október, hlutir sem að við viljum gera betur. Við gefum upp mikið af sóknarfráköstum, við töpum ofboðslega mikið af boltum og þær gefa Keflavík 17 stig í fyrri hálfleik og 22 í heildina“„Við erum að klikka á fullt af vítum sem að er út úr okkar karakter. Við erum besta vítaskotsliðið á landinu í báðum deildum karla og kvenna þannig það var margt sem var ekki eins og við viljum hafa það en að ná að klára þetta er bara styrkur og ég er ánægður með það“Keflavík lét Njarðvík alveg hafa fyrir þessum sigri hér í kvöld.„Við skulum ekki gleyma því að Keflavík er frábært körfuboltalið og ef einhver hélt að við þyrftum ekki að hafa fyrir því og það er fegurðin við þessa deild og ég er búin að vera segja þetta núna í þrjú, fjögur ár að þessi deild er að verða betri og betri. Það er ekkert gefins“„Keflavíkurliðið er félag sem að hefur verið mjög sigursælt í kvennaboltanum og auðvitað koma þær hingað hungraðar í að vinna. Langt síðan að þær hafa unnið okkur og allt það en eru búnar að spila bara að mér finnst mjög vel á móti okkur í síðustu tveimur leikjum og ég er ánægður með það að vinna“„Á sama tíma og ég segi að mér finnst við eiga inni þá geri ég mér alveg grein fyrir að það getur gilt um þær líka og ég geri kröfur á mitt lið að við gerum betur heldur en við vorum að gera í dag“ sagði Einar Árni Jóhannsson.Arnór Daði er nýr þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta.Mynd/Keflavík„Hún hittir úr níu af þessum tíu skotum og þetta eina kom bara í dag“„Varnarlega þá erum við bara í alltof miklum vandræðum“ sagði Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tapið í kvöld.„Við þurfum alvarlega að líta inn á við og fara á næstu æfingu og laga helling í okkar varnarleik ef við ætlum okkur að geta eitthvað í vetur“Leikurinn var í járnum lengst af og gríðarlega jafn en hvað var það sem skildi á milli?„Hrós á Njarðvík, þær hittu úr skotunum sínum og spiluðu bara virkilega vel og leikurinn fer svolítið bara þar að Njarðvík hitti vel, spilaði frábærlega og varnarleikurinn hjá okkur var ekki nógu góður“Keflavík fékk frábært tækifæri til þess að jafna leikinn þegar Keflavík teiknaði upp frábært kerfi með örfáar sekúndur eftir á klukkunni en galopinn þristur frá Thelmu Dís Ágústsdóttur datt ekki.„Þetta féll ekki með okkur í dag og hún hittir úr níu af þessum tíu skotum og þetta eina kom bara í dag og það er bara eins og það er. Þetta er frábært skot og Thelma Dís er frábær skotmaður en bara óheppin að setja þetta ekki niður en leikurinn tapast ekki þar“„Leikurinn tapast í öðrum leikhluta og þá sérstaklega varnarlega. Við fáum á okkur 22 stig og 25 í fyrsta leikhluta, þetta er bara alltof mikið“ sagði Arnór Daði Jónsson. Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Keflavík ÍF