Hildur og María úr leik í bikarnum Hildur Antonsdóttir og María Ólafsdóttir Gros voru báðar í byrjunarliði Fortuna Sittard sem mætti í dag Twente í seinni leik liðanna í undanúrslitum hollenska bikarsins í knattspyrnu. Fótbolti 21. maí 2023 15:31
Selma Sól lagði upp tvö í stórsigri Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur hennar í norska liðinu Rosenborg unnu stórsigur á Avaldsnes þegar liðin mættust í Þrándheimi í dag. Fótbolti 21. maí 2023 15:26
Evrópusæti í höfn í fyrsta skipti í sögunni Brighton tryggði sér í dag sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili í fyrsta sinn í sögunni. Liðið vann öruggan 3-1 heimasigur á föllnu liði Southampton. Enski boltinn 21. maí 2023 15:11
Häcken fyrst liða til að taka stig af Malmö Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði Häcken sem gerði jafntefli við Malmö FF í stórleik sænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 21. maí 2023 15:04
Tvenna frá Alexöndru í sigri á Juventus Alexandra Jóhannsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Fiorentina þegar liðið vann sigur á Söru Björk Gunnarsdóttur og samherjum hennar í Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 21. maí 2023 14:48
Leeds áfram í fallsæti eftir tap í Lundúnum Leeds United verður í fallsæti fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðið tapaði 3-1 á útivelli gegn West Ham í dag. Enski boltinn 21. maí 2023 14:36
Englandsmeistararnir unnu Chelsea Englandsmeistarar Manchester City unnu í dag 1-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Julian Alvarez skoraði eina mark leiksins á 12.mínútu. Enski boltinn 21. maí 2023 14:31
Willum lét enn og aftur að sér kveða í Hollandi Willum Þór Willumsson lagði upp eitt marka Go Ahead Eagles í 3-0 sigri liðsins gegn FC Volendam í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Hann misnotaði einnig vítaspyrnu í leiknum. Fótbolti 21. maí 2023 14:27
Alfreð sá rautt í tapi Lyngby Alfreð Finnbogason fékk rautt spjald í fyrri hálfleik þegar lið hans Lyngby tapaði 4-0 á heimavelli gegn Odense í dönsku deildinni í dag. Fallbaráttan í Danmörku er enn æsispennandi. Fótbolti 21. maí 2023 13:59
Carragher: Arsenal klúðraði þessu og þurfa meiri gæði Jamie Carragher segir að Arsenal hafi skort breidd í leikmannahópnum til að komast lengra í ensku úrvalsdeildinni en raun bar vitni. Hann segir Mikel Arteta þurfa að bæta gæðaleikmönnum inn í hópinn. Enski boltinn 21. maí 2023 13:31
Diljá með stoðsendingu í tapi Norrköping Diljá Ýr Zomers lagði upp mark Norrköping sem tapaði 2-1 á heimavelli gegn Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 21. maí 2023 12:54
Tilfinningaþrungin stund þegar Anfield kvaddi fjóra leikmenn Það var tilfinningaþrungin stund á Anfield í gær þegar fjórir leikmenn Liverpool léku sinn síðasta heimaleik fyrir félagið. Einn vinsælasti leikmaður félagins skoraði í lokaleik sínum á heimavelli. Enski boltinn 21. maí 2023 12:31
Að minnsta kosti tólf létust á fótboltaleik í El Salvador Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að áhorfendur voru að reyna að komast á völlinn fyrir leik Alianza og FAS í El Salvador í gær. Um hundrað manns voru fluttir á sjúkrahús. Fótbolti 21. maí 2023 12:00
Sjáðu fyrsta mark Þorleifs á tímabilinu Þorleifur Úlfarsson tryggði Houston Dynamo stig í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt þegar hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Dallas. Fótbolti 21. maí 2023 10:31
Arsenal setið lengst á toppnum án þess að vinna titilinn Arsenal er það lið í sögu efstu deildar Englands sem setið hefur lengst á toppi deildarinnar á einu og sama tímabilinu án þess að standa uppi sem sigurvegari. Enski boltinn 21. maí 2023 09:01
Leik ÍBV og FH frestað til mánudags Leik ÍBV og FH, sem fara átti fram á Hásteinsvelli á sunnudaginn klukkan 16:00 hefur verið frestað til mánudags. Íslenski boltinn 20. maí 2023 23:00
Meistaraþynnkan hrjáði Börsunga Nýkrýndir Spánarmeistarar í Barcelona töpuðu í kvöld gegn Real Sociedad á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 20. maí 2023 22:16
„Sófameistararnir“ fögnuðu við óhefðbundnar aðstæður Manchester City varð í dag Englandsmeistari í knattspyrnu án þess þó að spila leik. Tap Arsenal gegn Nottingham Forest sá til þess að titillinn fór í bláa hluta Manchesterborgar og því varð City svokallaður „sófameistari.“ Enski boltinn 20. maí 2023 21:30
Rúnar skellti í lás í öruggum sigri Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í knattspyrnu, Rúnar Alex Rúnarsson, hélt marki tyrkneska liðsins Alanyaspor hreinu er liðið vann afar sannfærandi sigur á Kayserispor í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 20. maí 2023 20:30
Myndu bjóða Gylfa velkominn í Grindavík Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdarstjóri íþróttafélags Grindavíkur, segir félagið ekki hafa rætt við knattspyrnumanninn Gylfa Þór Sigurðsson um að ganga til liðs við knattspyrnulið félagsins. Íslenski boltinn 20. maí 2023 19:57
Bayern missteig sig harkalega í titilbaráttunni Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen lutu í dag í lægra haldi gegn RB Leipzig á heimavelli og er titilbaráttan því galopin í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 20. maí 2023 19:13
Feginn að vera laus við nikótínið „Hefði ég staðið mig betur án snus? Ég held það,“ segir Arnar Þór Viðarsson fyrrum landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu og vísar þar í notkun á nikótínpúðum. Sport 20. maí 2023 19:01
Manchester City Englandsmeistari Manchester City varð í dag Englandsmeistari. Þetta varð ljóst eftir 1-0 tap Arsenal gegn Nottingham Forest á útivelli. Ekkert lið á nú möguleika á því að skáka Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 20. maí 2023 18:30
Þórsarar höfðu betur gegn Leikni á heimavelli Þór Akureyri vann í dag afar góðan 1-0 sigur á Leikni Reykjavík í 3.umferð Lengjudeildar karla. Fótbolti 20. maí 2023 16:54
Jöfnunarmark í uppbótartíma gæti reynst Everton dýrmætt Yerri Mina tryggði Everton gríðarlega mikilvægt stig í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma gegn Wolves. Fulham og Crystal Palace gerðu einnig jafntefli í dag. Enski boltinn 20. maí 2023 16:18
Firmino kvaddi Anfield með marki sem dugir líklega skammt Roberto Firmino skoraði jöfnunarmark Liverpool gegn Aston Villa í síðasta heimaleik sínum fyrir félagið. Jafnteflið dugir Liverpool þó líklega skammt í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Enski boltinn 20. maí 2023 16:06
Í beinni: Nott.Forest-Arsenal | City gæti orðið sófameistari Fallbaráttu lið Nottingham Forest tekur á móti Skyttunum í Arsenal klukkan 16:30 í ensku úrvalsdeildinni. Tapi Arsenal í dag verður Englandsmeistaratitillinn endanlega kominn í hendurnar á Manchester City. Enski boltinn 20. maí 2023 16:01
Frábært mark Casemiro kemur United í lykilstöðu Manchester United steig stórt skref í átt að sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili þegar liðið vann 1-0 sigur á útivelli gegn Bournemouth í dag. Enski boltinn 20. maí 2023 15:55
Grátlegt tap eftir mark í uppbótartíma Anna Björk Kristjánsdóttir var í byrjunarliði Inter í dag sem tapaði 2-1 gegn meisturum Roma í ítölsku deildinni í dag. Fótbolti 20. maí 2023 14:26
Lið Árna tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni Árni Vilhjálmsson kom inn sem varamaður þegar Zalgiris tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni í litháísku deildinni. Fótbolti 20. maí 2023 13:54