„Held að Wenger hafi tapað þúsundasta leiknum sínum 6-0 svo ég er ánægður með að það hafi ekki gerst“ Jürgen Klopp stýrði Liverpool í þúsundasta sinn í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Eftir leik sagðist Klopp vera sáttur með að hafa ekki tapað 6-0 líkt og Arsène Wenger gerði með Arsenal á sínum tíma. Enski boltinn 22. janúar 2023 07:00
Man United samdi við tvo leikmenn í dag Lið Manchester United í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta styrkti leikmannahóp sinn til muna í dag þegar liðið samdi við tvo leikmenn. Önnur kemur á láni frá franska liðinu París Saint-Germain á meðan hin kemur frá Kanada. Enski boltinn 21. janúar 2023 23:30
Níunda jafntefli Newcastle kom á Selhurst Park Crystal Palace og Newcastle United gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Newcastle hefur gert 9 jafntefli í 20 leikjum. Enski boltinn 21. janúar 2023 20:00
West Ham vann fallslaginn | Ferguson bjargað stigi fyrir Brighton West Ham United vann 2-0 sigur á Everton í einum af fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem hófst klukkan 15.00. Brighton & Hove Albion gerði 2-2 jafntefli við Leicester City á útivelli, Bournemouth og Nottingham Forest gerðu 1-1 jafntefli á meðan Aston Villa vann 1-0 útisigur á Southampton. Enski boltinn 21. janúar 2023 17:31
Albert lagði upp í mikilvægum sigri Albert Guðmundsson lagði upp fyrra mark Genoa í mikilvægum 2-1 útisigri á Benevento í Serie B, ítölsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 21. janúar 2023 17:00
Hjörtur og félagar misstu frá sér sigurinn í uppbótartíma Hjörtur Hemannsson og félagar hans í Pisa þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið heimsótti Como í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Gestirnir voru með unninn leik í höndunum en misstu frá sér tvö stig á ögurstundu. Fótbolti 21. janúar 2023 15:51
Markalaust í þúsundasta leik Klopps Liverpool og Chelsea gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag, í þúsundasta leik Jürgens Klopp sem knattspyrnustjóri. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar á fyrri hluta tímabils og eru því líklega bæði ósátt með úrslitin. Enski boltinn 21. janúar 2023 14:27
Manchester United vill fá Kane í sumar Nú þegar Harry Kane, stjörnuframherji Tottenham Hotspur, nálgast sitt seinasta samningsár hjá félaginu fara hin ýmsu félög að hugsa sér gott til glóðarinnar og vilja krækja í þennan markahæsta landsliðsmann Englands frá upphafi. Enski boltinn 21. janúar 2023 11:31
Þakkar stuðningsmönnum fyrir að reyna að stöðva níðsöngva Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur þakkað stuðningsmönnum félagsins fyrir sinn hlut í að reyna að útrýma niðrandi söngvum um samkynhneigða. Fótbolti 21. janúar 2023 10:31
Juventus áfrýjar fimmtán stiga refsingunni Ítalska stórveldið Juventus hefur áfrýjað ákvörðun ítalska knattspyrnusambandsins um að fimmtán stig skuli dregin af liðinu fyrir brot á félagsskiptareglum. Fótbolti 21. janúar 2023 10:00
Haller klár í að snúa aftur til keppni eftir krabbameinsmeðferðina Sebastien Haller, framherja þýska úrvalsdeildarfélagsins Borussia Dortmund, gæti snúið aftur til keppni á nýjan leik á morgun eftir að hafa gengið í gegnum krabbameinsmeðferð. Fótbolti 21. janúar 2023 08:01
Samþykki byggingaráforma vegna knatthúss Hauka fellt úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar um samþykki byggingaráforma að Ásvöllum 1. Til stóð að reisa knatthús Hauka á lóðinni. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir málið til marks um lélega stjórnsýsluhætti í bænum. Innlent 21. janúar 2023 07:01
Fimmtán stig dregin af Juventus fyrir brot á félagsskiptareglum Fimmtán stig hafa verið dregin af ítalska stórliðinu Juventus fyrir alvarleg brot á félagsskiptareglum ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 20. janúar 2023 23:42
KR kaupir enskan framherja frá Gróttu KR hefur gengið frá kaupum á 22 ára enskum sóknarmanni frá nágrönnum sínum í Gróttu. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 17:03
Stuðningsmenn Arsenal fá Bóndadagsgjöf Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, hefur staðfest kaupin á belgíska landsliðsmanninum Leandro Trossard frá Brighton. Enski boltinn 20. janúar 2023 15:43
Vialli kvaddur, Napoli best í Evrópu og þjálfari rekinn í tvo daga Mínútuþagnirnar fyrir leiki hafa verið svo margar í ítölsku deildinni eftir að nýtt ár gekk í garð að það liggur við að þær nái saman heilum fótboltaleik að lengd. Tilefnið hefur enda verið fráfall eins dáðasta sonar – og föður – ítalska boltans, Gianluca Vialli. Mannsins sem komist hefur næst því að tengja saman knattspyrnuheimana England og Ítalíu. Fótbolti 20. janúar 2023 14:10
Dani Alves handtekinn fyrir kynferðislega áreitni Dani Alves, sigursælasti fótboltamaður sögunnar, var handtekinn í morgun, sakaður um að hafa áreitt konu kynferðislega á klósetti á skemmtistað í Barcelona. Fótbolti 20. janúar 2023 13:30
25 ára fótboltamaður úr MLS deildinni dó í bátaslysi Varnarmaður Charlotte FC lést í gær af völdum áverka sem hann hlut í bátaslysi fyrir utan Miami borg. Fótbolti 20. janúar 2023 12:31
Kominn á slóðir Laxness og Kalmans Danski fótboltamaðurinn Rasmus Christiansen er genginn í raðir Aftureldingar frá Val þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 11:43
Guardiola hraunaði yfir liðið sitt og stuðningsmenn þrátt fyrir sigur Manchester City vann flottan endurkomusigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola var mjög ósáttur út í allt og alla eftir leikinn. Enski boltinn 20. janúar 2023 10:31
Adam hafði val og valdi Val Adam Ægir Pálsson, stoðsendingakóngur síðustu leiktíðar í Bestu deildinni í fótbolta, er genginn í raðir Vals eftir að hafa síðast verið samningsbundinn Víkingum. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 10:22
Félög á Íslandi samið um að óléttar konur fái ekki greitt Í ljósi áfangans sem Sara Björk Gunnarsdóttir náði með því að vinna mál gegn franska félaginu Lyon, vegna vangoldinna launa þegar hún var barnshafandi, hafa Leikmannasamtök Íslands bent á að dæmi séu um að íslensk íþróttafélög neiti að greiða laun til óléttra leikmanna. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 07:31
Cardiff reyndi að kaupa tryggingu daginn eftir að Sala lést Enska knattspyrnufélagið Cardiff reyndi að taka út tryggingu upp á tuttugu milljónir punda, eða rúmlega þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna, fyrir Emiliano Sala, daginn eftir að argentínski framherjinn lést í flugslysi. Fótbolti 20. janúar 2023 07:01
Madrídingar snéru taflinu við og eru á leið í átta liða úrslit Real Madrid vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Villarreal í spænsku bikarkeppninni Copa del Rey í kvöld. Heimamenn leiddu með tveimur mörkum eftir fyrri hálfleikinn, en Madrídingar snéru taflinu við í þeim síðari. Fótbolti 19. janúar 2023 22:22
Chiesa skaut Juventus í átta liða úrslit Federici Chiesa reyndist hetja Juventus er liðið vann 2-1 sigur gegn Monza í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia í kvöld. Fótbolti 19. janúar 2023 22:05
Tottenham gerði erkifjendunum engan greiða og kastaði forystunni frá sér Englandsmeistarar Manchester City unnu gríðarlega mikilvægan 4-2 endurkomusigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Tottenham skoraði tvö mörk í lok fyrri hálfleiks, en kastaði forystunni frá sér í upphafi þess síðari. Enski boltinn 19. janúar 2023 21:53
Öruggir sigrar hjá Fram og Val Fram og Valur unnu afar örugga sigra er liðin mættu til leiks í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta í kvöld. Valsmenn unnu 3-0 sigur gegn Leikni og Fram vann 5-1 sigur gegn Fjölni. Fótbolti 19. janúar 2023 21:27
Börsungar í átta liða úrslit eftir stórsigur Barelona er á leið í átta liða úrslit spænsku bikarkeppninnar, Copa del Rey, eftir 5-0 stórsigur er liðið heimsótti C-deildarlið Ceuta í kvöld. Fótbolti 19. janúar 2023 20:53
Tímabilið búið hjá Jóni Daða Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur ekki meira með Bolton Wanderers í ensku C-deildinni á tímabilinu. Selfyssingurinn er á leið í aðgerð á ökkla og því er tímabilinu lokið hjá framherjanum. Fótbolti 19. janúar 2023 20:31
Messi og Ronaldo skoruðu báðir í níu marka stjörnuleik Cristiano Ronaldo og Lionel Messi mættust enn eina ferðina er stjörnuprýtt lið Paris Saint-Germain heimsótti sameinað stjörnulið Al-Hilal og Al-Nassr í vináttuleik í kvöld. Þessir tveir bestu knattspyrnumenn heims síðustu ára skorðu báðir í leiknum sem endaði með 5-4 sigri PSG. Fótbolti 19. janúar 2023 19:17