Upp­gjörið: Ár­mann - Kefla­vík 90-108 | Kefla­vík með sann­færandi sigur í Laugar­dalnum

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Bragi Guðmundsson mætti gömlu félögunum í kvöld og átti fínan leik.
Bragi Guðmundsson mætti gömlu félögunum í kvöld og átti fínan leik. Vísir / Anton Brink

Keflavík sigraði Ármann 108-90 í fyrstu umferð Bónus deild karla í kvöld. Öflugt áhlaup Keflvíkinga í þriðja leikhluta reyndist Ármenningum dýrkeypt.

Ármann byrjaði leikinn ágætlega en mikið var um tapaða bolta og misheppnaðar sendingar beggja megin á upphafsmínútunum. Heimamenn voru aðeins yfir framan af en gestirnir tóku smám saman yfirhöndina þegar leið á fyrsta leikhlutann.

Jamir Chaplin setti niður góðan þrist og Keflvíkingar byggðu upp forskot sitt. Staðan var 31-23 fyrir Keflavík að loknum fyrsta leikhluta.

Ármenningar héldu áfram að berjast í öðrum leikhluta en Keflavík hélt forskotinu og leiddi með tíu stigum þegar flautað var til hálfleiks.

Keflavíkingar gengu á lagið í þriðja leikhluta og juku forskot sitt jafnt og þétt. Liðið vann leikhlutann 33-15 og var staðan orðin 95-67 fyrir lokaleikhlutann.

Ármann náði aðeins að rétta úr kútnum í fjórða leikhluta og minnkuðu muninn lítillega en tókst að vinna leikhlutann 23-13. Lokatölur 108-90 og Keflavík hefur því tímabilið á afar sannfærandi sigri.

Atvik leiksins

Nokkrar góðar troðslur og öflugir þristar en ekkert sérstakt sem stóð endilega upp úr.

Stjörnur og skúrkar

Jamir Chaplin var stigahæstur hjá Keflavík með 28 stig og 7 fráköst. Hilmar kom þar næstur með 19 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.

Ingvi Þór Guðmundsson var stigahæstur hjá Ármanni með 15 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.

Stemning og umgjörð

Lítil stemning en fín umgjörð. Svona eins og við er að búast af fyrsta leik á tímabilinu kannski.

Dómarar

Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist og Dominik sáu um leikinn í kvöld. Lítið eða ekkert um vafamál að mínu mati þó svo að það sé alltaf eitthvað kvart og kvein.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira