Enga myglu að finna þar sem hælisleitendur eru hýstir í Grindavík Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði. Innlent 13. janúar 2023 21:45
Segir að samráð hefði mátt vera meira en flóttamennirnir verði áfram í Grindavík Flóttafólk, sem Vinnumálastofnun hefur komið fyrir á hótelinu Festi í Grindavík, verður þar áfram. Bæjarstjórn Grindavíkur gagnrýndi stofnunina fyrir að koma fólkinu þar fyrir í gær og deildi á um hvort stofnunin hafi haft heimild til að koma fólkinu þar fyrir. Forstjóri Vinnumálastofnunar fundaði með Bæjarráði í morgun og segir hann hafa verið farsælan. Innlent 13. janúar 2023 14:07
Vilja loka húsnæði sem hýsir hælisleitendur Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu. Innlent 12. janúar 2023 19:30
Hjón fá þrjár milljónir frá Grindavíkurbæ eftir bílastæðadeilur Grindavíkurbæ hefur verið gert að greiða hjónum í bænum 3,4 milljónir króna vegna þrifa á heimili þeirra og tjóns á bíl, í kjölfar sandfoks frá bílastæði við íþróttamiðstöðina Hópið. Hjónin fóru fram á tæplega 30 milljónir vegna málsins. Innlent 12. janúar 2023 18:37
Hýsa hælisleitendur í Festi í óþökk bæjaryfirvalda Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Festi í Grindavík í óþökk bæjaryfirvalda en hótelstarfsemi var stöðvuð í húsinu síðastliðið vor vegna myglu. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir engum verða úthýst en furðar sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar. Innlent 12. janúar 2023 13:00
Þorleifur: Mér fannst eiginlega galið hvað ég var ósáttur með mikið í hálfleik en við vorum samt að spila vel Grindavík vann nokkuð öruggan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld. Eftir frekar jafnan fyrri hálfleik keyrðu Grindvíkingar hreinlega yfir gestina og munurinn orðinn 30 stig þegar mest var. Þessi leikur var eiginlega bara búinn í þriðja leikhluta. Körfubolti 4. janúar 2023 21:36
Öruggt hjá Haukum og Grindavík | Tímaspursmál hvenær ÍR fellur Haukar og Grindavík unnu góða sigra í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 28. desember 2022 21:05
Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“ Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór. Innlent 19. desember 2022 09:09
„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“ Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið. Innlent 19. desember 2022 07:38
Hellisheiði og Reykjanesbraut báðar lokaðar Óveður gengur nú yfir landið og eru gular viðvaranir í gildi víða og appelsínugul viðvörun í gildi á Suðausturlandi. Innlent 19. desember 2022 06:43
Pólverjar um þriðjungur útskriftarnema frá Fisktækniskólanum Tæplega þriðjungur nemenda sem útskrifuðust úr Fisktækniskóla Íslands í vikunni sem leið eru Pólverjar. Rekstrarstjóri fiskvinnslu í Grindavík segir fiskvinnsluna ekki geta verið án erlends vinnuafls. Pólverjarnir eru hæstánægðir með námið sem að hluta var kennt á pólsku. Innlent 18. desember 2022 20:45
Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært. Innlent 18. desember 2022 18:23
Tólf hundruð veðurtepptum ferðalöngum bjargað af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík vann mikið þrekvirki í nótt þegar hún kom rúmlega þúsund manns, sem höfðu setið fastir á Grindavíkurvegi vegna veðurs í hálfan sólarhring, til byggða. Björgunarsveitir biðla til fólks að huga vel að veðurspám en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mánudag og þriðjudag. Innlent 18. desember 2022 12:03
Um þrjú hundruð bílum komið af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stóð í ströngu, ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og Vegagerðinni, við að létta á umferð og gera Grindavíkurveg færan. Áætlað er að um þrjú hundruð bílar hafi verið ferjaðir af veginum í bílalestum. Innlent 18. desember 2022 10:02
Búið er að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg Víða er enn ófært en Vegagerðin tilkynnti í morgun að búið væri að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg. Varað er við mannlausum bifreiðum á hægri akrein Grindavíkurvegar, á tvöfalda kaflanum. Innlent 18. desember 2022 08:00
Ferðamenn streyma í Bláa lónið en Grindavíkurvegur lokaður Lögregla og björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum hefur ekki undan við að vísa ferðamönnum frá Grindavíkurvegi sem nú er lokaður vegna ófærðar. Lögregla hvetur fólk til að vera ekki á ferð á Suðurnesjum að ástæðulausu. Innlent 17. desember 2022 12:34
Þrjátíu bílar fastir á Grindavíkurvegi Verið er að kalla út allar björgunarsveitir á Suðurnesjum og ræsa þar aðgerðarstjórn vegna þrjátíu bíla sem fastir eru á Grindavíkurvegi. Innlent 17. desember 2022 11:29
Ótrúlegur sigur Vals | Keflavík vann í Grindavík Valur vann hreint út sagt ótrúlegan sigur á Fjölni í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 63-122 í Grafarvogi í kvöld. Þá vann Keflavík góðan sigur á Grindavík. Körfubolti 14. desember 2022 21:30
Grindavík Íslandsmeistari í pílukasti Grindavík varð um helgina Íslandsmeistari félagsliða í pílukasti. Átta lið voru skráð til leiks. Sport 13. desember 2022 16:31
Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag. Innlent 7. desember 2022 10:32
Öryggismyndavélar um borð en engin upptaka af slysinu Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu. Innlent 6. desember 2022 15:14
Skipverjinn þriggja barna faðir sem flutti til Íslands ungur Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. Innlent 5. desember 2022 20:49
Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út. Innlent 5. desember 2022 19:46
Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir. Innlent 5. desember 2022 14:31
Samfélagið í Grindavík í sárum og bíður þess að skipverjinn finnist Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Innlent 5. desember 2022 11:38
Reykjanesbraut opnuð tímabundið vegna óveðurs Hlé hefur verið gert á malbikunarframkvæmdum á Reykjanesbraut vegna veðurs. Innlent 17. nóvember 2022 07:13
Reykjanesbraut lokuð í sólarhring Reykjanesbraut verður lokað í kvöld á kaflanum frá Grindavíkurvegi og í átt að Hafnarfirði vegna malbiksframkvæmda. Veginum verður lokað klukkan 20 í kvöld og er áætlað að opnað verði á ný klukkan 20 annað kvöld. Innlent 16. nóvember 2022 09:07
Tvö hundruð tonna sæeyrnaeldi í Grindavík HS Orka og Sæbýli undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku. Gert er ráð fyrir byggingu á tvö hundruð tonna eldi sem mögulegt er að fimmfalda á næstu tíu árum. Viðskipti innlent 15. nóvember 2022 14:45
Óþrifnaður við gosstöðvarnar Mörg hundruð manns leggja leið sína að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á hverjum degi þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá goslokum. Klósettskortur á svæðinu hefur verið til vandræða þar sem þreyttir göngugarpar hafa gert þarfir sínar úti í náttúrunni og skilið ummerkin eftir. Innlent 26. október 2022 21:02
Sendu tvær þyrlur eftir sprengingu um borð í flutningaskipi Landhelgisgæslunni barst í dag tilkynning um eld um borð í erlendu flutningaskipi undan ströndum Íslands. Áhafnir tveggja þyrla, varðskipsins Þórs og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 24. október 2022 15:50