Framherjar frá Arsenal, Chelsea og PSV en aðeins eitt skot á mark í tveimur leikjum Íslenska U-21 árs landsliðinu hefur ekki gengið sem best í riðlakeppni EM sem nú fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu. Enska landsliðinu hefur hins vegar gengið vægast sagt skelfilega. Tvö töp og ekkert mark skorað til þessa. Fótbolti 30. mars 2021 22:45
Einvígið fer fram á Spáni Í dag var staðfest að báðir leikir Chelsea og Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu munu fara fram á Spáni. Fótbolti 30. mars 2021 22:00
Rúmenía sat eftir með sárt ennið Leikjum í A og B-riðli EM U21 árs landsliða í knattspyrnu er nú lokið. Segja má að Rúmenar sitji eftir með sárt ennið eftir markalaust jafntefli gegn Þýskalandi í dag. Þá tryggðu Spánn og Ítalía sér sæti í 8-liða úrslitum. Fótbolti 30. mars 2021 21:31
Fyrirliðinn ekki með gegn Íslandi á morgun Nicolas Hasler, fyrirliði Liechtenstein, verður ekki með í leiknum gegn Íslandi á morgun vegna meiðsla. Fótbolti 30. mars 2021 21:16
Holland skoraði sjö, Tyrkland henti frá sér sigrinum og Portúgal lenti óvænt undir Öllum leikjum dagsins í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu er nú lokið. Allt stefndi í að Tyrkland yrði með fullt hús stiga að loknum þremur leikjum en allt kom fyrir ekki. Holland skoraði sjö og Evrópumeistarar Portúgal lentu undir í Lúxemborg. Fótbolti 30. mars 2021 21:00
Daniel James hetja Wales | Belgía skoraði átta Tveir leikir fóru fram í E-riðli í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu í kvöld. Wales vann mikilvægan 1-0 sigur á Tékklandi þökk sé marki Daniel James. Þá vann Belgía einstaklega þægilegan 8-0 sigur á Hvíta-Rússlandi. Fótbolti 30. mars 2021 20:35
Tryggvi Snær nýtti mínúturnar í góðum sigri Zaragoza Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik er Zaragoza vann ítalska liðið Sassari í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld. Körfubolti 30. mars 2021 20:00
Þórður Þorsteinn aftur í raðir Skagamanna Þórður Þorsteinn Þórðarson, eða einfaldlega ÞÞÞ eins og hann er oft kallaður, er genginn í raðir ÍA á nýjan leik. Mun hann leika með liðinu í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Íslenski boltinn 30. mars 2021 19:31
Missir af mikilvægum leikjum gegn Englandi og Paris Saint-Germain Pólski framherjinn Robert Lewandowski verður frá næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla á hné. Mun hann missa af landsleik Póllands og Englands á morgun sem og einvígi Bayern München og PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 30. mars 2021 19:00
Mitrovic hetja Serbíu og Kýpur með óvæntan sigur Óvæntum úrslitum í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu virðist hvergi nærri lokið. Kýpur vann 1-0 sigur á Slóveníu nú rétt í þessu og þá reyndist Aleksandar Mitrović hetja Serbíu í Aserbaísjan er gestirnir unnu 2-1 sigur. Fótbolti 30. mars 2021 17:56
Dómarinn baðst afsökunar á því að hafa ekki dæmt mark Ronaldo gilt Hollenskur dómari hefur beðið Cristiano Ronaldo og portúgalska landsliðið afsökunar eftir að hafa gert mistök í leik i undankeppni HM. Fótbolti 30. mars 2021 17:30
„Fannst ég eiga skilið að byrja“ Andri Fannar Baldursson viðurkennir að hann hafi verið svekktur að byrja ekki inn á í leik Íslands og Danmerkur á EM U-21 árs liða á sunnudaginn. Fótbolti 30. mars 2021 17:01
Sævar samdi við Breiðablik en spilar áfram í Breiðholti Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis R., mun leika með Leiknismönnum í Pepsi Max-deildinni í sumar en að tímabilinu loknu fer hann úr Breiðholtinu í Kópavoginn til Breiðabliks. Fótbolti 30. mars 2021 16:05
Hásinin hjálpaði Söru að forðast smit: „Er hvort sem er í hálfgerðri sóttkví“ „Ég er bara góð. Ég er alla vega ekki með Covid,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta. Hún vonast til þess að langvinn meiðsli í hásin hafi hjálpað henni að forðast kórónuveirusmit. Fótbolti 30. mars 2021 15:30
Tékknesku landsliðsmennirnir styðja við bakið á meintum rasista Samherjar Ondrejs Kúdela í tékkneska fótboltalandsliðinu styðja við bakið á honum þrátt fyrir að hann hafi verið sakaður um að beita Glen Kamara, leikmann Rangers, kynþáttaníði. Fótbolti 30. mars 2021 14:30
Gummi hress og bjartsýnn: Vorum lélegir en fáum tækifæri strax á morgun „Við áttum ofboðslega vondan dag,“ sagði Guðmundur Benediktsson um leik Íslands við Armeníu á sunnudaginn. Hann vildi ekki gera of mikið úr 2-0 tapinu og segir íslenska liðið hafa gott tækifæri til þess á morgun að fara úr þessu landsliðsverkefni með ágætis bragð í munninum. Fótbolti 30. mars 2021 14:16
FH-ingar í sóttkví vegna smits Allir leikmenn karlaliðs FH í fótbolta eru komnir í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með kórónuveirusmit. Íslenski boltinn 30. mars 2021 13:53
Nokkur smit í liði Söru og stórleiknum frestað Seinni leik Lyon og PSG í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Lyon. Fótbolti 30. mars 2021 12:59
Meistararnir fá ekki keppnisleyfi og gamla lið Eiðs Smára græðir á því Jiangsu FC mun ekki verja titil sinn í kínversku ofurdeildinni því félagið er ekki á listanum yfir lið sem fengu keppnisleyfi fyrir komandi tímabili. Fótbolti 30. mars 2021 12:41
Kolbeinn handarbrotnaði gegn Armeníu Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með íslenska landsliðinu í leiknum gegn Liechtenstein á morgun. Hann handarbrotnaði í 0-2 tapinu fyrir Armeníu á sunnudaginn. Fótbolti 30. mars 2021 11:27
Aron Einar: Að koma með svona sögu út í loftið er galið og kjánalegt Landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni fannst ekki mikið til ummæla Guðjóns Þórðarsonar koma og sagði þau galin og kjánaleg. Fótbolti 30. mars 2021 11:12
Arnar segir það vel koma til greina að tala við Viðar og hreinsa loftið Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, ræddi mál Viðars Arnars Kjartanssonar, á blaðamannafundi í dag. Fótbolti 30. mars 2021 11:06
Helgi vildi ekki segja Arnari frá neinum smáatriðum um lið Liechtenstein Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, leitaði sér upplýsinga um landslið Liechtenstein hjá Helga Kolviðssyni, fyrrverandi þjálfara Liechtenstein. Fótbolti 30. mars 2021 10:57
Svona var blaðamannafundur Arnars og Arons í Liechtenstein Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Liechtenstein eftir nokkuð stormasama daga í sínu fyrsta landsliðsverkefni. Fótbolti 30. mars 2021 10:30
Ekkert til í því að Man. United maðurinn haldi með Liverpool Að halda eða halda ekki með Liverpool. Það er spurninginn sem Manchester United maðurinn Daniel James er nú lokins búinn að svara. Enski boltinn 30. mars 2021 10:01
„Megum ekki gleyma að við eigum enn möguleika“ Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U-21 árs landsliðs karla, segir að ekki megi gleyma því að Ísland eigi enn möguleika á að komast áfram í átta liða úrslit Evrópumótsins. Fótbolti 30. mars 2021 09:44
Shaw þjakaður af samviskubiti Luke Shaw sér mikið eftir því að hafa dregið sig ítrekað út úr enska landsliðshópnum og þar með brugðist landsliðsþjálfaranum Gareth Southgate. Enski boltinn 30. mars 2021 08:01
Drama hjá meistaraliðinu: Samherji Alfonsar yfirgaf hótelið án þess að láta neinn vita Alfons Sampsted er með íslenska landsliðinu að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Liechenstein á morgun en það er dramatík í herbúðum félagsliðs hans, Bodø/Glimt. Fótbolti 30. mars 2021 07:00
„Þetta var ungt lið þangað til ég kom inn í myndina“ Zlatan Ibrahimovic segir að endurkoma hans í sænska landsliðið hafi gengið vel og ungu strákarnir hafi tekið vel á móti honum. Fótbolti 29. mars 2021 23:01
Búinn á því eftir leikinn gegn Íslandi Carlo Holse, leikmaður U21 árs landsliðs Dana, spilaði í 90 mínútur er Danir unnu 2-0 sigur á Íslandi í gær. Þetta var fyrsti leikur Holse í lengri tíma. Fótbolti 29. mars 2021 22:01