Fótbolti

Insigne rífst við aðdáendur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Insigne er blóðheitur maður, hér sést hann rífast við dómara í landsleik með Ítalíu
Insigne er blóðheitur maður, hér sést hann rífast við dómara í landsleik með Ítalíu

Lorenzo Insigne, ítalskur leikmaður Toronto FC í MLS deildinni, náðist á myndbandi kalla blótsyrðum að stuðningsmönnum liðsins eftir 3-2 tap gegn Cincinnatti FC. 

Toronto situr í neðsta sæti austurdeildar MLS með aðeins 22 stig úr 31 leik. Pirringur aðdáenda er mikill yfir gengi liðsins og braust í gegn eftir tapið í gær.

Insigne var sjálfur á meiðslalistanum, en myndband sem er í dreifingu sýnir leikmanninn kalla blótsyrðum að aðdáendum og skipa þeim að sýna sér virðingu.

Ítalski leikmaðurinn öskrar „Hey f*ck you! Respect!“ áður en hann snýr sér aftur við í átt að sæti sínu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×