Viðskipti innlent

Spkef sparisjóður fær aðild að Kauphallarmörkuðum

Kauphöllin hefur samþykkt umsókn Spkef sparisjóðs um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar.

Í tilkynningu segir að aðildin er virk frá og með deginum í dag, 29. apríl, 2010.

Auðkenni Spkef sparisjóðs í viðskiptakerfinu er SPK. Það auðkenni var áður notað af Sparisjóðnum í Keflavík en aðild hans hefur verið sagt upp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×