Börsungar völtuðu yfir Antwerp

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Joao Felix skoraði tvö og lagði upp eitt.
Joao Felix skoraði tvö og lagði upp eitt. Alex Caparros/Getty Images

Spánarmeistarar Barcelona unnu afar sannfærandi 5-0 sigur er liðið tók á móti belgíska liðinu Royal Antwerp í H-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Joao Felix kom heimamönnum yfir strax á elleftu mínútu leiksins áður en Robert Lewandowski tvöfaldaði forystu Börsunga átta mínútum síðar eftir stoðsendingu frá áðurnefndum Joao Felix.

Jelle Bataille varð svo fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 22. mínútu og staðan var því 3-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Börsungar voru þó ekki hættir því Gavi skoraði fjórða mark liðsins snemma í síðari hálfleik áður en Joao Felix rak seinasta naglann í kistu gestanna þegar um 25 mínútur voru enn eftir af leiknum.

Niðurstaðan því 5-0 sigur Barcelona sem nú er með þrjú stig í H-rðili, líkt og Porto sem vann 1-3 útisigur gegn Porto á sama tíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira