Fótbolti

Marka­skorari FH heppinn að vera inni á vellinum eftir að hún lét oln­bogann tala

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Shaina Ashouri var heppin að hanga inni á vellinum eftir að hún notaði olnbogan full frjálslega.
Shaina Ashouri var heppin að hanga inni á vellinum eftir að hún notaði olnbogan full frjálslega. Vísir/Stöð 2 Sport

Shaina Ashouri skoraði eina mark FH er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Tindastóli á Sauðárkróki síðastliðinn sunnudag. Markið skoraði hún úr vítaspyrnu á 45. mínútu leiksins, en var stálheppin að hafa ekki fengið rautt spjald rúmum tíu mínútum áður.

„Hún gerði þetta vel, en svo eru aðrir hlutir sem hún gerði verr,“ sagði Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna eftir leikinn.

Í þættinum mátti svo sjá myndbrot af því hvernig Ashouri notar olnbogann heldur frjálslega til að halda Hugrúnu Pálsdóttur frá sér. Ashouri slapp hins vegar ótrúlega vel frá þessu ljóta broti, því ekkert var dæmt og leikurinn hélt áfram. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Þetta var þó ekki í eina skiptið sem olnbogar flugu þennan daginn í Bestu-deild kvenna því Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, lenti í svipuðu atviki í leik liðsins gegn ÍBV þennan sama dag. Sandra skoraði eina mark norðankvenna í 1-0 sigri, en þurfti að láta sauma nokkur spor í vörina eftir að hafa fengð olnbogaskot frá Holly O‘Neill.

Besta deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×