VÍ hraunar yfir lífeyriskerfi opinberra starfsmanna 29. apríl 2010 13:31 Það skýtur skökku við að á sama tíma og stjórnvöld standa frammi fyrir gríðarlegri aðlögun í ríkisfjármálum skuli talið réttlætanlegt að verja tugum milljarða í að verja lífeyrisréttindi afmarkaðs hóps vinnumarkaðarins. "
Ljóst má vera að óbreytt lífeyriskerfi opinberra starfsmanna er ósjálfbært, þrátt fyrir mun hærra mótframlag atvinnurekenda en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði. Erfitt er að sjá réttlæti í því að starfsmenn almenna vinnumarkaðarins skuli þurfa að taka á sig skerðingu lífeyrisréttinda samhliða því að þurfa að standa undir ósjálfbæru lífeyriskerfi opinberra starfsmanna með auknum skattgreiðslum."Þetta segir á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands (VÍ) þar sem ný skoðun ráðsins í lífeyrismálum hefur verið birt.Á vefsíðunni segir að þessa dagana berast reglulega fregnir af skerðingu lífeyrisréttinda innan almenna lífeyrissjóðakerfisins. Hrun íslenska bankakerfisins gekk verulega á uppsafnaðar eignir sjóðanna og hefur reynst flestum þeirra þungt í skauti. Afleiðing slælegrar ávöxtunar í sjóðssöfnunarkerfi er skerðing réttinda enda verður ekki öðruvísi staðið undir lífeyrisgreiðslum til lengri tíma. „Einn sjóður sker sig þó úr hópnum. Stærsti lífeyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), mun ekki skerða réttindi sinna sjóðfélaga enda eru þau bundin í lög og því óháð ávöxtun og eignum sjóðsins. LSR var á meðal þeirra lífeyrissjóða sem skiluðu verstri ávöxtun árið 2008 en í stað þess að sjóðfélagar beri þann skaða fellur hann beint á ríkissjóð. Það skýtur skökku við að á sama tíma og stjórnvöld standa frammi fyrir gríðarlegri aðlögun í ríkisfjármálum skuli talið réttlætanlegt að verja tugum milljarða í að verja lífeyrisréttindi afmarkaðs hóps vinnumarkaðarins. Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs hafa vaxið hratt á undanförnum árum og námu ríflega 340 milljörðum króna í lok árs 2008. Séu teknir saman allir lífeyrissjóðir opinberra aðila nam tryggingafræðilegur halli þeirra yfir 500 milljörðum á sama tíma. Ljóst má vera að óbreytt lífeyriskerfi opinberra starfsmanna er ósjálfbært, þrátt fyrir mun hærra mótframlag atvinnurekenda en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði. Frá árinu 2000 hafa að meðaltali verið gjaldfærðir um 20 milljarðar króna á ári í rekstri ríkissjóðs en samt sem áður hafa skuldbindingar vaxið verulega. Þetta er ávísun á miklar skattahækkanir í framtíðinni.Erfitt er að sjá réttlæti í því að starfsmenn almenna vinnumarkaðarins skuli þurfa að taka á sig skerðingu lífeyrisréttinda samhliða því að þurfa að standa undir ósjálfbæru lífeyriskerfi opinberra starfsmanna með auknum skattgreiðslum. Slíkt getur vart annað en flokkast undir mismunun af versta tagi," að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira