Innlent

Öflugt land­ris en engin merki um að eld­gos sé yfir­vofandi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Kortið sýnir skjálftana á umbrotasvæðinu síðustu viku.
Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Kortið sýnir skjálftana á umbrotasvæðinu síðustu viku. Arnar Halldórsson

Engin skýr merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs á Reykjanesi. Landris við fjallið Þorbjörn heldur þó áfram af krafti.

Í fréttum Stöðvar 2 var greint frá nýjustu tíðindum af stöðu mála en svæðið í kringum Þorbjörn er núna í gjörgæslu jarðvísindamanna og almannavarna. Kort, sem Veðurstofan birti í hádeginu í dag, sýnir hvar land hefur risið um 4-5 sentímetra vegna uppsöfnunar kviku vestan við Þorbjörn og norðvestan Grindavíkur.

Landrisið þar hefur verið hratt og öflugt síðustu fjóra sólarhringa, að sögn Halldórs Geirssonar, jarðeðlisfræðings við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

„Fer svona tiltölulega skarpt af stað en heldur svo áfram bara af töluvert miklum krafti,“ segir Halldór.

Mynd Veðurstofunnar af landrisinu norðvestan Grindavíkur.Veðurstofa Íslands

Undanfarin fjögur ár, frá ársbyrjun 2020, hafa hins vegar nokkrir slíkir atburðir gerst á þessu sama svæði við Þorbjörn og Eldvörp án þess að kvika næði til yfirborðs með eldgosi.

„Þetta ristímabil hérna við Þorbjörn er fimmta ristímabilið sem við erum með á þessum tíma,“ segir Halldór.

Landrisið núna sker sig þó úr sem það hraðasta í umbrotunum til þessa.

„Töluvert hraðara heldur en í fyrri hrinum. Og við sjáum líka að nú erum við komin upp fyrir hástöðuna sem var í hinum ristímabilunum.“

Frá orkuveri HS Orku í Svartsengi. Fjær er Bláa lónið.Sigurjón Ólason

Skjálftakort markar umbrotasvæðið og gögnin gefa vísbendingu um hve nærri yfirborði kvikan er komin.

„Þau dýpi sem koma út eru svona eitthvað í kringum fjóra kílómetra. Og það passar í sjálfu sér mjög vel við dýpið sem megnið af jarðskjálftavirkninni er á.“

Skammvinnt kvikuhlaup í tvær klukkustundir í gærmorgun gæti þó hafa náð ofar upp í jarðskorpuna.

„Smáskjálftar sem urðu í þessum atburði náðu mjög grunnt, kannski upp í kílómeters dýpi, eða eitthvað svoleiðis. En í sjálfu sér eru engar vísbendingar út frá aðlögunargögnum um að kvika hafi í raun og veru komist svo grunnt,“ segir Halldór.

Og nýjustu gögn gefa ekki til kynna að kvika sé að brjóta sér leið ofar, samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar í dag.

-Eins og staðan er núna á þessari stundu, síðdegis í dag, þá er ekkert sem bendir til þess að gos sé beinlínis yfirvofandi?

„Nei, það er ekkert, svo ég viti, sem bendir til þess,“ svarar jarðeðlisfræðingurinn.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Hópur íbúa í Grindavík kvíðinn og óttasleginn

Gervitunglamyndir og GPS gögn benda til þess að kvikuinnskot sé á um það bil fjögurra kílómetra dýpi norðvestan við fjallið Þorbjörn. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir marga íbúa kvíðna og að sérstaklega þurfi að halda vel utan um íbúa af erlendum uppruna.

Vel undir­búin fari að gjósa

Sérfræðingar Veðurstofunnar telja ekki útilokað að kvika nái að brjóta sér leið upp í jarðskorpuna norðvestur af Þorbirni skammt frá Bláa lóninu. Framkvæmdastjóri lónsins segir starfsmenn þess reiðubúna ef það fer að gjósa. Jarðskjálftahrina á svæðinu í dag þykir skýrt merki um kvikuhlaup.

Með á­ætlanir gjósi í Svarts­engi

Kvikusöfnun heldur áfram nærri Svartsengi og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið með viðbragðsáætlun komi til eldgoss. Stjórnendur funduðu með almannavörnum í dag. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×