Enski boltinn

Mourinho finnur til með Chelsea

NordcPhotos/GettyImages

Jose Mourinho segist finna til með Chelsea eftir tapið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og segir liðið ekki hafa átt skilið að tapa.

"Ég er dapur yfir þessu. Það er súrt fyrir bláu fjölskylduna að tapa leik í undanúrslitum á draugamarki, öðrum undanúrslitaleik í vítaspyrnukeppni og nú enn einum í lokaúrslitum í vítakeppni. Chelsea var líka nær því að vinna í venjulegum leiktíma," sagði Mourinho.

Hann segist þó gleðjast fyrir hönd landa sinna í liði Manchester United.

"Ég óska United til hamingju, Alex Ferguson og þá ekki síst löndum mínum Ronaldo og Nani. Þegar portúgölsku liðin vinna keppnina svona sjaldan, er amk gott að sjá fulltrúa þjóðarinnar vinna með öðrum liðum," sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×