Enski boltinn

Redknapp dæmdar skaðabætur

Redknapp hefur hlotið uppreisn æru
Redknapp hefur hlotið uppreisn æru NordcPhotos/GettyImages

Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp og kona hans fengu í dag greiddar skaðabætur vegna innrásar lögreglu á heimili þeirra hjóna í nóvember á síðasta ári.

Redknapp og kona hans voru vakin fremur óþægilega fyrir dögun þegar lögregla réðist inn á heimili þeirra í tengslum við rannsókn á spillingu í knattspyrnunni.

Blaðaljósmyndarar náðu myndum af innrásinni, sem fékk mjög á knattspyrnustjórann.

Lögreglu var einnig gert að greiða 25% af málskostnaði, en sýnt þótti að leitarheimild hefði ekki legið fyrir þegar innrásin á heimili Redknapp átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×