Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 25. september 2026 18:30 Njarðvík var Íslandsmeistari á síðasta tímabili og mætir bikarmeisturum Keflavíkur í kvöld. Hulda/Vísir Körfuboltatímabilið á Íslandi hófst formlega í kvöld þegar Íslandsmeistarar Njarðvíkur og Bikarmeistarar Keflavíkur kvenna mættust í IceMar höllinni í meistarakeppni KKÍ. Fyrsti titill tímabilsins féll í hendur Njarðvíkur sem hafði betur 83-78. Leikurinn fór jafnt að stað og liðin skiptust á að koma stigum á töfluna. Njarðvík náði eftir því sem leið á leikhlutan að taka skrefið fram úr Keflavík og leiddu eftir fyrsta leikhluta 30-24. Það var mikil barátta í öðrum leikhluta og kristallaðist sú barátta helst um miðbik leikhlutans þegar ekkert gaf undan og liðin voru í stökustu vandræðum með að koma stigum á töfluna. Frábær varnarleikur sem bæði lið voru að sýna á köflum. Eftir frekar jafnan leikhluta var það Keflavík sem átti sterkari lokasprett og var hársbreidd frá því að ganga inn til búningsklefa í hálfleik yfir en skot Amaiqueen Siciliano var of stutt og Njarðvík leiddi með minnsta mun í hlé 40-39. Brittany Dinkins átti fyrstu stig seinni hálfleiksins með góðu skoti í teignum en Keflavík svaraði vel og voru áður en langt um leið búnar að jafna leikinn. Leikurinn var mjög jafn lengst af en Njarðvík náði flottu áhlaupi undir lok leikhlutans til að slíta sig aðeins frá Keflavík en fór þó illa af ráði sínu þegar tíu sekúndur voru eftir af leikhlutanum að láta stela af sér boltanum og Emelía Ósk Gunnarsdóttir keyrði í bakið á þeim fyrir auðveld tvö stig en Njarðvík leiddi eftir þriðja leikhluta með fimm stigum 67-62. Njarðvík mætti á eldi út í fjórða leikhluta og setti fyrstu sjö stig leikhlutans sem ýtti Keflavík út í að taka leikhlé snemma í fjórða leikhluta. Heimakonur virtust ætla að hlaupa með leikinn en enn á ný sýndi Kelflavík mikið hjarta og setti stór skot til að koma sér inn í leikinn aftur. Njarðvík hélt þó út og fór að lokum með fimm stiga sigur 83-78. Atvik leiksins Frábær byrjun Njarðvíkur á fjórða leikhluta lagði grunninn af því að þær fóru að lokum með sigur hér í kvöld. Þær settu fyrstu níu stig leikhlutans. Stjörnur og skúrkar Brittany Dinkins var eftir sem áður áberandi í sóknarleik Njarðvíkur í kvöld og var stigahæst í liði heimakvenna með 19 stig. Ásta Júlía Grímsdóttir var með tvöfalda tvennu í liði Njarðvíkur en hún setti 14 stig og tók 11 fráköst. Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk Gunnarsdóttir í liði Keflavíkur stigu vel upp fyrir sitt lið og voru stigahæstar á vellinum í kvöld. Thelma Dís með 27 stig og Emelía Ósk með 20 stig. DómararnirJóhannes Páll, Gunnlaugur Briem og Sigurbaldur voru á flautunni í kvöld. Heilt yfir fannst mér þeirra frammistaða í kvöld bara góð. Eðlilega einhverjir smáhlutir sem hægt væri að tuða yfir en ekkert sem hafði nein áhrif.Stemning og umgjörðÞað var þokkalegasta mæting í IceMar í kvöld. Þó hljóðkerfið hafi aðeins strítt okkur í leikmannakynningum þá var allt annað upp á 10 hér í kvöld. Það er svo ekki að spyrja að því en það var frábær stemning og umgjörð í Njarðvík.ViðtölEinar Árni fer yfir stöðuna með sínum konumVísir/Ernir Eyjólfsson„Heldur mikið upp og niður en ég er ánægður með sigurinn“„Það voru fínir kaflar en líka slæmir“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld.„Mér fannst leikurinn bera þess merki að það sé svolítið síðan við spiluðum leik. Við ætluðum að spila æfingarleik á sunnudaginn sem að féll uppfyrir vegna manneklu hjá andstæðingum“„Mér fannst þetta heldur mikið upp og niður en ég er ánægður með sigurinn“„Við gerum feykilega vel sóknarlega í fyrsta og þriðja leikhluta og ég held að það sé grunnurinn af þessu“„Við þurfum að gera miklu betur varnarlega í næstu verkefnum og við fáum tækifæri til þess að mæta þeim aftur eftir einhverja 10-12 daga og við vitum alveg sem er að við þurfum að spila miklu betri körfubolta ef við ætlum okkur sigur“ sagði Einar Árni Jóhannsson.Arnór Daði er nýr þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta.Mynd/Keflavík„Erum með hörku lið og okkur hlakkar bara til vetrarins“„Oft á köflum bara virkilega gott“ sagði Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í kvöld. „Við erum snemma í september og okkur vantar Ameríkanann okkar og bara margt mjög gott en auðvitað líka margt sem hefði mátt betur fara. Heilt yfir bara stoltur af stelpunum“Keflavík sýndi mikið hjarta í kvöld og gaf Njarðvík helling af vandræðum oft á tíðum.„Það er það sem við ætlum að leggja upp með í vetur. Við viljum spila harðar heldur en hin liðin, keppa harðar heldur en hin liðin og sýna öllum að við eigum hellings séns í þetta“Keflavík hafa misst sterka pósta í sumar en einnig bætt við sig góðum leikmönnum. „Við erum bara með hörku hóp af Íslenskum stelpum. Við erum með Önnu Ingunni, Önnu Láru, við erum með Emelíu Ósk, Thelmu Dís. Við fáum Hönnu Gróu og Ásdísi aftur til baka og svo vantar okkur útlendinginn í dag. Við erum með hörku lið og okkur hlakkar bara til vetrarins“ sagði Arnór Daði Jónsson. UMF Njarðvík Keflavík ÍF Körfubolti