Enski boltinn

Sir Alex ætti að hætta núna

AFP

Jim McLean, fyrrum stjóri Dundee og góður vinur Alex Ferguson, segir að hann ætti að láta af störfum eftir glæstan sigur hans manna í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppninni í vor.

"Ég sagði við Doris konu mína að Alex ætti að hætta núna þegar United vann vítakeppnina. Það er nánast ómögulegt að toppa þetta sem hann var að gera. Það er samt ómögulegt að segja hvað hann gerir. Hann virkar mjög ferskur og það getur vel verið að hann haldi eitthvað áfram. Ég segi honum alltaf að hætta á toppnum, en hann hlustar ekki á mig frekar en konan mín,"sagði McLean í samtali við Sun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×