Aston Villa heldur í Evrópudrauma en vandræði Tottenham halda áfram Aston Villa vann mikilvægan sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og liðin eru nú jöfn að stigum í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar, en þetta var fjórða tap Tottenham í seinustu sex deildarleikjum. Enski boltinn 13. maí 2023 15:55
Bayern styrkti stöðu sína á toppnum með stórsigri Bayern München er nú með fjögurra stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann öruggan 6-0 sigur gegn Schalke í dag. Fótbolti 13. maí 2023 15:23
Anna Björk og stöllur unnu stórsigur í Íslendingaslag Anna Björk Kristjánsdóttir og stöllur hennar í Inter unnu afar sannfærandi 4-0 sigur er liðið tók á móti Alexöndru Jóhannsdóttur og liðsfélögum hennar í Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 13. maí 2023 14:22
Mikael skoraði og lagði upp í naumum sigri Venezia Mikael Egill Ellertsson var allt í öllu fyrir Venezia er liðið vann nauman 3-2 sigur gegn Perugia í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Mikael lagði upp fyrsta mark liðsins áður en hann skoraði sjálfur það þriðja. Fótbolti 13. maí 2023 14:00
Kristensen bjargaði mikilvægu stigi fyrir Leeds Rasmus Kristensen reyndist hetja Leeds er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Newcastle í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 13. maí 2023 13:27
„Ef ég segi sannleikann þá verð ég sakaður um að væla“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, segir að erfitt gæti reynst fyrir hans menn að spila á grasvelli KR-inga þegar liðin mætast í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í dag. Fótbolti 13. maí 2023 13:02
Fyrirliði Stjörnunnar í tveggja leikja bann fyrir hártog Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann fyrir að toga í hár Caeley Lordemann, leikmanns ÍBV, í leik liðanna þann 2. maí síðastliðinn. Fótbolti 13. maí 2023 12:30
Segir góðar líkur á því að Rice yfirgefi West Ham í sumar David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, viðurkennir að það séu góðar líkur á því að Declan Rice, miðjumaður liðsins, yfirgefi félagið í sumar. Fótbolti 13. maí 2023 10:45
Furðar sig á því að Eurovision setji leikjadagsrána úr skorðum Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, furðar sig á því að leik liðsins gegn Everton hafi verið frestað um einn dag sökum þess að Eurovision fer fram í Liverpool í kvöld. Fótbolti 13. maí 2023 10:00
Markaskorari FH heppinn að vera inni á vellinum eftir að hún lét olnbogann tala Shaina Ashouri skoraði eina mark FH er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Tindastóli á Sauðárkróki síðastliðinn sunnudag. Markið skoraði hún úr vítaspyrnu á 45. mínútu leiksins, en var stálheppin að hafa ekki fengið rautt spjald rúmum tíu mínútum áður. Fótbolti 13. maí 2023 08:00
Segir United geta lokkað marga gæðaleikmenn til sín í sumar Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið geti lokkað til sín gæðaleikmenn í sumar þrátt fyrir að enn ríki óvissa um hverjir eigendur félagsins verði. Fótbolti 13. maí 2023 07:01
Þórir og félagar köstuðu frá sér sigrinum gegn Lazio Þórir Jóhann Helgason og félagar hans í Lecce þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið tók á móti Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Þórir og félagar leiddu fram á síðustu stundu, en niðurstaðan varð jafntefli. Fótbolti 12. maí 2023 20:43
Nagelsmann tekur ekki við Tottenham Julian Nagelsmann mun ekki taka við sem þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham eftir að hann var látinn fara frá Bayern München í mars á þessu ári. Fótbolti 12. maí 2023 20:01
Glódís lék allan leikinn er Bayern styrkti stöðu sína á toppnum Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München unnu mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 12. maí 2023 19:18
Aron og félagar katarskir bikarmeistarar Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Al Arabi tryggðu sér í kvöld katarska bikarmeistaratitilinn með öruggum 3-0 sigri gegn Al-Sadd í úrslitum. Fótbolti 12. maí 2023 19:01
Rúnar skoraði í þriðja leiknum í röð Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum fyrir FC Voluntari í rúmensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag er liðið vann 2-0 sigur gegn FC Botosani. Fótbolti 12. maí 2023 17:52
Håland og Kerr best að mati íþróttablaðamanna Erling Braut Håland, framherji Manchester City, og Sam Kerr, framherji Chelsea, voru valin bestu leikmenn tímabilsins af íþróttablaðamönnum á Englandi. Enski boltinn 12. maí 2023 17:00
Meistararnir í fyrra svindluðu og missa titilinn Hvít-rússnesku meistararnir í fótbolta hafa verið dæmdir sekir fyrir að hagræða úrslitum og knattspyrnusamband þjóðarinnar hefur tekið mjög hart á þessu. Fótbolti 12. maí 2023 16:15
Bjóða upp á fótsnyrtingu á fyrsta heimaleik sumarsins Afturelding byrjaði tímabilið vel í Lengjudeild karla í fótbolta og vann 3-1 útisigur á Selfossi. Í kvöld er komið að fyrsta heimaleik liðsins og að venju eru Mosfellingar hugmyndaríkir þegar kemur að umgjörð um heimaleiki sína. Íslenski boltinn 12. maí 2023 15:00
Vör Söndru rifnaði við höggið: „Eins rautt spjald og það verður“ Sauma þurfti nokkur spor í vör Söndru Maríu Jessen eftir höggið sem hún fékk frá Holly O‘Neill í leik Þórs/KA við ÍBV í Vestmannaeyjum á sunnudag, í Bestu deildinni í fótbolta. Málið var skoðað í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld. Íslenski boltinn 12. maí 2023 13:37
KSÍ vill að UEFA breyti nafni Meistaradeildar Evrópu Stjórn Knattspyrnusamband Íslands samþykkti skipan í sérstakan starfshóp um kynjajafnrétti á fundi sinum á Akranesi 3. maí síðastliðinn en jafnréttismál voru áberandi á fundinum. Fótbolti 12. maí 2023 12:31
Haaland ekki sá verðmætasti í heimi Fjórir fótboltamenn heimsins eru meira virði en tvö hundruð milljón evrur samkvæmt nýrri úttekt CIES. Enski boltinn 12. maí 2023 11:01
„Er bara að lemja í okkur að þetta sé hægt“ Sævar Atli Magnússon skoraði það sem reyndist sigurmark Lyngby gegn Midtjylland í síðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Það mark gæti reynst dýrmætt þegar uppi er staðið en á einhvern ótrúlegan hátt á Lyngby enn möguleika á að halda sér í deild þeirra bestu í Danmörku. Fótbolti 12. maí 2023 10:01
Bielsa tekur við landsliði Úrúgvæ Marcelo Bielsa, fyrrum knattspyrnustjóri Leeds United, hefur samþykkt að taka við úrúgvæska landsliðinu. Fótbolti 12. maí 2023 07:46
Arsenal verður án Saliba og Zinchenko það sem eftir lifir tímabils William Saliba og Oleksandr Zinchenko verða ekki meira með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili vegna meiðsla. Fótbolti 12. maí 2023 07:00
Knattspyrnusambandið reddar rútum á Wembley vegna verkfalls lestarstarfsfólks Enska knattspyrnusambandið, FA, mun útvega 120 rútur sem munu ganga frá Manchester til London í næsta mánuði til að koma stuðningsmönnum Manchester-liðanna á úrslitaleik FA-bikarsins sem fram fer á Wembley þann 3. júní. Fótbolti 11. maí 2023 23:30
Sex marka jafntefli í Grafarvoginum | Tíu Njarðvíkingar björguðu stigi gegn Ægi Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld þar sem Fjölnir og Þróttur gerðu 3-3 jafntefli í Egilshöllinni og Njarðvíkingar björguðu stigi gegn Ægismönnum. Fótbolti 11. maí 2023 22:06
Gatti hetja Juventus | Rómverjar með forystu Federico Gatti reyndist hetja Juventus er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Sevilla í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Á sama tíma vann Roma góðan 1-0 sigur gegn Bayer Leverkusen í hinni undanúrslitaviðureigninni. Fótbolti 11. maí 2023 21:00
West Ham með forystuna eftir endurkomusigur West Ham United vann mikilvægan 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti AZ Alkmaar í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 11. maí 2023 20:53
Fyrrum leikmaður Liverpool kynnir Eurovision-stig Eista Ragnar Klavan, fyrrverandi leikmaður Liverpool, mun sjá um það verkefni að kynna stig Eistlands í Eurovision sem fram fer í Liverpool næstkomandi laugardagskvöld. Fótbolti 11. maí 2023 20:15