Stýrivextir seðlabankans hækkaðir um 0,25 prósentur í 6 prósent 14. nóvember 2012 09:00 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Eru stýrivextir bankans nú 6 prósent, en verðbólga mældist í október 4,2 prósent. Vextir daglána eru nú 7 prósent, vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnanna 5 prósent, og vextir á veðlánum til sjö daga, þ.e stýrivextirnir, eru 6 prósent eins og áður sagði. Yfirlýsing Peningastefnunefndar Seðlabankans, vegna vaxtaákvörðunarinnar, er svohljóðandi: „Þjóðhagsspá Seðlabankans bendir til nokkru minni hagvaxtar í ár en spáð var í ágúst. Á móti kemur að hagvöxtur á næsta ári verður meiri en áður var spáð og horfurnar á spátímabilinu því svipaðar þrátt fyrir mótvind alþjóðlegrar efnahagsþróunar. Efnahagsbatinn heldur því áfram með vaxandi fjárfestingu og stöðugum vexti einkaneyslu, og slakinn í þjóðarbúskapnum hverfur á spátímabilinu. Verðbólga hefur verið nokkru minni en spáð var í ágúst. Horft fram á veginn vegast á meiri slaki í þjóðarbúskapnum um þessar mundir en spáð var í ágúst og töluvert lægra gengi krónunnar en þá var reiknað með. Á heildina litið eru verðbólguhorfurnar metnar svipaðar. Óvissa um gengisþróun á spátímanum leiðir til samsvarandi óvissu um þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði bankans, þótt þær hafi lækkað nokkuð á suma mælikvarða. Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta undanfarið rúmt ár og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Grunnspá Seðlabankans bendir til þess að núverandi nafnvextir bankans nægi til þess að verðbólgumarkmiðið náist á spátímanum. Það er þó m.a. háð því að endurskoðun kjarasamninga á nýju ári samrýmist hjöðnun verðbólgu að markmiðinu."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira