Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Bandarísk kona, sem sofnaði undir stýri og olli alvarlegu umferðarslysi í Borgarfirði árið 2023, var dæmd í þrjátíu daga fangelsi auk þess að vera svipt ökuréttidum í sex mánuði í Héraðsdómi Vesturlands. Var það mat dómara að konan hefði gerst sek um stórkostlegt gáleysi við akstur bifreiðarinnar. Innlent 13. júní 2025 22:59
VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð. Innlent 10. júní 2025 13:48
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna göngumanns á Hafnarfjalli sem slasaði sig. Innlent 6. júní 2025 23:05
Gimbur borin með svart hjarta á bakinu Á Ferjubakka í Borgarfirði var gimbur borin í dag með svart hjarta í ullinni. Bóndinn segist ekki hafa séð annað eins á ferlinum en tekur undir með blaðamanni að þetta hljóti að boða gott sumar. Lífið 23. maí 2025 20:38
SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur miklar áhyggjur af mikilli hækkun á kostnaði vegna fjárhagsaðstoðar við flóttamenn og áhrif þess á fjárhag sveitarfélagsins. Mikill fjöldi þeirra 180 flóttamanna sem býr á Bifröst þiggur fjárhagsaðstoð og fellur kostnaðurinn á sveitarfélagið í fyrsta sinn í ár. Innlent 21. maí 2025 07:38
„Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Það var snemma dags fimmtudaginn 30. mars árið 2006 sem RAX fékk ábendingu um mikla sinuelda á Mýrum norðan við Borgarnes. Lífið 13. maí 2025 06:34
Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist við Grjótárvatn ofan við Mýrar í Borgarbyggð í morgun. Annars jafnstór mældist í síðasta mánuði og skjálftarnir eru þeir stærstu síðan jarðhræringar hófust í Ljósufjallakerfinu árið 2021. Innlent 8. maí 2025 06:55
Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Þann 30. mars árið 2006 kviknaði sinueldur við þjóðveg 54, norðvestan við Borgarnes, en þessi sinueldur átti eftir að verða sá stærsti í Íslandssögunni. Lífið 4. maí 2025 12:15
Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Tilkynning barst slökkviliði Borgarfjarðar um sinueld við Húsafell um hádegið í dag. Búið var að ráða niðurlögum eldsins um þrjúleytið. Innlent 26. apríl 2025 15:56
Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Stærsti skjálftinn, sem mælst hefur frá því að jarðhræringar hófust í Ljósufjallakerfinu árið 2021, mældist í morgun, 3,7 að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir að þáttaskil hafi orðið síðastliðinn föstudag þegar skjálftavirkni jókst til muna. Innlent 15. apríl 2025 12:30
Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir klukkan átta í morgun við Grjótárvatn á Mýrum í Borgarbyggð. Þetta er stærsti skjálfti sem hefur mælst nálægt Ljósufjallakerfinu síðan virkni hófst þar árið 2021. Innlent 15. apríl 2025 08:52
Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Tugir jarðskjálfta hafa mælst síðustu klukkustundir í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi, á milli Grjótárvatns og Langavatns á Vesturlandi. Innlent 12. apríl 2025 19:35
Hans leiðir vinnu við mögulega sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Hans Guttormur Þormar hefur verið ráðinn verkefnastjóri í viðræðum um mögulega sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Viðskipti innlent 24. mars 2025 13:24
Tóku fyrstu skóflustunguna að nýju fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi Fyrsta skóflustungan að nýju fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi var tekin í gær. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun haustið 2026. Innlent 21. mars 2025 11:15
Leit hætt í Borgarnesi og staðan metin með morgninum Björgunarsveitir af Vesturlandi sem voru kallaðar út til leitar vestan við Borgarnes í gær hættu aðgerðum á miðnætti. Innlent 14. mars 2025 07:33
Björgunarsveitir við leit í Borgarnesi Björgunarsveitir á Vesturlandi leita nú vestan við Borgarnes. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði við leit en aðgerðinni sé stýrt af lögreglu. Innlent 13. mars 2025 22:56
Þrjú banaslys á fjórum dögum Þrír hafa látið lífið í umferðarslysum á síðustu fjórum dögum, þar á meðal barn á öðru aldursári. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir aðdraganda banaslyss sem varð í Berufirði í dag enn til rannsóknar. Innlent 9. mars 2025 19:01
Barn á öðru aldursári lést Barn á öðru aldursári lést í umferðarslysi þegar rúta og jepplingur skullu saman á Vesturlandsvegi. Innlent 9. mars 2025 13:34
Hagnaður jókst um tæpan helming milli ára Hagnaður samstæðu Orkuveitunnar í fyrra nam 9,3 milljörðum króna í fyrra. Það gerir aukningu upp á 45 prósent milli ára. Viðskipti innlent 7. mars 2025 16:00
Holtavörðuheiðinni lokað Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað vegna færðar og veðurs. Appelsínugul veðurviðvörun fer í gildi á svæðinu í kvöld. Innlent 2. mars 2025 13:13
Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST Matvælastofnun hefur lokið aðgerðum á sauðfjárbúi í Borgarfirði vegna ítrekaðra brota á velferð dýra og ábúendur höfðu endurtekið ekki orðið við kröfum um úrbætur með fullnægjandi hætti. Alls hefur kindum verið fækkað um sex hundruð í aðgerðum stofnunarinnar. Innlent 28. febrúar 2025 12:35
„Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Dýraverndunarsinni gagnrýnir að Matvælastofnun sendi um 200 kindur af bænum Höfða í Þverárhlíð til slátrunar rétt fyrir sauðburð. Tímasetning aðgerðanna sé grimmileg. Yfirdýralæknir segir Matvælastofnun ekki tjá sig um einstaka mál en segir þó að loks sjái fyrir endann á krónísku dýravelferðarmáli í Borgarfirðinum. Innlent 26. febrúar 2025 19:22
Fjárfestum í vegakerfinu Það er óviðunandi ástand að vegakerfið á Íslandi sé að brotna undan eigin þunga. Sá augljósi skortur sem orðið hefur á viðhaldi og nýfjárfestingu í vegakerfi landsins leiðir af sér kostnað fyrir atvinnulíf og íbúa og tækifæri glatast til nýrrar verðmætasköpunar. Skoðun 19. febrúar 2025 18:31
Pottur fyrrverandi þingmanns hvarf í óveðrinu Heitur pottur sem hefur staðið um áratugaskeið við heimili Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi þingmanns, í Borgarbyggð fauk í óveðrinu áðan. Innlent 5. febrúar 2025 20:35
Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst Karlmaður sem var ákærður fyrir að keyra undir áhrifum og valda hörðum árekstri var metinn ósakhæfur af Héraðsdómi Vesturlands. Manninum var þó gert að greiða kona sem slasaðist alvarlega í árekstrinum þrjár milljónir í miskabætur. Þá þarf hann að greiða 410 þúsund króna sekt innan fjögurra vikna, ellegar þarf hann að sitja 24 daga í fangelsi. Innlent 31. janúar 2025 14:34
Rannsaka ólöglegt fiskeldi veiðifélags í Borgarfirði Veiðifélag í Borgarfirðir stundaði það sem er talið ólöglegt fiskeldi í húsnæði í Borgarfirði án tilskilanna rekstrar- og starfsleyfa. Matvælastofnun segist vera með málið til rannsóknar. Innlent 17. janúar 2025 12:15
Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Nýleg brú hrundi í vatnavöxtum á Vesturlandi. Að sögn Vegagerðar átti hún að standa mun lengur en íbúar á svæðinu höfðu gagnrýnt smíðina og segja málið algjört klúður. Innlent 15. janúar 2025 21:09
Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Brúin yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði er fallin í talsverðum vatnavöxtum. Brúin var reist árið 2023 í kjölfar þess að eldri brú skemmdist í vatnavöxtum. Heimamenn á svæðinu gagnrýndu smíði brúarinnar á sínum tíma og töldu víst að hún myndi ekki endast. Innlent 15. janúar 2025 10:24
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði á nýjan leik. Innlent 15. janúar 2025 10:22
Ferðamönnum bjargað af þaki bíls við Kattarhryggi Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út vegna tilkynningar frá ferðamönnum í vandræðum við Kattarhryggi, á leið upp á Holtavörðuheiði, á fimmta tímanum í nótt. Innlent 15. janúar 2025 07:52