Fleiri fréttir

HS Orka hagnast um rúman milljarð

HS Orka hagnaðist um rúman milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í uppgjöri sem félagið hefur sent til Kauphallarinnar.

Þórarinn: „Milljón dollara spurningin“

Stýrivextir hafa hækkað um nærri tvö prósentustig á rúmlega einu ári og eru nú sex prósent, en aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands segir að á meðan verðbólgan sé langt fyrir ofan verðbólgumarkmið þá verði vextir einnig háir.

Viðræður hafnar um að lengja í skuldabréfi Landsbankans

Viðræður um að lengja í lánum nýja landsbankans gagnvart þrotabúi gamla Landsbankans eru hafnar og vonast Már Guðmundsson seðlabankastjóri til þess að áhættu fyrir íslenskt efnahagslíf verði eytt. Hann segir að útgreiðslur til kröfuhafa gömlu bankanna muni ekki fara fram nema að fjármálastöðugleiki sé að fullu tryggður.

Óráð að hækka stýrivexti

Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega stýrivaxtahækkun Seðlabankans, í morgun. Hann segir að þessi hækkun muni ekki verða til þess að lækka verðbólgu heldur fremur til að hækka hana. Á facebooksíðu sinni bendir hann á að Útlendingar eigi hér mikla fjármuni sem séu bundnir í krónum, þeir fái hærri vexti í kjölfarið sem þeir megi flygja út. Þannig muni eftirspurn eftir gjaldeyri aukast og krónan lækka. Innfluttar vörur muni hækka í verði og verðbólga þannig aukast.

Skuldir heimila og fyrirtækja hafa lækkað í ár

Skuldir fyrirtækja námu um 169% af vergri landsframleiðslu í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs og höfðu lækkað talsvert frá upphafi ársins þegar þær námu um 201% af landsframleiðslu. Á sama tíma höfðu skuldir heimila lækkað um sem nemur 6 prósentum af landsframleiðslu og námu um 108% af landsframleiðslu í lok september á þessu ári.

Seðlabankinn dregur úr hagvaxtarspá sinni

Seðlabankinn hefur dregið úr hagvaxtarspá sinni fyrir árið í ár og gerir nú ráð fyrir að hagvöxturinn verði 2,5%. Í fyrri spá bankans var gert ráð fyrir rúmlega 3% hagvexti á árinu.

Hagstofan mælir 4,5% atvinnuleysi í október

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í október s.l. að jafnaði 178.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 170.400 starfandi og 8.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,5%, hlutfall starfandi 75,9% og atvinnuleysi var 4,5%.

Jóhanna Waagfjörð til liðs við Skeljung

Jóhanna Waagfjörð hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Skeljungs. Gerðar hafa verið breytingar á skipulagi fyrirtæksins, sem forstjórinn segir í bréfi til starfsmanna, að sé ætlað að einfalda boðleiðir og ákvarðanatöku.

Vilja framselja lóðir til verktaka og gera upp skuldir

Ríflega 600 milljóna króna skuld Sunnuhlíðar við Landsbankann er úr sögunni ef að bæjarstjórn Kópavogs samþykkir framsal á lóðum til verktakafyrirtækisins Jáverks, en málið er á dagskrá fundar bæjarstjórnarinnar í dag. Bæjarlögmaður Kópavogs segir aðeins mögulegt að leyfa framsalið ef byggð verður upp sambærileg starfsemi og Sunnuhlíð.

Lítill áhugi á lánum frá Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður hafði lánað 10,6 milljarða króna það sem af er ári, miðað við stöðuna eins og hún var í lok október. Sjóðurinn hafði aftur á móti lánað 19,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. Alls hefur Íbúðalánasjóður veitt 1.097 almenn íbúðalán frá áramótum í samanburði við 1.908 lán á sama tímabili í fyrra. Ástæðan fyrir þessari lækkun er sú að viðskiptabankarnir eru farnir að veita óverðtryggð lán, en ekki Íbúðalánasjóður.

Atvinnuleysi eykst - rúmlega 8000 án atvinnu

Skráð atvinnuleysi í október síðastliðnum var 5,2%, en að meðaltali voru 8.187 atvinnulausir í október og fjölgaði atvinnulausum um 305 að meðaltali frá september eða um 0,3 prósentustig.

Vilja leggja bílanefndina niður

Ríkisendurskoðun telur að bílanefnd ríkisins, sem hefur eftirlit með bifreiða- og akstursmálum stofnana, sé óþörf og það beri að leggja hana niður. Kaup stofnana á bifreiðum eigi að vera samkvæmt rammasamningum, líkt og önnur innkaup þeirra á vöru og þjónustu.

Sighvatur: Búinn að fá "meira en nóg af stöðugu sífri fólks“

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, segist vera búinn að fá "meira en nóg af stöðugu sífri fólks, sem sér fátt annað en sjálft sig,“ og vitnar þar til fólks á Íslandi á aldrinum 30 til 45 ára, sem hann kallar sjálfhverfu kynslóðina. Í tveimur greinum í Fréttablaðinu, annarri sem birtist á laugardaginn og síðan þeirri síðari sem birtist í dag, segir hann "sjálfhverfu kynslóðina“ gera kröfu um að fá allt fyrir ekkert, og kenna fólki um eigin vandamál. Þá segir hann "sjálfhverfu kynslóðina“ ekki hafa hlustað á ítrekuð viðvörunarorð um lán í erlendri mynt á meðan tekjurnar eru í krónum.

Panamaflækjur afhjúpast ekki strax

"Það eru nokkur mál á borðinu hjá okkur sem eru með þræði til Panama, þannig að þetta gæti skipt máli,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri um nýundirritaðan upplýsingaskiptasamning við Panama sem fjármálaráðuneytið kynnti í gær.

Vikuveltan á fasteignamarkaði borgarinnar 3,9 milljarðar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 108. Þar af voru 73 samningar um eignir í fjölbýli, 26 samningar um sérbýli og 9 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Fólkið fái sjálft að kjósa stjórnir lífeyrissjóðanna.

Pétur Blöndal er þessa dagana að leggja lokahönd á frumvarp þess efnis að sjóðsfélagar í lífeyrissjóðum geti sjálfir kosið stjórnir sjóðanna. Hann segir að frumvarpið sé eitt mikilvægasta hagsmunamál heimilanna. Pétur hefur áður lagt frumvarpið fram á fyrri þingum en það hefur ekki verið afgreitt. Pétur bendir á að hver fjölskylda eigi að meðaltali 17 milljónir í lífeyrissjóðum.

LSR keypti fyrir rúman milljarð í Icelandair

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins keypti 3% hlut Framtakssjóðsins í Icelandair Group í morgun fyrir 1140 milljónir. Eftir viðskiptin á Lífeyrissjóðurinn rúmlega 12% hlut í Icelandair.

Viðbrögðin verða ljós á næstunni

Bankastjóri Landsbankans segir að það muni skýrast á næstu dögum hvernig bankinn muni bregðast við dómi héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku um að óheimilt sé að endurreikna vexti gengistryggðs bílaláns afturvirkt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka að bankanum væri óheimilt að reikna afturvirka vexti á gengistryggðu láni í samræmi við hins svokölluðu Árna Páls lög.

Greining spáir 25 punkta hækkun

Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 14. nóvember næstkomandi. Meginforsenda hækkunarinnar mun vera dekkri verðbólguhorfur í ljósi þróunar gengis krónunnar undanfarið. Á móti vegur að heldur hægir nú á vexti innlendrar eftirspurnar og að verðbólguþróunin undanfarið hefur verið öllu hagfelldari en gert var ráð fyrir í síðustu spá Seðlabankans, sem er frá því í ágúst síðastliðnum.

Hæstiréttur hafnaði kröfu Gunnars

Hæstiréttur Íslands hafnaði á föstudag kröfu Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, um að aflað yrði gagna um viðskipti Bogmannsins, félags Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns. Málið tengist ákæru á hendur Gunnari fyrir brot á þagnarskyldu í starfi, en málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um þessar mundir. Hann er grunaður um að hafa haft milligöngu um það að gögnum um fyrirtæki Guðlaugs yrði lekið úr Landsbankanum í DV. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfu Gunnars.

Framtakssjóðurinn seldi fyrir 2,7 milljarða

Framtakssjóður Íslands hefur selt sjö prósenta hlut í Icelandair fyrir 2,7 milljarða króna, en hann á eftir söluna ríflega tólf prósent hlut í félaginu. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað mikið eftir að rekstur þess var endurskipulagður og það skráð á markað á nýjan leik.

Spáir hækkun stýrivaxta í vikunni

Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 14. nóvember næstkomandi.

Jón Þorsteinn flutti hundruð milljóna úr landi

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, hefur flutt mörg ­hundruð milljónir króna í erlendum gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta. Frá þessu greint í DV í dag.

Titringur vegna nauðasamninga - fundað með forsetanum

Skorað hefur verið á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að beita sér gegn því að nauðasamningar við kröfuhafa í þrotabú Kaupþings og Glitnis verði samþykktir. Hópur starfsmanna í fjármálageiranum óttast að útgreiðsla á hundruðum milljarða í erlendri mynt, geti grafið undan gjaldeyrisstöðu þjóðarbússins og valdið miklu efnahagstjóni.

Iceland Foods eignast hlut í Iceland á Íslandi

Iceland Foods Limited, félag í eigu Malcolms Walker, hefur keypt 37% hlut í Ísland-Verslun ehf, sem rekur Iceland verslunina á Íslandi. Hin 63% verða áfram í eigu Jóhannesar Jónssonar. Paul Foley mun taka sæti í stjórn Ísland-Verslun fyrir hönd Iceland Foods International.

Rúmlega 20 milljarða skuldir ríkisstofnana

Heildarskuldir ríkisstofnana námu rúmum 20 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þá vaxið um 45% á fjórum árum. Eftirliti ráðuneyta með skuldamálum stofnana er mjög ábótavant, segir í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni hvetur stofnunin fjármála- og efnahagsráðuneytið til að stuðla að því að úr þessu verði bætt.

HSÍ hafði betur gegn Kaupþingi

Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í morgun að tólf milljóna króna krafa sem Handknattleikssamband Íslands gerði í þrotabú Kaupþings yrði viðurkennd sem almenn krafa. Þá var jafnframt viðurkennt að Hanknattleikssambandið mætti skuldajafna þeirri kröfu við kröfu sem Kaupþing átti á Handknattleikssambandið vegna yfirdráttarskuldar.

Horfur á viðsnúningi til hins verra hjá ríkissjóði

Afkoma ríkissjóðs á miðju árinu var nokkru betri en reiknað var með í fjárlögum. Hins vegar eru horfur á að afkoman á árinu öllu verði um 2 milljörðum króna lakari en fjárlög gerðu ráð fyrir.

Vilmundur ómyrkur í máli: Aflið sogað úr atvinnulífinu

"Skattamál eru eitt helsta áhyggjuefni félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins,“ sagði Vilmundur Jósefsson, formaður stjórnar Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að sífelldar breytingar á sköttum komi illa við fyrirtækin og kalli stöðugt fram viðbrögð. "Ólíkt því sem stjórnvöld virðast trúa þá breyta skattar hegðan þeirra sem þá greiða. Skattstofnar breytast því og þeir geta rýrnað ef óskynsamlega er að þeim staðið eða ef skattahækkanir verða óhóflegar,“ segir hann.

Metvelta á íbúðamarkaðinum í borginni

Metvelta var á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í október, en samtals var 552 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og er þetta mesti fjöldi samninga sem sést hefur síðan í desember 2007.

Liv fékk markaðsverðlaunin

Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, og Marel voru verðlaunuð sem markaðsmaður og markaðsfyrirtæki ársins á Markaðsverðlaunum ÍMARK í gær.

Fullnaðarsigur fyrir rétti í Dubai

Stjórnarformaður íslenska snekkjusmíðafyrirtækisins Scandic International var í gær sýknaður af ákærum í máli á hendur honum sem höfðað var í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Vandamálin eru þegar farin að hrannast upp

Vandamálin á fasteignamarkaði eru farin að hrannast upp, segir forseti Alþýðusambands Íslands, en hann segir mörg dæmi þess að ungt fólk hafi hvorki efni á því að leigja húsnæði né kaupa.

Þorsteinn Már: Afar krefjandi tímar framundan í sjávarútvegi

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að afar krefjandi verði fyrir íslensks sjávarútvegsfyrirtæki að selja vöru á alþjóðamörkuðum á næstunni vegna fólk erlendis hafi mun minna milla handanna en áður. Nýleg aukning á þorskkvóta í Barentshafi, sem Rússa og Norðmenn njóta, geti einnig haft mikil áhrif hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir