Viðskipti innlent

Viðbrögðin verða ljós á næstunni

Höskuldur Kári Schram skrifar
Steinþór Pálsson er forstjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson er forstjóri Landsbankans. Mynd/ Valli.
Bankastjóri Landsbankans segir að það muni skýrast á næstu dögum hvernig bankinn muni bregðast við dómi héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku um að óheimilt sé að endurreikna vexti gengistryggðs bílaláns afturvirkt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka að bankanum væri óheimilt að reikna afturvirka vexti á gengistryggðu láni í samræmi við hins svokölluðu Árna Páls lög.

Landsbankinn og Lýsing hafi litið svo á niðurstaða Hæstaréttar eigi einungis við húsnæðislán eða langtímalán en ekki styttri lán eins og t.d. bílalán. Héraðsdómur Reykjavíkur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að dómur Hæstaréttar eigi einnig við um bílalán. Fulltrúar Landsbankans og Lýsingar gengu á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun til að gera grein fyrir sinni afstöðu í málinu.

Fréttastofa náði tali af Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, að loknum nefndarfundi í morgun. „Við erum að skoða það. málið er að þessi dómur sem féll í síðustu viku er ekki einn af þessum ellefu málum sem menn hafa verið að tala um að þyrfti að setja fram til þess að fá botn í málið. Þetta er að stofninum til eldra mál, þannig að menn komu ekki málsatriðum að sem menn hafa séð kannski ástæðu til að gera í framhaldi af hæstaréttardómum á þessu ári," segir hann.

Steinþór segir að þetta muni skýrast á næstunni. „Við erum byrjaðir að endurreikna. Við byrjuðum á lengstu lánunum og síðan er ætlunin að vinna sig í gegnum safnið smátt og smátt. En stærstu hagsmunir fyrir viðskiptavini eru í lengstu lánunum og þar munum við byrja. þetta er gríðarlegur fjöldi hjá okkur sem gæti verið til endurútreiknings og þótt við værum öll að vilja gerð þá vinnst það ekki á stuttum tíma. Við þurfum að byrja, forgangsraða og vinna okkur í gegnum þetta þannig að við erum byrjuð á langtímalánunum og svo skýrist myndin eftir því sem tíminn líður," segir hann.

Hann segir því miklar líkur á því að það sama mun gegna um skammtímalánin og langtímalánin. Hins vegar sé ekki gott að segja til um það hvenær endurútreikningur lánanna muni hefjast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×