Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sameining Flugstoða og Keflavíkurflugvallar kynnt á morgun Nýtt opinbert hlutafélag um sameinaða starfsemi Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. verður kynnt á morgun. 29.4.2010 14:14
VÍ hraunar yfir lífeyriskerfi opinberra starfsmanna "Ljóst má vera að óbreytt lífeyriskerfi opinberra starfsmanna er ósjálfbært, þrátt fyrir mun hærra mótframlag atvinnurekenda en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði. Erfitt er að sjá réttlæti í því að starfsmenn almenna vinnumarkaðarins skuli þurfa að taka á sig skerðingu lífeyrisréttinda samhliða því að þurfa að standa undir ósjálfbæru lífeyriskerfi opinberra starfsmanna með auknum skattgreiðslum." 29.4.2010 13:31
Íslandsbanki í mál við stofnfjáreigendur í Eyjafirði Íslandsbanki hefur höfðað mál gegn stofnfjáreigendum í Eyjafirði vegna stofnfjáraukningar í Sparisjóðí Norðlendinga. Stofnféið aukið á sínum tíma í tengslum við sameiningu við Byr árið 2007. 29.4.2010 12:35
Ný endurreisnaráætlun er í bígerð Vilmundur Jósefsson formaður Samtaka atvinnulífsins segir að samtökin eigi nú í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins um nýja endurreisnaráætlun fyrir efnahags- og atvinnulífið. 29.4.2010 12:20
Matvara og drykkir kynda undir verðbólguna 1% hækkun matvöru og drykkja er helsti hækkunarvaldurinn á bakvið verðbólgumælinguna að þessu sinni og hefur áhrif til 0,17% hækkunar á vísitölu neysluverðs (VNV). Er þar fyrst og fremst um að ræða hækkun á innlendri framleiðslu, sér í lagi grænmeti sem hækkar um ríflega 12% frá marsmánuði. 29.4.2010 12:03
Spkef sparisjóður fær aðild að Kauphallarmörkuðum Kauphöllin hefur samþykkt umsókn Spkef sparisjóðs um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. 29.4.2010 11:20
Útlendingar hafa áhuga á Smáralindinni Töluverður áhugi hefur verið meðal bæði innlendra og erlendra fjárfesta á Smáralindinni síðan að hún komst í eigu dótturfélags Landsbankans, segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. 29.4.2010 10:22
Ný fóðurverksmiðja brátt gangsett á Grundartanga Þessa dagana er verið að prufukeyra vélar nýrrar fóðurverksmiðju Líflands á Grundartanga. Framleiðsla í verksmiðjunni hefst innan skamms en fyrir helgina var fyrsta kornfarminum landað á Grundartanga. 29.4.2010 10:17
Verðbólgan minnkar í 8,3% Ársverðbólgan mælist nú 8,3% og hefur minnkað um 0,2% prósentustig frá því í mars. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 29.4.2010 09:03
Stjórnendur styðja ekki ríkisstjórnina Rúmlega 86% af stjórnendum 300 stærstu fyrirtækja landsins, styðja ekki ríkisstjórnina, samkvæmt skoðanakönnun MMR fyrir Viðskiptablaðið, og birt er í dag. Aðeins 14% styðja stjórnina, og hér er átt við þá sem tóku afstöðu. 29.4.2010 08:37
Eitt afskrifað lán Gildis hærra en heildariðgjöld ársins Eitt víkjandi lán lífeyrissjóðsins Gildis til Glitnis fyrir hrun bankans var hærra en heildariðgjöld sjóðsfélaga Gildis á síðasta ári. Lánið var upp á 3,69 milljarða kr. og hefur Gildi afskrifað það að fullu. Heildariðgjöldin námu hinsvegar 3,53 milljörðum kr. á síðasta ári. 29.4.2010 08:17
Marel snýr tapi í hagnað í upphafi ársins Hagnaður Marel eftir skatta var 5,6 milljónir evra, eða rúmlega 950 milljónir kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er mun betri árangur en á sama tímabili í fyrra þegar 7,0 milljón evra tap var á rekstrinum. 29.4.2010 08:09
Fékk 800 milljóna yfirdrátt fyrir skíðaskála í júlí 2008 Félag í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, 101 Chalet ehf., fékk 800 milljóna króna yfirdráttarlán í hjá Glitni í júlí 2008 fyrir kaupum á skíðasetri í Frakklandi. Þetta var eitt síðasta lánið sem aðili tengdur Baugi fékk í íslensku bönkunum fyrir hrun, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 29.4.2010 05:00
Efnahagsþrengingar setja áfram mark sitt á afkomu Gildis Afkoma Gildis-lífeyrissjóðs árið 2009 var kynnt á mjög fjölmennum ársfundi sjóðsins á Grand hóteli í kvöld, 28. apríl. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að helstu niðurstöður uppgjörs séu eftirfarandi: 28.4.2010 22:55
RÚV: 400 milljóna viðsnúningur Ríkisútvarpið skilaði hagnaði upp á rúmlega 33 milljónir króna fyrstu sex mánuði yfirstandandi rekstrarárs, frá fyrsta september 2009 til loka febrúar í ár. Í tilkynningu frá RÚV segir að þetta sé jákvæður viðsnúningur upp á tæplega 400 milljónir króna miðað við sama tímabil á síðasta rekstrarári, þegar tap félagsins var rúmlega 365 milljónir króna. 28.4.2010 19:23
Nýherji: Heildartekjur svipaðar og í fyrra en heildartap 130 milljónir Heildartekjur Nýherja samstæðunnar námu 3.509 milljónum króna og eru svipaðar og á fyrsta ársfjórðungi 2009 að því er fram kemur í uppgjöri félagsins sem birt var í dag. EBITDA í ársfjórðungnum nam 35 milljónum króna, en heildartap er 130 milljónir króna. Jákvæð EBITDA er af innlendum rekstri, en erlend starfsemi er í járnum að því er fram kemur í tilkynningu. 28.4.2010 17:26
Aðalfundur Íslandsbanka: Enginn arður greiddur út Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Friðrik Sophusson, formaður bankastjórnar Íslandsbanka flutti skýrslu stjórnar en í máli hans kom meðal annars fram að stjórn bankans teldi mikilvægt að fjárfesta enn frekar í innviðum bankans. Friðrik segir þá stefnu endurspeglast í því að ekki verði greiddur út arður fyrir starfsárið 2009. 28.4.2010 17:16
Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um þrjú prósent Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 3,08 prósent í Kauphöllinni í dag samtímis því sem félagið skilaði jákvæðu uppgjöri. Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa Össurar um 1,25 prósent og færeyska flugfélagsins Atlantic Airways um 0,78 prósent. 28.4.2010 16:50
Rólegur dagur á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 7 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 0,7 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 6,3 milljarða kr. viðskiptum. 28.4.2010 16:19
Icelandair Group birtir uppgjör á föstudaginn Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung og ársuppgjör 2009, föstudaginn 30.apríl nk. 28.4.2010 16:15
Yfir 100 kaupsamingar um atvinnhúsnæði í mars Í mars 2010 var þinglýst 42 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 59 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 4.621 milljón króna en 637 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 28.4.2010 15:23
Gagnaver samþykkt úr iðnaðarnefnd - samningstími styttur um helming Iðnaðarnefnd Alþingis samþykkti í morgun frumvarpið um gagnaver á Suðurnesjum með breytingum. Nefndin leggur til að gildistími samningsins verði styttur um helming, þannig að samningurinn gildi til 10 ára en ekki 20 ára eins og kveðið var á um í frumvarpinu. Þetta kom fram á bloggi Skúla Helgasonar, formanns iðnaðarnefndar á pressan.is. 28.4.2010 15:09
Lánshæfismat OR áfram á neikvæðum horfum Matsfyrirtækið Moody´s hefur ákveðið að halda lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) áfram á neikvæðum horfum. Einkunnin er Ba1. 28.4.2010 13:13
Íslandsbanki býður fyrirtækjum höfuðstólslækkun Íslandsbanki hefur ákveðið að bjóða fyrirtækjum, sem uppfylla ákveðin skilyrði, að sækja um lækkun á höfuðstól erlendra lána og breyta þeim um leið í lán í íslenskum krónum. Erlendum lánum er breytt í óverðtryggð eða verðtryggð lán í íslenskum krónum miðað við sölugengi Seðlabanka Íslands þann 29. september 2008. 28.4.2010 11:50
Danskir eigendur Össurar hagnast um 19 milljarða á félaginu Danska fjárfestingafélagið William Demant Invest, stærsti eigandi Össurar hf., hefur hagnast um 19 milljarða kr. á eign sinni í Össuri frá marsmánuði í fyrra. 28.4.2010 11:18
Íbúðalánasjóður heldur vöxtum óbreyttum Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. 28.4.2010 10:13
Hagnaður af rekstri móðurfélags Norðuráls Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls á Grundartanga, skilaði 6,3 milljón dollara, eða rúmlega 800 milljóna kr., hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. Þetta er mikill viðsnúningur á rekstri félagsins því 114,6 milljón dollara tap var á rekstrinum á sama tímabili í fyrra. 28.4.2010 09:05
Eignir sjóða hækkuðu um 11,6 milljarða Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 235,7 milljörðum kr. í lok mars og hækkuðu 11,6 milljarða kr. milli mánaða. 28.4.2010 08:23
Eignir ýmissa lánafyrirtækja lækkuðu um 33 milljarða Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1,165 milljarða kr. í lok mars og lækkuðu um 33,1 milljarða kr. sem stafar að mestu leyti af því að lánafyrirtækjum fækkaði. 28.4.2010 08:18
Verslunarmiðstöðin Smáralind er til sölu Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. sem á og rekur verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi. 28.4.2010 08:13
Kópavogur rekinn með 4 milljarða tapi í fyrra Rekstur Kópavogsbæjar, A og B hluta, skilaði tapi upp á 4 milljarða kr. í fyrra. Ársreikningurinn var til umræðu í bæjarstjórn í gærdag. Í tilkynningu segir að þrátt fyrir erfitt rekstrarár hefur tekist að halda uppi þjónustustiginu. 28.4.2010 08:06
Fyrrverandi sparisjóðsstjóri grunaður um innherjasvik Grunur leikur á að fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs og tveir framkvæmdastjórar hafi nýtt sér innherjaupplýsingar í viðskiptum með stofnfjárhluti í sjóðnum. Fráfarandi stjórn Byrs hefur vísað málinu til sérstaks saksóknara. 27.4.2010 18:34
Samkeppniseftirlitið segir Símann á villigötum Samkeppniseftirlitið segir málatilbúnað Símans ekki eiga við rök að styðjast en Síminn hefur stefnt Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar sem framkvæmd var á dögunum. Síminn krefst þess að öllum gögnum sem aflað var verði eytt í ljósi þess að starfsmenn samkeppnisaðila hafi annast afritatökuna. 27.4.2010 17:23
Bland í poka á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 12,1 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 3,2 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 8,9 milljarða kr. viðskiptum. 27.4.2010 15:56
Glitnir styrkti flokka og félög en ekki einstaklinga „Þau gögn sem skilanefndin hefur farið yfir gefa ekki til kynna að Glitnir banki hafi styrkt einstaka stjórnmálamenn heldur hafi styrkjum sem tengjast stjórnmálum verið beint til stjórnmálaflokka og stjórnmálafélaga. Virðist þetta jafnframt vera í samræmi við þá styrktarstefnu sem bankinn setti sér sínum tíma." 27.4.2010 15:50
KEA má eiga 35% í næstelstu fjármálastofnun landsins Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt KEA svf. heimild til að fara með allt að 35% eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu FME. 27.4.2010 15:44
Moody´s: Icesavedeilan ógnar efnahagsbata Íslands Í árlegri skýrslu sinni um Ísland segir matsfyrirtækið Moody´s að efnahagslegri endurreisn Íslands sé ógnað af því að ekki hafi tekist að leiða Icesavedeiluna til lykta. Að mistekist hafi að ná samkomulagi í deilunni hindri aðgang landsins að erlendu fjármagni. 27.4.2010 12:51
Mikill munur á mælingum á skuldatryggingaálagi Mikill munur er á mælingu á skuldatryggingaálagi á ríkissjóði hjá gagnveitunum Markit og CMA. Vísir.is greindi frá því í gærdag að samkvæmt Markit Itraxx vísitölunni var skuldatryggingaálagið þá 353 punktar. Á CMA í dag er álagið mælt 401 punktar. 27.4.2010 12:06
Væntingavísitalan yfir 50 stig í fyrsta sinn frá hruni Væntingar neytenda hafa heldur betur glæðst ef marka má væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var nú í morgun. Vísitalan hækkar um ríflega fjórðung frá fyrri mánuði og stendur nú í 54,7 stigum. 27.4.2010 11:51
Bartentshafssamningur raskar ekki hagsmunum Íslands Samkomulag Norðmanna og Rússa um landhelgislínur í Barentshafi mun ekki raska hagsmunum Íslendinga á svæðinu. Ísland hefur samning um þorskveiðar innan landhelgi bæði Noregs og Rússlands í Barentshafi. 27.4.2010 11:24
Byr hf. fær aðgang að mörkuðum Kauphallarinnar Kauphöllin hefur samþykkt umsókn Byrs hf. um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. Aðildin er virk frá og með deginum í dag, 27. apríl, 2010. 27.4.2010 09:17
Telur líklegt að Seðlabankinn kaupi áfram evrubréf Ávöxtunarkrafa á skuldabréf ríkissjóðs (í evrum) sem er á gjalddaga 1. desember 2011 heldur áfram að lækka og er nú um 7,8%, en var um 9,15% undir lok mars þegar Seðlabankinn tilkynnti um kaup á bréfum í flokknum. Líklegt er að Seðlabankinn hafi haldið kaupunum áfram, en slíkt er mjög hagkvæmt fyrir hann og þar með ríkissjóð. 27.4.2010 08:17
Hagnaður Össurar hf. jókst um 28% milli ára Hagnaður Össurar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins á nam 10 milljónum dollara eða tæpum 1,3 milljörðum kr. sem er 28% aukning frá fyrsta ársfjórðungi 2009. 27.4.2010 08:07
Fengu milljónir að láni hjá Milestone Sjö fyrrverandi stjórnendur Íslandsbanka og einn framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra fengu 564 milljóna króna lán hjá Milestone Import Export Ltd. til kaupa á hlutabréfum í Glitni í maí árið 2005. 27.4.2010 06:00
Sjóvá í ríkiseign braut gegn lögum um vátryggingar Sjóvá hefur verið gert að greiða Fjármálaeftirlitinu (FME) eina milljón kr. í sátt vegna brots félagsins á lögum um vátryggingastarfsemi. Athygli vekur að brotið var framið þegar Sjóvá var í raun komið í eigu ríkissjóðs. 26.4.2010 20:28