Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 27. október 2026 21:41 Keflavík tók á móti Stjörnunni í Blue höllinni þegar fimmta umferð Bónus deild kvenna hóf göngu sína í kvöld. Eftir jafna byrjun stakk Stjarnan og hafði að lokum öflugan tuttugu stiga sigur á Keflavík 72-92. Leikurinn fór fjörlega af stað og setti Keflavík fyrstu stigin á töfluna en Stjarnan fylgdi þó fljótt á eftir og gaf þetta ágætis fyrirheit fyrir leikhlutann. Það var allt í járnum og leikmyndin sveiflaðist fram og til baka. Það var allt jafnt lengst af en undir lok leikhlutans náði Stjarnan góðum kafla og fóru með fjögurra stiga forskot úr leikhlutanum 21-25. Keflavík átti fyrstu stig annars leikhluta en það var Stjarnan sem náði góðu áhlaupi og náði að slíta sig örlítið frá Keflavík og búa sér til smá andrými. Stjarnan fór að rífa niður öflug fráköst og voru að koma Keflavík í allskonar vandræði með frábærri pressu. Þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik var Stjarnan búin að byggja upp fjórtán stiga forskot 34-48. Það var kom mikill kraftur með liði Keflavíkur út úr hálfleiknum og þær mættu mun grimmari til leiks í seinni hálfleik. Stjarnan gerði þó vel að hleypa þeim ekki of nálægt og náðu að halda þeim í hæfilegri fjarlægð. Gestirnir frá Garðabæ náðu vopnum sínum á ný þegar leið á og fóru með örugga forystu inn í fjórða leikhluta 50-71. Keflavík skoraði fyrstu fimm stig fjórða leikhlutans en fjallið var orðið full bratt til þess að það myndi telja. Frábær leikur hjá Stjörnunni sem fór að lokum með gríðarlega öflugan tuttugu stiga sigur í Keflavík 72-92. Atvik leiksins Stjarnan setti tóninn fyrir það sem koma skyldi í upphafi annars leikhluta þegar þær kæfðu Keflavík með frábærri pressu og voru öflugar að refsa. Byggðu upp gott forskot sem fylgdi þeim út leikinn. Stjörnur og skúrkar Xaviera Alexandria Dyer eða „Zay“ var öflug í liði Stjörnunnar í kvöld og átti Keflavík fá svör við henni í teignum. Hún endaði með 19 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar. Eva Wium Elíasdóttir var þá stigahæst með 24 stig og átti flottan leik fyrir Stjörnuna. Hjá Keflavík var Thelma Dís Ágústsdóttir atkvæðamest með 21 stig og reif niður 8 fráköst að auki. DómararnirJón Þór, Stefán K og Dominik sáu um flautuleikinn í kvöld. Skiptar skoðanir um þeirra frammistöðu í kvöld en mér fannst þeir heilt yfir bara komast þokkalega frá sínu. Ekki fullkomið en alls ekki hræðilegt heldur.Stemning og umgjörðÁgæt mæting í Blue höllinni í kvöld. Umgjörðin hjá Keflavík er alltaf til fyrirmyndar og stemningin var góð.ViðtölÓlafur Jónas Sigurðsson þjálfari StjörnunnarVísir/Paweł„Við erum að spila fyrir hvor aðra“„Ótrúlega ánægður með að koma hingað og ná í sigur og hvað þá með tuttugu stigum“ sagði Ólafur Jónas Sigurðsson þjálfari Stjörnunnar eftir sigurinn í kvöld.„Þetta skiptir bara máli, við eigum eftir að spila við þær aftur og öll stig skipta máli í svona innbyrðis baráttu þannig ég er bara hrikalega ánægður með það“„Samt finnst mér eins og við eigum alveg inni einn eða tvo gíra í viðbót“Leikurinn var mjög jafn í upphafi en Stjarnan stakk af í öðrum leikhluta og horfði ekki til baka.„Við fórum að frákasta betur. Þær voru að taka frákastabaráttuna í fyrsta leikhluta og mér fannst við bara vera á hælunum svolítið varnarlega og um leið og við fórum að taka aðeins til þar þá fór þetta svona að fljóta aðeins betur fannst mér“Framhaldið horfir vel við í Garðabænum„Framhaldið horfir bara vel við. Við klárum bara þennan leik og förum svo bara að undirbúa okkur fyrir næsta og svo kemur landsleikjahlé og þá getum við haldið áfram að vinna í okkar hlutum“„Ég er ánægður með einbeitinguna í stelpunum. Mér finnst við vera að taka við því sem við erum að koma með. Þær eru að framkvæma það í leikjum og við erum að spila fyrir hvor aðra sóknarlega, við erum ekki að hanga á boltanum of mikið í einhverju 1v1 rugli en það var svona okkar helsti galli í fyrra þannig ég held að við getum orðið miklu betri ef við höldum áfram að bæta okkur í þessum hlutum“ sagði Ólafur Jónas Sigurðsson.Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur„Við þurfum bara að finna lausnir“„Það er lítið að ganga með okkur þessa dagana“ sagði Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tapið í kvöld.„Við hittum lítið og þurfum að skipta út erlendum leikmanni og Anna Lára meiðist í fyrsta leikhluta og við þurfum bara að finna lausnir á meðan við erum fáliðaðar og lítið að ganga með okkur þessa dagana“Leikurinn var í járnum í upphafi en Stjarnan stakk af í öðrum leikhluta.„Þær hitta bara meira en við. Við förum að þröngva erfiðari skotum og okkur vantar fimmu og Stjarnan er með fimmu sem að býr til helling af auðveldum skotum fyrir þær og auðveldum sniðskotum og það er svona það sem skilur að í öðrum leikhluta“Keflavík hafa byrjað mótið erfiðlega og eru bara með einn sigurleik í fyrstu fimm umferðum deildarinnar.„Við þurfum bara að finna lausnir. Við erum 1-4 og það er enginn að gleyma því og það er ekki boðlegt í Keflavík og við þurfum að finna lausnir og halda bara áfram“Keflavík sendi Hannah Little heim eftir fjórðu umferð og eru vongóð um að búið verði að sækja nýjan erlendan leikmann fyrir næsta leik.„Ég vona að þegar ég opna símann á eftir að ég sé með góðar fréttir sem gætu komið fram á næstu dögum. Þetta er allt í vinnslu og við liggjum yfir þessu dag og nótt og vonandi verður kominn erlendur leikmaður í Keflavík í næsta leik“ sagði Arnór Daði Jónsson. Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Stjarnan Körfubolti