Hannes fékk ekki krónu Magnús Halldórsson skrifar 8. desember 2011 11:47 Hannes Smárason fjárfestir á nú í deilum við þrotabú Landsbankans vegna kröfu hans upp á ríflega milljarða í búið. Slitastjórnin hafnaði kröfunni, sem Hannes telur að sé forgangskrafa sem eigi að samþykkja.
Hannes Smárason, fjárfestir, er ekki einn þeirra sem hafa fengið greitt fé inn á eigin reikning úr þrotabúi Landsbankans, eins og lesa mátti um á forsíðu Morgunblaðsins í morgun, og ýmsir vefmiðlar hafa vitnað til í dag. Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi slitastjórnar Landsbankans, segir að krafa Hannesar í bú bankans, upp á ríflega 1,1 milljarð króna, hafi verið hafnað af slitastjórn en málið væri nú í ágreiningi fyrir dómstólum þar sem Hannes freistar þess að fá kröfuna samþykkta sem forgangskröfu. Á meðan væri greitt inn á geymslureikning í samræmi við lög, vegna fyrrnefndrar kröfu sem hann hefur lýst í búið. Hannes hefur því ekki fengið krónu greidda út úr búi bankans inn á eigin reikning til ráðstöfunar. Eins og greint var frá í gær hefur slitastjórn Landsbankans greitt út jafnvirði um 432 milljarða króna, um þriðjung af heildarfjárhæð samþykktra forgangskrafna í búið, til kröfuhafa og inn á geymslureikninga. Greitt var út í evrum, pundum, dollurum og íslenskum krónum. Slitastjórn Landsbankans hefur þegar gefið út að hún telji nægar eigur í búi bankans til þess að greiða forgangskröfur að fullu, upp á ríflega 1.300 milljarða, en gera má ráð fyrir að það taki töluverðan tíma að slíta búinu og greiða út til kröfuhafa það sem í því verður. Meðal stórra eigna sem Landsbankinn vinnur nú að sölu á er verslunarkeðjan Iceland Foods í Bretlandi.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira