Aston Villa kom til baka og Fulham áfram í fallsæti Aston Villa tók stigin þrjú þegar að Fulham kom í heimsókn á Villa Park í dag. Aleksandar Mitrovic kom gestunum yfir, en Egyptinn Trezeguet skoraði tvö mörk með stuttu millibili áður en Ollie Watkins tryggði 3-1 sigur heimamanna. Fótbolti 4. apríl 2021 17:25
Íslendingarnir byrjuðu báðir í sigri CSKA CSKA Moskva vann Tambov 2-1 á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Öll mörk leiksins komu úr vítaspyrnum. Fótbolti 4. apríl 2021 16:00
Häcken í úrslit eftir sigur á Rosengård Häcken vann 1-0 sigur á Rosengård í dag er liðin mættust í undanúrslitum sænska bikarsins. Fótbolti 4. apríl 2021 15:45
Tottenham varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti Newcastle United og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust á St. James´s Park í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Enski boltinn 4. apríl 2021 15:10
Man United tapaði óvænt meðan hin toppliðin unnu María Þórisdóttir lék allan leikinn er Manchester United tapaði óvænt gegn Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea, Arsenal og Manchester City unnu öll sína leiki. Enski boltinn 4. apríl 2021 15:01
Jón Guðni í úrslit, Sverrir Ingi tapaði en Guðlaugur Victor var ekki með Jón Guðni Fjóluson er kominn í úrslit sænska bikarsins í knattspyrnu. Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað er PAOK tapaði stórt og Guðlaugur Victor Pálsson fékk frí. Fótbolti 4. apríl 2021 14:20
Karólína Lea kom ekki við sögu er Bayern datt út úr bikarnum Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Bayern München er liðið tapaði 2-0 gegn Wolfsburg í undanúrslitum þýska bikarsins í knattspyrnu. Wolfsburg mætir Eintracht Frankfurt, liði Alexöndru Jóhannsdóttur, í úrslitum. Fótbolti 4. apríl 2021 14:05
Southampton kom til baka og vann Burnley í stórskemmtilegum leik Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley hentu frá sér 2-0 forystu er liðið heimsótti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 3-2 Southampton í vil eftir frábæra endurkomu. Enski boltinn 4. apríl 2021 12:55
Íslendingaliðum spáð efstu þremur sætunum sem og þremur neðstu Sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefst eftir tvær vikur og hefur Twitter-reikningurinn Damallsvenskan Nyheter birt spá sína fyrir komandi tímabil. Þrjú efstu liðin eiga það sameiginlegt að vera með Íslending innanborðs. Fótbolti 4. apríl 2021 12:46
Áhorfendur leyfðir á úrslitaleik enska deildarbikarsins Breska ríkisstjórnin staðfesti í dag að það verða áhorfendur leyfðir á úrslitaleik enska deildarbikarsins í knattspyrnu. Enski boltinn 4. apríl 2021 12:00
Kjartan Henry frá næstu þrjár til fjórar vikurnar Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður danska knattspyrnuliðsins Esbjerg, verður frá næstu 3-4 vikurnar. Það er högg fyrir liðið sem er í harðri baráttu um að komast upp í dönsku úrvalsdeildina. Fótbolti 4. apríl 2021 11:01
Hópsmit hjá tyrkneska landsliðinu Nokkrir leikmenn tyrkneska landsliðsins í knattspyrnu hafa greinst með kórónaveiruna. Þeirra á meðal er Caglar Söyüncü, varnarmaður Leicester, en Brendan Rodgers, stjóri liðsins, staðfesti það í samtali við Sky Sports. Fótbolti 4. apríl 2021 09:00
Alan Shearer vill að lið geti gert tímabundnar skiptingar er leikmenn fá höfuðhögg Alan Shearer, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, vill sjá innleiddar nýjar reglur ef leikmenn fá höfuðhögg. Shearer vill að þjálfarar geti gert tímabundnar skiptingar ef leikmenn fá höfuðhögg. Fótbolti 4. apríl 2021 08:00
Arteta: Þeir voru betri á öllum sviðum Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var eðlilega mjög ósáttur eftir 3-0 tap sinna manna gegn Liverpool á heimavelli. Arteta segir að hann taki ábyrgð á tapinu. Enski boltinn 3. apríl 2021 22:01
Liverpool keyrði yfir Arsenal í seinni hálfleik Liverpool vann í kvöld mikilvægan sigur gegn Arsenal í baráttunni um meistaradeildarsæti. Lokatölur 0-3, en það voru Diogo Jota og Mohamed Salah sem sáu um markaskorunina. Enski boltinn 3. apríl 2021 20:55
Inter með átta stiga forskot á toppnum Bologna tók á móti Inter í Serie A á Ítalíu í kvöld. Inter er í harðri baráttu um titilinn og því kom ekkert annað til greina en sigur. Loktölur 0-1 þar sem Romelu Lukaku skoraði eina mark leiksins. Fótbolti 3. apríl 2021 20:40
Albert skoraði sigurmark AZ Alkmaar Albert Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar unnu í dag góðan 1-0 sigur gegn Willem II. Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar og hann skoraði eina mark leiksins. Fótbolti 3. apríl 2021 19:55
Aron Einar lagði upp í tapi Al Arabi Aron Einar Gunnarsson og félagar í Al Arabi fengu Al Duhail í heimsókn í dag. Aron Einar var í byrjunarliðinu á miðjunni hjá Al Arabi, en þurfti að sætta sig við 2-3 tap. Aron Einar lagði upp seinna mark heimamanna. Fótbolti 3. apríl 2021 19:25
Bayern jók forskotið á toppnum RB Leipzig og Bayern Munich áttust við í toppslag þýsku deildarinnar í dag. Liðin í fyrsta og öðru sæti deildarinnar og Leipzig hefði getað saxað á forskot Bayern. Það voru þó þýsku meistararnir sem kláruðu mikilvægan 1-0 útisigur. Fótbolti 3. apríl 2021 18:35
Tölfræðilega ómögulegt fyrir Liverpool að verja titilinn eftir sigur Manchester City Manchester City heimsótti Leicester í ensku úrvalsdeildinni í dag og unnu nokkuð þægilegan 0-2 sigur. Benjamin Mendy og Gabriel Jesus sáu um markaskorunina. Sigurinn þýðir að nú er tölfræðilega ómögulegt fyrir Liverpool að verja titilinn. Fótbolti 3. apríl 2021 18:21
Ronaldo bjargaði stigi fyrir Juventus Juventus heimsótti nágranna sína í Torino í ítalska boltanum í dag, en Torino hafði fyrir leikinn einungis unnið eina af seinustu 29 viðureignum liðanna. Juventus á enn smá von á að verja titilinn, en 2-2 jafntefli gegn Torino sem situr í 17. sæti setur strik í reikninginn. Fótbolti 3. apríl 2021 17:59
Tvö rauð spjöld og PSG missti toppsætið Lille vann í dag góðan útisigur gegn Paris Saint-Germain í toppslag frönsku úrvalsdeildarinnar. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn, en PSG með betri markatölu. Lille gerði sér lítið fyrir og vann 1-0, og hrifsaði þar með toppsætið af frönsku risunum. Fótbolti 3. apríl 2021 17:06
Chelsea spilaði illa af því við spiluðum vel Sam Allardyce var eðlilega sáttur með frammistöðu sinna manna í West Bromwich Albion eftir að liðið vann frækinn 5-2 útisigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 3. apríl 2021 16:30
Vonir Dortmund um Meistaradeildarsæti fara dvínandi Það stefnir í að Borussia Dortmund verði ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liðið tapaði 2-1 á heimavelli fyrir Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 3. apríl 2021 15:30
Atalanta og Napoli með mikilvæga sigra Það var mikil spenna í leikjum dagsins sem nú eru búnir í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Atalanta og Napoli unnu bæði mikilvæga sigra í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Fótbolti 3. apríl 2021 15:15
Fimm mörk á hálftíma tryggðu West Ham fyrsta sigur ársins Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn er West Ham United vann ótrúlegan 5-0 sigur á Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag. Er þetta fyrsti sigur West Ham í deildinni á þessu ári. Enski boltinn 3. apríl 2021 15:01
Enn tapar Le Havre Íslendingalið Le Havre tapaði enn einum leiknum í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið falli úr efstu deild. Í dag tapaði liðið 2-0 á heimavelli fyrir Dijon. Fótbolti 3. apríl 2021 14:31
Markvörðurinn lagði upp er WBA vann einkar óvæntan sigur á Brúnni West Bromwich Albion vann einkar óvæntan, en magnaðan, 5-2 útisigur á Chelsea í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Thomas Tuchel hafði stýrt Chelsea í 14 leikjum án ósigurs fyrir leik dagsins. Enski boltinn 3. apríl 2021 13:30
Verratti kominn með Covid í annað sinn Það á ekki af Marco Veratti, miðjumanni Paris Saint-Germain, að ganga en hann greindist með Covid-19 í annað sinn er leikmannahópur PSG var skimaður í gær. Fótbolti 3. apríl 2021 13:00
AC Milan tapaði óvænt stigum á heimavelli Sampdoria heimsótti AC Milan í fyrsta leik Seria A-deildarinnar á Ítalíu í fyrsta leik eftir landsleikjahlé. Gestirnir voru hársbreidd frá því að vinna óvæntan 1-0 útisigur en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Fótbolti 3. apríl 2021 12:31