Enski boltinn

Enski boltinn

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.

Leikirnir





    Fréttamynd

    Sir Alex ætti að hætta núna

    Jim McLean, fyrrum stjóri Dundee og góður vinur Alex Ferguson, segir að hann ætti að láta af störfum eftir glæstan sigur hans manna í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppninni í vor.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Við söknuðum Agger mikið

    Rafa Benitez segir að meiðsli Daniel Agger hafi verið Liverpool dýr í vetur og segir þau eina af ástæðunum fyrir því að lið hans náði ekki lengra í deildinni en raun bar vitni.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Redknapp dæmdar skaðabætur

    Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp og kona hans fengu í dag greiddar skaðabætur vegna innrásar lögreglu á heimili þeirra hjóna í nóvember á síðasta ári.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Rólegt teiti hjá leikmönnum United

    Leikmenn Manchester United virðast hafa verið nokkur rólegir í teitinu eftir sigurinn í Meistaradeildinni í gær. Bresku blöðin náðu þannig lítið að toga upp úr leikmönnum þegar þeir bjuggu sig til heimferðar.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Þrettán handteknir í Lundúnum

    Þrettán manns voru handteknir í vesturhluta Lundúna í gærkvöld eftir að til óláta kom eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Stuðningsmenn Chelsea héltu þá út á götur og virðast einhverjir þeirra hafa tekið tapinu illa.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Schwarzer til Fulham

    Ástralski markvörðurinn Mark Schwarzer gekk í dag í raðir Fulham frá Middlesbrough. Schwarzer er 35 ára gamall og hefur varið mark Boro í 11 ár. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Lundúnafélagið.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    John Terry mun ná sér

    Félagar John Terry í enska landsliðinu eru á því að varnarmaðurinn muni ná sér eftir áfallið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær þar sem hann klúðraði vítaspyrnu sem hefði geta fært Chelsea Evrópumeistaratitilinn.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Ronaldo vill engu lofa

    Cristiano Ronaldo vill ekki gefa nein loforð út um framtíð sína hjá Manchester United og hefur með því kveikt enn á ný í orðrómum um að hann muni fara frá félaginu.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Barton hefur afplánun í dag

    Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle hefur sex mánaða afplánun sína í fangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um alvarlega líkamsárás í Liverpool um jólin í fyrra.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Kirkland framlengir við Wigan

    Markvörðurinn Chris Kirkland hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Wigan um fjögur ár. Kirkland var í fínu formi í vetur og náði sér í samning við félagið eftir að hafa komið þangað sem lánsmaður frá Liverpool árið 2006.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Nasri til Arsenal?

    Arsenal hefur augastað á Samir Nasri, miðjumanni Marseille. Þessi tvítugi leikmaður er með klásúlu í samningi sínum um að 13,5 milljónir punda þurfi til að losa hann undan samningi.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Davids á leið frá Ajax

    Samningur Edgar Davids við Ajax rennur út í sumar og verður ekki endurnýjaður. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

    Fótbolti