Rúnar Alex meiddur af velli í tapi Alanyaspor Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson fór meiddur af velli hjá Alanyaspor sem tapaði 4-2 fyrir Adana Demirspor í tyrkensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. maí 2023 20:09
Vonin um Meistaradeild lifir eftir sigurmark Salah Mohamed Salah tryggði Liverpool sinn sjötta sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar hann skoraði eina mark leiksins í sigri á Brentford. Enski boltinn 6. maí 2023 18:28
Kristall Máni ónotaður varamaður í tapi Rosenborg Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Rosenborg sem beið lægri hlut á heimavelli gegn Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Kristall Máni Ingason sat allan tímann á bekk Rosenborg. Fótbolti 6. maí 2023 18:15
Inter náði í þrjú risastór stig gegn lærisveinum Mourinho Inter hafði betur gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Fótbolti 6. maí 2023 18:01
Fyrrum leikmaður Stjörnunnar vann mikið afrek Alexander Scholz, fyrrum leikmaður karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu, var hluti af liði Urawa Red Diamonds frá Japan sem bar sigur úr býtum á móti sem líkja má við Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 6. maí 2023 17:01
Sara Björk kom inn af bekknum í jafntefli Juventus og Inter Sara Björk Gunnarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir mættust með liðum sínum Juventus og Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. maí 2023 16:33
Aston Villa tapaði dýrmætum stigum gegn Úlfunum Wolves vann í dag góðan sigur á Aston Villa er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á Molineux leikvanginum, lokatölur 1-0. Enski boltinn 6. maí 2023 16:24
Þórsarar hirtu stigin þrjú gegn Vestra Fyrstu umferð Lengjudeildar karla lauk í dag með einum leik. Á Akureyri unnu heimamenn í Þór sigur á Vestra í Boganum. Íslenski boltinn 6. maí 2023 15:55
Glódís spilaði allan leikinn í sigri Bayern Íslenska landsliðskonan í knattspyrnu, Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn fyrir Bayern Munchen sem vann í dag 2-1 útisigur á SGS Essen í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 6. maí 2023 15:00
Albert og Genoa upp í ítölsku úrvalsdeildina Genoa, félag íslenska landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar, tryggði sér í dag sæti í ítölsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Fótbolti 6. maí 2023 14:39
Manchester City jók forystu sína á toppnum Manchester City vann í dag 2-1 sigur á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni og styrkti um leið stöðu sína á toppi deildarinnar. Enski boltinn 6. maí 2023 13:31
Chelsea vann sinn fyrsta leik síðan í mars Chelsea gerði sér lítið fyrir og vann loksins leik eftir langa bið frá síðasta sigri liðsins. Liðið heimsótti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag og enduðu leikar með 3-1 sigri Lampard og félaga. Enski boltinn 6. maí 2023 13:31
Kane kom Tottenham aftur á sigurbraut Tottenham vann í dag 1-0 sigur á nágrönnum sínum í Crystal Palace er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham Hotspur leikvanginum. Enski boltinn 6. maí 2023 13:31
Eiginkona hans til 49 ára hélt að hann væri að atast í sér Sam Allardyce, betur þekktur sem Stóri Sam, stýrir Leeds United í fyrsta sinn í dag er liðið tekur á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 6. maí 2023 11:45
Ummæli Ágústs komu Lárusi á óvart: „Hef ekki tekið eftir þessu“ Ágúst Gylfason, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í Bestu deildinni segir það hundfúlt að heyra skilaboð frá þjálfurum annarra liða í deildinni sem skipi sínum leikmönnum að sparka niður ungu leikmenn Stjörnunnar. Leikmenn séu sparkaðir út úr leikjum liðsins. Íslenski boltinn 6. maí 2023 10:30
Stórt skarð að fylla: Átján ára í marki Íslandsmeistara | „Betra að þetta sé erfiðara“ Fanney Inga Birkisdóttir 18 ára markvörður Vals í fótboltanum hefur vakið mikla athygli í Bestu deild kvenna. Fanney sem er mikið efni er spennt fyrir framhaldinu en hún þarf að fylla upp í stórt skarð. Íslenski boltinn 6. maí 2023 07:00
Forráðamenn Tottenham hafa fundað með Nagelsmann Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham hafa fundað með þýska knattspyrnustjóranum Julian Nagelsmann og er hann sagður hafa áhuga á því að taka við stjórnartaumunum hjá félaginu. Frá þessu greinir Sky Germany í kvöld. Enski boltinn 5. maí 2023 23:01
Sjáðu myndbandið: Jóhann Berg og víkingaklappið áberandi í nýrri kitlu Heimildaþættir um magnaða endurkomu enska knattspyrnufélagsins Burnley í ensku úrvalsdeildina fara í sýningu fyrir upphaf næsta knattspyrnutímabils í Englandi. Þetta er staðfest í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu Burnley í dag. Enski boltinn 5. maí 2023 22:30
Örvar bestur í Bestu deildinni í apríl Lesendur Vísis völdu Örvar Eggertsson, sóknarmann HK, besta leikmann Bestu deildar karla í aprílmánuði. Greint var frá valinu í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöldi. Íslenski boltinn 5. maí 2023 22:01
Grindvíkingar sóttu stigin þrjú á Skagann Lengjudeild karla í knattspyrnu hófst í kvöld með fimm leikjum. Stórleikur umferðarinnar fór fram á Akranesi þar sem Grindvíkingar gerðu sér lítið fyrir og sóttu stigin þrjú. Íslenski boltinn 5. maí 2023 21:16
Guðrún hrósaði sigri í Íslendingaslagnum Íslenska landsliðskonan í knattspyrnu, Guðrún Arnardóttir, var í hjarta varnarinnar hjá Rosengard og spilaði allan leikinn er liðið vann 2-0 sigur á Kristianstad í dag. Fótbolti 5. maí 2023 17:52
Messi rýfur þögnina og biðst afsökunar Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem að hann biður liðsfélaga sína sem og stuðningsmenn félagsins afsökunar. Fótbolti 5. maí 2023 17:00
Engin framtíð fyrir Weghorst hjá United Það kemur kannski fáum á óvart að Manchester United hafi ákveðið að kaupa ekki Wout Weghorst eftir tímabilið. Hollenski framherjinn hefur aðeins skorað tvö mörk fyrir United. Enski boltinn 5. maí 2023 17:00
„Mín kjánalegu mistök fóru með þetta“ Luke Shaw tók ábyrgðina á tapi Manchester United á móti Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Enski boltinn 5. maí 2023 14:30
Eigendur Manchester City búnir að kaupa þrettánda félagið City Football Group, sem á meðal annars enska stórliðið Manchester City, heldur áfram að stækka fótboltafjölskyldu sína. Enski boltinn 5. maí 2023 13:30
Víkingar komust alla leið upp í fjórða sætið á sögulegum lista Víkingar héldu marki sínu hreinu fram í seinni hálfleik á sínum fimmta leik í Bestu deild karla í fótbolta í ár og því hafa ekki mörg félög náð í sögu efstu deildar karla. Íslenski boltinn 5. maí 2023 13:01
Aldrei verið skorað meira í fyrstu fimm umferðunum Það hefur ekki vantað mörkin í fyrstu fimm umferðum Bestu deildar karla í fótbolta og þegar sagan er skoðuð kemur í ljós að þetta er í raun metbyrjun í markaskori. Íslenski boltinn 5. maí 2023 12:01
Hitnar undir Ágústi: „Garðbæingar hljóta að vilja meira frá þessu liði“ „Ég held að sætið sé í það minnsta heitt hjá Gústa,“ segir Albert Brynjar Ingason sem var einn af sérfræðingum Stúkunnar í gærkvöld á Stöð 2 Sport, þar sem rætt var um stöðu Stjörnunnar og Ágústs Gylfasonar, þjálfara liðsins. Íslenski boltinn 5. maí 2023 11:30
Sjáðu öll mörkin, múrinn brotna og skallann frá þeim markahæsta Víkingar náðu að halda marki sínu hreinu í 425 mínútur áður en þeir fengu loks á sig mark í gærkvöld. Þeir unnu samt 4-1 sigur gegn Keflavík, í Bestu deildinni í fótbolta, á meðan að Breiðablik vann 2-0 sigur á Stjörnunni. Öll mörkin úr 5. umferð má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 5. maí 2023 09:30
Kristall skammaður af yfirmönnum eftir svindlið: „Algjörlega ólíðandi“ Yfirmenn norska knattspyrnufélagsins Rosenborg tóku Kristal Mána Ingason á teppið eftir að hann viðurkenndi að hafa beitt leikaraskap í 2-0 tapinu gegn Brann á miðvikudag. Fótbolti 5. maí 2023 08:00