Fleiri fréttir Hafnarfjarðarbær semur um erlend lán 9.12.2011 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Þúsundir tilboða bárust í Haga Um þrjú þúsund tilboð bárust í hlutabréf í Haga í útboði sem lauk í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka nam heildarfjárhæð tilboðanna um 40 milljörðum króna. Fjárfestar gátu sent inn tilboð í á bilinu 100 þúsund krónur til 500 milljónir króna, en vegna mikillar eftirspurnar í útboðinu er ljóst að hver aðili fær aðeins hluta síns tilboðs samþykktan. Bæði almenningi og fagfjárfestum var gefinn kostur á að skrá sig fyrir samtals 20-30% af útgefnum hlutum í félaginu. 8.12.2011 22:47
Bréf Icelandair og Marel hækka skarplega Gengi bréfa Icelandair hafa hækkað um tæplega 2,4% í dag og gengi bréfa í Marel um tæplega 3%. Gengi Icelandair er nú 5,18 og gengi bréfa í Marel er 122,5. Rauðar tölur einkenna nú markaði í Evrópu og Bandaríkjunum. Helstu vísitölur í Evrópu hafa lækkað um 1 til 2 prósent og vísitölur í Bandaríkjunum um 0 til 1 prósent. 8.12.2011 15:47
Rauður dagur í dag Allar hlutabréfavísitölur eru rauðar í dag beggja megin Atlantsála. Á Wall Street lækkaði Nasdaq vísitalan um 1,99% og S&P 500 lækkaði um 2,11%. Austanmegin lækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,14%, DAX lækkaði um 2,01% og CAC 40 lækkaði um 2,53%. 8.12.2011 21:23
Mikill áhugi á hlutabréfum í Högum Mikill áhugi var á útboði á hlutabréfum í Högum, rekstraðila Bónus og Hagkaupa, en frestur til að skila inn tilboði rann út í dag. Opnað var fyrir tilboð í tuttugu til þrjátíu prósent eignarhlut í fyrirtækinu á mánudag en samkvæmt heimildum fréttastofu var eftirspurn fimmfalt meiri en framboð. Stefnt er að því að skrá fyrirtækið á markað á fimmtudag í næstu viku. Hlutirnir voru upphaflega boðnir út á genginu 11 - 13,5 á hlut. 8.12.2011 19:16
Enn engin ákvörðun í Icesave málinu ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur enn ekki tekið neina ákvörðun um það hvort mál verði höfðað gegn Íslandi vegna Icesave reikninganna. Þetta segir Trygve Mellvang-Berg upplýsingafulltrúi ESA í svari við skriflegri fyrirspurn Vísis. Hann vill lítið tjá sig um það hvaða áhrif 400 milljarða króna greiðsla út úr þrotabúi gamla Landsbankans í gær hafi á stöðu Icesavemálsins. 8.12.2011 17:43
Telja innflutningsbann stangast á við EES samninginn Samtök verslunar og þjónustu hafa sent kvörtun til bæði eftirlitsstofnunar EFTA og umboðsmanns Alþingis, en þau telja að innflutningsbann á fersku kjöti stangist á við EES samninginn. 8.12.2011 12:15
Hannes fékk ekki krónu Hannes Smárason, fjárfestir, er ekki einn þeirra sem hafa fengið greitt fé inn á eigin reikning úr þrotabúi Landsbankans, eins og lesa mátti um á forsíðu Morgunblaðsins í morgun, og ýmsir vefmiðlar hafa vitnað til í dag. 8.12.2011 11:47
Mikill verðmunur á bókum - Penninn-Eymundsson neitar að taka þátt Mikill verðmunur er á bókum samkvæmt verðlaseftirliti ASÍ en í flestum tilvikum var 30 til 60 prósent verðmunur á hæsta og lægsta verði. Lægsta verðið var oftast að finna í versluninni Bónus eða á 25 titlum af 63, en sú verslun var einnig með fæsta bókatitla á boðstólum eða aðeins 29 af þeim 63 sem skoðaðir voru. 8.12.2011 10:21
Hrein eign ríkissjóðs rýrnar milli ára Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. eignir umfram skuldir, var neikvæð um 723 milljarða króna í lok 3. ársfjórðungs ársins eða 44.6% af landsframleiðslu samanborið við 36.9% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi í fyrra. 8.12.2011 09:34
Fjárhagur hins opinbera batnar milli ára Fjárhagur hins opinbera hefur batnað töluvert frá því í fyrra. Á þriðja ársfjórðungi ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 19 milljarða króna eða sem nemur 4,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 10,7% af tekjum þess. Á sama tíma í fyrra var tekjuafkoman neikvæð um ríflega 20 milljarða króna eða 5,2% af landsframleiðslu. 8.12.2011 09:29
Vöruskiptin hagstæð um 7,6 milljarða í nóvember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember s.l. var útflutningur 53,2 milljarðar króna og innflutningur tæpir 45,7 milljarðar króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 7,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 8.12.2011 09:05
Fasteignaveltan jókst um 100% milli ára í nóvember Gífurleg aukning varð á fjölda kaupsamninga um fasteignir og veltu á fasteignamarkaðinum í nóvember s.l. miðað við sama mánuð í fyrra. Aukningin í fjölda samninga nemur 69% og veltan jókst um tæp 100%. 8.12.2011 07:15
Gefur í skyn að Már hafi skreytt sig með stolnum fjöðrum Greining Íslandsbanka gefur í skyn að Már Guðmundsson seðlabankastjóri hafi skreytt sig með stolnum fjöðrum þegar hann rökstuddi stýrivaxtaákvörðun bankans í gærdag. 8.12.2011 07:11
Tapa riftunarmáli og fá ekki 150 milljónir Greiðslum upp á 150 milljónir, sem runnu frá Landsbankanum til sjóðs á vegum Íslenskra verðbréfa 6. október 2008, verður ekki rift þrátt fyrir kröfu slitastjórnar bankans þar um. Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp svofelldan dóm í gær. 8.12.2011 06:00
Ótímabært að spá um hvort Íslandi verður stefnt Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að útgreiðslur á rúmlega 400 milljörðum íslenskra króna út úr þrotabúi Landsbankans hljóti að hafa góð áhrif á andrúmsloftið í kringum Icesavemálið. Hann vill ekkert spá fyrir um það hvort Eftirlitsstofnun EFTA muni stefna Íslendingum fyrir EFTA dómstólnum eins og óttast hefur verið. 7.12.2011 20:55
Karl Wernersson gæti þurft að endurgreiða hundruð milljóna Hæstiréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur sem vísaði á dögunum frá kæru þrotabús Milestone gegn Karli Wernerssyni, sem var aðaleigandi Milestone. 7.12.2011 17:04
S&P hækkar lánshæfismat TM Lánshæfismatsfyrirtæki Standard & Poor's hefur hækkað mat sitt á Tryggingamiðstöðinni úr BB í BB+. "Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi. Hækkun S&P´s á mati TM er að mínu mati fyrst og fremst viðurkenning á því góða starfi sem starfsfólk félagsins hefur unnið á undanförnum árum. Innleiðing nýrrar stefnu með áherslu á grunnrekstur og áhættustýringu hefur skilað góðum árangri. Metnaðarfull markmið um umbætur á flestum þáttum rekstrarins hafa gengið eftir, samhliða áherslum um bætta þjónustu við viðskiptavini félagsins. Hækkunin endurspeglar þá skoðun S&P´s að TM er öflugt, traust og vel rekið félag,“ segir Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, á vef félagsins. 7.12.2011 17:38
Landsbankinn greiðir 432 milljarða upp í Icesave-skuldina Þrotabú gamla Landsbankans hefur greitt 432 milljarða til kröfuhafa upp í forgangskröfur. Þetta kemur fram á vef slitastjórnarinnar. Stærstur hluti forgangskrafna í bú bankans er vegna innstæðna á Icesave-innlánsreikningum bankans. 7.12.2011 14:30
Stórir samningar skila góðum tekjum Ráðgjafafyrirtækið Markó Partners hefur verið milligönguaðili í nokkrum stórum viðskiptasamningum á þessu ári, nú síðast þegar kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið High Liner Foods keypti starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og Asíu af Framtakssjóði Íslands (FSÍ) á 26,9 milljarða króna í síðasta mánuði. 7.12.2011 13:23
Hagvöxtur eykst um 3,7% milli ára Landsframleiðsla fyrstu níu mánuði ársins jókst um 3,7% að raungildi samanborið við fyrstu níu mánuðina í fyrra. 7.12.2011 09:05
Óbreyttir stýrivextir Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. 7.12.2011 09:00
Hagnaður Íslandsbanka 11,3 milljarðar á fyrstu 9 mánuðum ársins Hagnaður Íslandsbanka nam rúmlega 11,3 milljörðum kr. eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins en var tæplega 13,2 milljarðar kr. fyrir sama tímabil í fyrra. 7.12.2011 08:30
Fyrsta skráning skuldabréfa fjármálafyrirtækis frá hruni í dag Fyrsta skráning skuldabréfa útgefnum af fjármálafyrirtæki á Íslandi frá hruni 2008 mun eiga sér stað í Kauphöllinni í dag.Um er að ræða skuldabréfaútgáfu af hálfu Íslandsbanka. 7.12.2011 07:46
Skuldatryggingaálag Íslands lækkar verulega Skuldatryggingaálag Íslands hefur lækkað verulega á síðustu dögum og er komið niður í 301 punkt samkvæmt vefsíðunni Keldan sem aftur byggir á gögnum frá Bloomberg fréttaveitunni. 7.12.2011 07:22
Farþegum Icelandair fjölgaði um 10% milli ára í nóvember Farþegar Icelandair voru 104 þúsund í nóvember og fjölgaði þeim um 10% frá nóvember á síðasta ári. Sætanýtingin nam 77,0% og jókst um 2,8 prósentustig frá síðasta ári. 7.12.2011 07:20
Landsvirkjun ekki gerð að hlutafélagi Ekki verður hróflað við opinberu eignarhaldi á stóru orkufyrirtækjunum hjá núverandi ríkisstjórn, að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Í skýrslu sem Ásgeir Jónsson og Sigurður Jóhannesson unnu fyrir fjármálaráðuneytið er lagt til að breyta orkufyrirtækjum í hlutafélög og auka verkefnafjármögnun við nýjar framkvæmdir. 7.12.2011 07:00
Vísaði í Þursaflokkinn: "Pínulítill kall“ Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir fullyrðingar Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, þess efnis að LÍÚ leggi sig í einelti uppspuna. 7.12.2011 06:00
Höfðatorg í hendur kröfuhafa Eigandi byggingarfélagsins Eyktar hefur misst Höfðatorg ehf. til lánardrottna. Höfðatorg ehf. á Höfðatorgsbygginguna og óbyggðar lóðir þar í kring og skuldaði 23 milljarða króna um síðustu áramót. 7.12.2011 00:01
Vara fólk við því að falla í freistni Neytendasamtökin gagnrýna harðlega nýjan jólaleik smálánafyrirtækisins Kredia sem auglýstur hefur verið, meðal annars í Ríkissjónvarpinu. Í frétt á vef Neytendasamtakanna kemur fram að leikurinn gengur út á að á hverjum degi fram að jólum er einn lántaki dreginn út og þarf hann ekki að greiða lán sitt til baka. Neytendasamtökin segjast telja það í hæsta máta óeðlilegt að stundaðir séu „leikir" sem ganga út á að fá fólk til að taka lán með von um að sleppa við endurgreiðslu. 6.12.2011 23:47
Skuldabréf skráð í íslensku Kauphöllina í fyrsta skipti Fyrsta skráning skuldabréfa útgefnum af fjármálafyrirtæki á Íslandi frá hruni 2008 mun eiga sér stað í Kauphöllinni á morgun. Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka munu flytja stutt erindi í tilefni af því. Dagskráin hefst þegar klukkan er gengin 20 mínútur í tíu og verður svo bjölluhringing við opnun markaða klukkan hálftíu. 6.12.2011 19:49
Vill að ríkið kaupi Grímsstaði og leigi Nubo svo landið Kristján Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, telur að ríkið eigi að kaupa jörðina að Grímsstöðum og ganga sjálft til samningaviðræðna við Huang Nubo um leigu á henni. Mikilvægt sé að tryggja uppbyggingu og atvinnusköpun á svæðinu. 6.12.2011 21:01
Fá 364 þúsund krónur í launauppbót frá Samherja Samherji hf. greiðir starfsfólki sínu í landi 300 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 64 þúsund króna desemberuppbót. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja. 6.12.2011 15:13
Atvinnuleysi heldur meira hjá konum Atvinnuleysi á meðal kvenna er heldur meira en hjá körlum. Hjá konum mælist það tæplega 7,2 prósent en hjá körlum nær 6 prósent. 6.12.2011 14:36
Norðmenn óskuðu eftir smjöri frá Íslandi - við erum ekki aflögufær Norðmenn hafa óskað eftir að kaupa smjör frá Íslandi þar sem jólaundirbúningur þar í landi er að komast í uppnám vegna smjörskorts. Mjólkursamsalan treystir sér ekki að verða við óskum Norðmannanna til að stefna ekki jólabakstri og jólahaldi hér á landi í tvísýnu. 6.12.2011 12:30
8,7 milljörðum lakari vöruskiptajöfnuður Vöruskiptajöfnuðurinn á fyrstu tíu mánuðum ársins var tæpum 8,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Verðmæti útflutnings jókst þó um rúm tólf prósent milli ára. 6.12.2011 12:08
Kauphöllin áminnir N1 og sektar félagið Kauphöllin hefur ákveðið að áminna olíufélagið N1 opinberlega og beita það sekt að upphæð 1,5 milljónir króna vegna brota félagsins á reglum Kauphallarinnar. 6.12.2011 09:23
Vöruskiptin 8,7 milljörðum lakari en í fyrra Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 512,6 milljarða króna en inn fyrir 423,1 milljarð króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 89,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 98,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 8,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. 6.12.2011 09:04
Nokkuð dregur úr veltunni á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 79. Þetta er nokkuð minni fjöldi en nemur meðaltalinu undanfarnar 12 vikur sem er 98 samningar á viku. 6.12.2011 08:24
Yfir 750 hafa misst vinnuna í hópuppsögnum í ár Alls hafa 752 manns misst vinnu sína í hópuppsögnum það sem af er árinu. Þetta er ívið meiri fjöldi en á sama tíma í fyrra þegar 742 höfðu misst vinnuna í slíkum uppsögnum. 6.12.2011 07:55
FME samþykkir samruna Byrs og Íslandsbanka Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt samþykki sitt fyrir samruna Byrs og Íslandsbanka með fyrirvara um að samrunaferlið verði í samræmi við lög um hlutafélög. 6.12.2011 07:48
Veltan á gjaldeyrismarkaðinum yfir 15 milljörðum Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í nóvember síðastliðnum nam rúmum 15 milljörðum kr sem er 42,6% aukning frá fyrra mánuði. Raunar er um mestu veltuna á þessum markaði að ræða í einstökum mánuði frá áramótum. 6.12.2011 07:27
Mikil stemming fyrir hlutafjárútboði Haga Mikil stemming virðist vera fyrir hlutafjárútboði Haga hf. sem hófst í gærdag. Þetta kemur fram í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa. 6.12.2011 07:25
Vopnafjörður seldi fyrir hálfan milljarð Vopnarfjarðarhreppur hefur selt hlut sinn í útgerðarfyrirtækinu HB Granda fyrir tæplega hálfan milljarð króna. Sveitarstjóri hreppsins segir söluna styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega. 5.12.2011 20:22
Þremenningarnir látnir lausir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta, og Inga Rafnari Júlíussyni, fyrrverandi miðla hjá Glitni, var sleppt úr gæsluvarðhaldi í dag. Þetta staðfesti Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við fréttastofu. Mennirnir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum sérstaks saksóknara í síðustu viku og úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Að loknum yfirheyrslum í dag voru þeir svo látnir lausir. 5.12.2011 18:04