Segir að það hafi verið mistök að reka Willum Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, viðurkennir að hafa gert mistök þegar Willum Þór Þórssyni var sagt upp sem þjálfara liðsins um mitt sumar 2009. Íslenski boltinn 23. nóvember 2021 09:00
Pissaði á ljósmyndara á meðan að Viðar spilaði og skoraði Norska knattspyrnufélagið Brann hefur sett stuðningsmann í bann frá leikjum vegna atviks sem átti sér stað í útileik liðsins gegn Sandefjord á sunnudaginn. Fótbolti 23. nóvember 2021 08:03
Telur Ronaldo helsta vandamál næsta þjálfara Man United Endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United var með stærri félagaskiptum sumarsins í knattspyrnuheiminum. Endurkoman hefur þó ekki verið neinn dans á rósum enda gengi liðsins verið upp og ofan. Enski boltinn 23. nóvember 2021 07:01
Braut viljandi á Azpilicueta og myndi gera það aftur Það er sjaldan lognmolla í kringum hinn fertuga Zlatan Ibrahimović. Hann er leikmaður AC Milan á Ítalíu og sneri til baka í sænska landsliðið á dögunum. Þar komst hann í heimsfréttirnar fyrir að keyra harkalega inn í César Azpilicueta, leikmann Chelsea og Spánar. Fótbolti 22. nóvember 2021 23:30
Ramos loksins klár í slaginn Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos verður í leikmannahópi París Saint-Germain er liðið sækir Manchester City heim í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Ramos hefur verið frá vegna meiðsla síðan hann gekk í raðir PSG í sumar. Fótbolti 22. nóvember 2021 21:45
Bestu leikmenn ársins: Barcelona og PSG einoka listana Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur birt lista yfir þau sem eru tilnefnd sem leikmenn ársins. Segja má að það þeir sömu og venjulegu séu tilnefndir hjá körlunum á meðan ofurlið Barcelona einokar listann í kvennaflokki. Fótbolti 22. nóvember 2021 19:16
Hent niður í grasið eftir að hafa hæðst að andstæðingnum Myndband af Þorleifi Úlfarssyni, leikmanni Duke í bandaríska háskólafótboltanum, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Í myndbandinu hæðist Þorleifur að markverði andstæðinga sinna í leik og fær það í kjölfarið óþvegið frá öðrum leikmanni andstæðingsins. Fótbolti 22. nóvember 2021 18:42
Dagný í liði vikunnar á Englandi Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir var valin í lið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hún skoraði sigurmark West Ham United gegn Tottenham Hotspur í 1-0 sigri í gær, sunnudag. Fótbolti 22. nóvember 2021 18:31
Southgate stýrir enska landsliðinu til 2024 Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, hefur skrifað undir nýjan samning við enska knattspyrnusambandið. Hann mun stýra enska karlalandsliðinu í knattspyrnu til desember 2024 hið minnsta. Fótbolti 22. nóvember 2021 17:46
Talið að Zlatan sleppi úr búrinu og met Tottis gæti fallið Meistaradeild Evrópu í fótbolta heldur áfram í þessari viku og Zlatan Ibrahimovic fær þá tækifæri til að skrá sig í sögubækurnar sem elsti markaskorari keppninnar frá upphafi. Fótbolti 22. nóvember 2021 16:01
Mourinho þurfti að kaupa fokdýra skó fyrir hetju Roma José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, þarf að efna loforð sem hann gaf Felix Afena-Gyan, hetju liðsins gegn Genoa, og kaupa rándýra skó handa honum. Fótbolti 22. nóvember 2021 15:31
Solskjær heiðraður með risastóru ljósaskilti í heimaborginni Íbúar Kristiansund í Noregi eru mjög stoltir af frægasta syni borgarinnar, Ole Gunnar Solskjær, jafnvel þegar á móti blæs. Enski boltinn 22. nóvember 2021 15:00
Woodward íhugar að vera áfram hjá United Ed Woodward, hinn óvinsæli stjórnarformaður Manchester United, gæti frestað starfslokum sínum hjá félaginu til að hjálpa til við að finna nýjan knattspyrnustjóra. Enski boltinn 22. nóvember 2021 14:00
Derby drottningin Dagný kát í leikslok Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir var hetja West Ham liðsins í sigri í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í gær. Enski boltinn 22. nóvember 2021 13:32
„Svíður ekki“ þegar Val er lýst sem fasteignafélagi: „Snertum ekki höfuðstólinn“ Formaður knattspyrnudeildar Vals segir að Valsmenn séu staðráðnir í að fara vel með sterka fjárhagsstöðu sína og það angri sig ekki þó að „einhverjir félagar á Twitter“ lýsi félaginu sem fasteignafélagi. Fótbolti 22. nóvember 2021 13:01
Bruce meira en klár í að taka við United Steve Bruce er meira en tilbúinn til að taka við Manchester United sem er í stjóraleit eftir að Ole Gunnar Solskjær var leystur undan störfum í gær. Enski boltinn 22. nóvember 2021 12:01
Flösku aftur grýtt í Payet og óöldin lengist í frönskum fótbolta Ólæti áhorfenda halda áfram að varpa skugga á leiktíðina í frönsku 1. deildinni í fótbolta. Í gær varð að blása af leik Lyon og Marseille eftir að flösku var kastað í höfuð Dimitri Payet á fimmtu mínútu leiksins. Fótbolti 22. nóvember 2021 11:00
„Þeir sögðu hluti sem ég átti mjög erfitt með að fyrirgefa“ Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir að ásakanir FH-inga um að hann hafi tekið hluta af sölu leikmanna til sín hafi fengið á sig. Fótbolti 22. nóvember 2021 10:30
Sky Sports: Pochettino áhugasamur um Man. United starfið Leitin að eftirmanni Ole Gunnars Solksjær í stjórastólnum hjá Manchester United er áberandi í öllum miðlum og margt bendir til þess að Argentínumaður muni taka við liðinu. Enski boltinn 22. nóvember 2021 09:57
Stuðningsmaður kærður fyrir líkamsárás en leikmaðurinn fékk rautt spjald Þau geta stundum verið frekar ósanngjörn rauðu spjöldin sem knattspyrnuleikmenn fá og gott dæmi um það var í leik Aberdeen og Dundee United í skosku deildinni um helgina. Fótbolti 22. nóvember 2021 09:30
Garðar lenti í einelti í Búlgaríu: Sitja í klefanum, benda á mann og hlæja Garðar Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, greindi frá því í viðtali um helgina að á árum sínum hjá CSKA Sofiu í Búlgaríu hefði hann lent í einelti af hálfu liðsfélaga. Fótbolti 22. nóvember 2021 09:01
Zidane hefur ekki áhuga á að taka við af Solskjær Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United hafa kannað möguleikann á að fá Zinedine Zidane sem næsta knattspyrnustjóra félagsins. Frakkinn hefur hins vegar ekki áhuga. Enski boltinn 22. nóvember 2021 08:00
Glenn tekur við þjálfun ÍBV Trínidadinn Jonathan Glenn mun þjálfa lið ÍBV í efstu deild kvenna á næstu leiktíð. Fótbolti 22. nóvember 2021 07:00
Guðmundur á bekknum þegar New York City komst áfram Guðmundur Þórarinsson og félagar hans í New York City eru komnir áfram í úrslitakeppni MLS deildarinnar í fótbolta. Fótbolti 21. nóvember 2021 22:20
18 ára Ganverji tryggði lærisveinum Mourinho langþráðan sigur Jose Mourinho batt enda á þriggja leikja hrinu AS Roma án sigurs í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 21. nóvember 2021 21:55
Solskjær grátklökkur í viðtali þar sem hann kveður Man Utd Það voru miklar tilfinningar í spilinu þegar Ole Gunnar Solskjær var látinn taka pokann sinn hjá Manchester United í morgun enda er Norðmaðurinn í miklum metum hjá félaginu eftir glæstan leikmannaferil sinn. Enski boltinn 21. nóvember 2021 21:16
Elías Rafn vermdi bekkinn þegar Midtjylland tapaði öðrum leiknum í röð Jonas Lössl stóð á milli stanganna hjá Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið fékk Bröndby í heimsókn. Fótbolti 21. nóvember 2021 19:19
Inter fyrstir til að leggja Napoli að velli Inter Milan kom sér af krafti í toppbaráttuna í ítölsku úrvalsdeildinni í dag með því að verða fyrsta liðið til að leggja Napoli að velli á tímabilinu. Fótbolti 21. nóvember 2021 19:11
Þurftu að gera hálftíma hlé vegna snjóþyngsla í Bodo Alfons Sampsted lék allan leikinn þegar lið hans, Bodo/Glimt, vann öruggan heimasigur á Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 21. nóvember 2021 18:51
Tottenham kom til baka og vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Conte Antonio Conte náði í sinn fyrsta sigur sem knattspyrnustjóri Tottenham þegar lið hans lagði Leeds að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 21. nóvember 2021 18:29