Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fiskvinnsla HG lokuð í 3 vikur vegna strandveiða Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf (HG) segir að loka þurfi fiskvinnslu fyrirtækisins í þrjár vikur í sumar vegna strandveiðanna. Hann segir það „nöturlegt" í viðtali við Fiskifréttir að verið sé að færa atvinnu frá þeim sem hafa lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi til „hobbýkarla" eins og hann orðar það. 26.4.2010 13:08
AGS: Íslenska hagkerfið tekur kröftuglega við sér Íslenska hagkerfið mun taka nokkuð kröftuglega við sér á næsta ári að mati AGS og verður hagvöxturinn hér 2,3% að mati sjóðsins. Þetta er viðlíka hagvöxtur og sjóðurinn spáir að verði í iðnríkjunum að meðaltali það árið (2,4%) og meiri en hann spáir að verði bæði í Bandaríkjunum (1,5%) og á evrusvæðinu (1,5%). 26.4.2010 11:06
HB Grandi greiðir rúmlega 200 milljónir í arð Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 23. apríl 2010 samþykkir að greiddur verði 12% arður (0,12 kr á hlut) vegna ársins 2009, alls að fjárhæð 203,6 milljónir kr. 26.4.2010 09:27
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs að ná áramótastöðunni Skuldatryggingaálag ríkissjóðs stendur nú í 353 punktum samkvæmt Markit Itraxx vísitölunni og er þar með að ná svipaðari stöðu og var um áramótin síðustu. Þá stóð álagið í 345 punktum. 26.4.2010 09:05
Salan aðeins svipur hjá sjón eftir gosið Ráðast þarf í miklar aðgerðir til að fá erlenda ferðamenn aftur til landsins. Þetta er mat framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, Ernu Hauksdóttur. 26.4.2010 06:00
Á von á að fleiri matsfyrirtæki breyti mati á Íslandi Gylfi Magnússon, efnhags- og viðskiptaráðherra, væntir þess að fleiri matsfyrirtæki muni á næstu mánuðum fylgja í kjölfar Moody's sem á föstudag breytti lánshæfismati ríkisjóðs úr neikvæðum í stöðugar. 25.4.2010 12:00
Efnahagsráðherra telur að krónan hljóti að styrkjast brátt Efnhags- og viðskiptaráðherra telur allt benda til þess að krónan fari að styrkjast á næstu misserum. Gjaldeyrishöftum verður hins vegar ekki aflétt í bráð vegna þeirra tafa sem orðið hafa á framvindu efnhagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 24.4.2010 18:30
Óska eftir fundi með ráðherra vegna sparisjóðsins Fulltrúar sveitarstjórna Húnaþings vestra og Bæjarhrepps og Samtaka stofnfjáreigenda í fyrrum Sparisjóði Húnaþings og Stranda funduðu í gær á Hvammstanga vegna yfirtöku ríkisins á Sparisjóðnum í Keflavík. 24.4.2010 10:49
Áliðnaður nýtir þrjá fjórðu orkunnar Áliðnaðurinn nýtir meira en 75 prósent af allri raforku sem framleidd er í landinu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Íslandsbanka um íslenskan jarðhitamarkað. 24.4.2010 07:15
Þýskir kröfuhafar fengu leið á ríkinu „Þetta hefur vissulega neikvæð áhrif á lífeyrissjóðina. En við byrjuðum að færa niður kröfur okkar á sparisjóðina árið 2008 og höfum gert það reglulega síðan þá,“ segir Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festa lífeyrissjóðs, um yfirtöku ríkisins á Sparisjóði Keflavíkur og Byr í gærnótt. Hann segir niðurfærsluna þegar komna fram í ársreikningi. 24.4.2010 06:00
Jákvæð umfjöllun „Þetta er út af fyrir sig ágætt. Umfjöllunin er mjög jákvæð,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, um nýja lánshæfiseinkunn Moody‘s. 24.4.2010 06:00
Horfur úr neikvæðum í stöðugar Moody‘s breytti lánshæfiseinkunn ríkisins þegar fyrir lá samþykki annarrar endurskoðunar áætlunar stjórnvalda og AGS. Þá lá fyrir nýtt óbirt mat sem gerði ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum horfum. 24.4.2010 06:00
Bankinn verði leiðandi afl í endurreisninni Bankinn á að vera leiðandi afl í endurreisn íslensks efnahagslífs, segir nýr bankastjóri Arion banka. Hann getur ekki tjáð sig um hvernig hann hyggst taka á málefnum stærstu skuldara bankans, hann þurfi að kynna sér þau frá sjónarhóli bankans. 23.4.2010 18:47
Hlutabréf Marels lækkuðu um 1,19 prósent Gengi hlutabréfa í Marel lækkaði um 1,19 prósent í Kauphöllinni í dag og gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri um 0,52 prósent. Önnur hreyfing var ekki á markaðnum í dag. 23.4.2010 16:17
GBI vísitalan hækkaði um 0,3% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 7,5 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,4% í 3,7 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 3,8 milljarða kr. viðskiptum. 23.4.2010 15:52
Íslandsbanki býður fyrirtækjum höfuðstólslækkun „Íslandsbanki mun í næstu viku hefja að bjóða fyrirtækjum sem eru með tekjur í íslenskum krónum og lán í erlendri mynt að sækja um höfuðstólslækkun þannig að höfuðstóll lánanna færist eins og hann var 29. september 2008. Um leið verður lánunum breytt í verðtryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum og við það getur höfuðstóll erlendra lána til fyrirtækja lækkað allt að 30%." 23.4.2010 15:41
Áfram dræm sala á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 16. apríl til og með 22. apríl 2010 var 40. Þar af voru 30 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.168 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,2 milljónir króna. 23.4.2010 15:03
Lánshæfimat ÍLS einnig sett á stöðugar horfur Matsfyrirtækið Moody's greindi frá því í dag að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs (ÍLS), sem er Baa3, í stöðugar úr neikvæðum. 23.4.2010 14:58
Yfirmönnum sagt upp hjá BYR Fjórum starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Byr eftir að ríkið tók bankann yfir í gærkvöldi. 23.4.2010 14:35
Ríkið leggur Byr og Spkef til samtals 1,7 milljarð Eiginfjárframlag ríkisins inn Byr og Sparisjóði Keflavíkur (Spkef) nemur samtals rúmum 1,7 milljörðum kr. Í hvorn sparisjóð nemur framlagið 5 milljónum evra, eða um 860 milljónum króna. Bankasýsla ríkisins muni síðan taka ákvörðun um framtíðar fjármögnun sparisjóðanna. 23.4.2010 14:15
Höskuldur Ólafsson ráðinn bankastjóri Arion banka Stjórn Arion banka hefur ráðið Höskuld H. Ólafsson í starf bankastjóra Arion banka og mun hann taka til starfa eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Höskuldur var valinn úr hópi 40 umsækjenda sem sóttu um stöðuna þegar Arion banki auglýsti eftir bankastjóra í desember sl. 23.4.2010 14:03
Ný framkvæmdastjórn SA skipuð Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) í vikunni var skipuð ný framkvæmdastjórn SA fyrir starfsárið 2010-2011. Framkvæmdastjórn SA er skipuð formanni og varaformanni samtakanna ásamt 6 mönnum sem stjórnin kýs úr hópi stjórnarmanna. 23.4.2010 13:58
Atlantic Airways tapar 57 til 100 milljónum á gosinu Færeyska flugfélagið Atlantic Airways, sem skráð er í Kauphöllinni, hefur tapað 2,5 til 4,5 milljónum danskra kr. eða 57 til 100 milljónum kr. á eldgosinu í Eyjafjallajökli. 23.4.2010 13:22
Stofnfjáreigendur missa allt sitt í Byr og Spkef Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir starfsemi Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík (Spkef) og eru þeir nú að fullu í eigu ríkisins. Stofnfjáreigendur missa allt sitt. 23.4.2010 12:23
Moodys´s telur hagstæðari Icesavesamninga framundan Matsfyrirtækið Moody´s segir að líklega muni nýr Icesavesamningur við Breta og Hollendinga verða Íslendingum hagstæðari en fyrri samningar. Þetta kemur fram í nýju áliti Moody´s þar sem horfum á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er breytt úr neikvæðum í stöðugar. 23.4.2010 11:30
Dreifing flytur í nýtt vöruhús Dreifing heildverslun hefur flutt í nýtt vöruhús sem eigendur fyrirtækisins hafa byggt undir starfsemi þess og er nýtt heimilsfang að Brúarvogi 1-3, rétt um 1 km sunnar en Vatnagarðar 8 eða nánar tiltekið við hliðina á Samskip beint fyrir neðan Húsasmiðjuna og Bónus í Skútuvogi. 23.4.2010 11:15
Moody´s breytir horfum Íslands úr neikvæðum í stöðugar Matsfyrirtækið Moody´s hefur breytt horfum sínum fyrir lánshæfiseinkunn Íslands úr neikvæðum og yfir í stöðugar. Þetta kemur fram í nýju áliti Moody´s sem birt er í dag. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hjá Moody´s stendur í Baa3. 23.4.2010 11:06
Hátækni og þjónusta 5,5% af útflutningstekjum þjóðarinnar Verðmæti útflutnings á hátæknivörum og þjónustu á síðasta ári nam 37 milljörðum íslenskra króna. Það jafngilti 5,5% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. 23.4.2010 10:29
Samband íslenskra sparisjóða segir óvissu lokið „Með þessum atburðum lýkur þeirri óvissu sem hefur ríkt um einstaka sparisjóði og sparisjóðanetið alveg frá bankahruninu í október 2008," segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða um fréttirnar af Byr og Spkef. 23.4.2010 10:17
Kauphöllin lokar á BYR og Spkef í viðskiptakerfi sínu Kauphöllin hefur tekið þá ákvörðun að loka tímabundið fyrir aðgang Byr sparisjóðs (Kauphallarauðkenni: BYR) og Byr verðbréfa (Kauphallarauðkenni: BYRV) að viðskiptakerfi Kauphallarinnar, með vísan til yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á rekstri Byrs. 23.4.2010 09:33
Sala skuldabréfa í útboðum stóð í stað milli mánaða Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í mars 2010 nam 29,35 milljarða kr. á söluverði samanborið við 29,94 milljarða kr. mánuðinn áður. 23.4.2010 08:44
Höfnuðu sátt FME, borga tvöfalda upphæðina í sekt Tvö sveitarfélög, Reykjanesbær og Langanesbyggð, brutu gegn lögum um verðbréfaviðskipti í fyrra að mati Fjármálaeftirlitsins (FME). Báðum félögunum var boðin sátt í málinu en þau höfnuðu bæði þeirri sátt. Þá fengu þau stjórnvaldssekt á sig í staðinn og nam sektin tvöfaldri sáttarupphæðinni í báðum tilvikum. 23.4.2010 08:22
Starfsemi útibúa Byrs og SpKef óbreytt í dag Ríkið hefur tekið yfir rekstur Sparisjóðs Keflavíkur og Byrs-sparisjóðs. Þetta var staðfest í tilkynningu sem fjármálaráðuneytið sendi frá að ganga hálfeitt í nótt en fyrr um kvöldið hafði Vísir greint frá fyrirætlunum ríkisins. 23.4.2010 06:26
Hindruðu viðtöl FME við starfsfólk „Glitnis- og Kaupþingsmenn voru mjög ósáttir við að rætt væri við starfsmenn um markaðssetningu sjóðanna. Á báðum stöðum fóru yfirmenn fram á að starfsmenn fengju að hafa lögfræðing hjá sér, en á endanum var dregið í land með það,“ segir í siðfræðiskýrslu rannsóknarnefndar og er vitnað til minnisblaða frá Fjármálaeftirlitinu (FME) sem nefndin fékk aðgang að. 23.4.2010 00:01
Hagur sprotafyrirtækja hefur ekki vænkast „Hagur íslenskra sprotafyrirtækja hefur ekki vænkast að neinu ráði eftir hrun bankanna,“ segir Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja, einn frummælenda á ársfundi Samtaka atvinnulífsins á miðvikudag. 23.4.2010 00:01
Byr og SpKef teknir yfir af ríkinu Byr Sparisjóður verður tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu í fyrramálið. Heimildir Vísis herma að stjórn sjóðsins hafi farið fram á þetta í kvöld. Á vef Víkurfrétta er greint frá því að stjórn Sparisjóðsins í Keflavík hafi farið fram á hið sama og að sá sjóður verði því einnig tekinn yfir á morgun. 22.4.2010 23:43
Veit ekki til þess að eignir verði kyrrsettar Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrverandi stjórnarmaður í FL Group, gerir athugasemd við frétt Stöðvar 2 frá í gær um kyrrsetningu eigna stjórnarmanna félagsins. Hann viti ekki til þess að standi til að skattrannsóknarstjóri hyggist kyrrsetja eignir hans. 22.4.2010 19:45
Fylgist áfram með rekstri Fljótsdalshéraðs Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem hefur verið með rekstur Fljótdalshéraðs til athugunar í ljósi hallareksturs bæjarfélagsins á árinu 2008 hyggst ekki aðhafast frekar í málinu. Ákvörðunin byggir á þeim gögnum sem sveitarfélagið hefur lagt fram þar sem m.a. er gert ráð fyrir viðsnúningi í rekstri og að afgangur verði af rekstrinum. Eftirlitsnefndin muni þó áfram fylgjast með framvindu rekstrar og fjárhagsáætlunar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá Eiríki B. Björgvinssyni, bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs. 22.4.2010 12:25
Boltinn er hjá bönkunum „Helstu lykilstærðir eru betri en menn spáðu. Samdráttur í fyrra var talsvert minni en menn gerðu ráð fyrir og góður afgangur var af vöruskiptum. Í raun erum við aðeins á undan áætlun þótt mörg verk séu enn eftir,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, um skýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna annarrar endurskoðunar 22.4.2010 08:15
Höftum ekki aflétt í bráð Viðræður vegna þriðju endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS hefjast í kringum júní. Þá verður horft til loka endurfjármögnunar sparisjóðanna. Yfirmaður sendinefndar AGS sagði á símafundi í gær að gjaldeyrishöftum yrði hér viðhaldið næsta árið 22.4.2010 06:00
Fasteignalánin voru „tómt rugl“ Fasteignalán bankanna voru „tómt rugl“ að mati Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbanka Íslands. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis segir hann lánin hafa verið á alltof lágum vöxtum og að hann hafi verið hissa að erlend matsfyrirtæki tækju ekki í taumana. 22.4.2010 05:00
Grunur um að tekjum hafi verið skotið undan Skattyfirvöld munu fara fram á að eignir Skarphéðins Berg Steinarssonar, Jóns Sigurðssonar, Hannesar Smárasonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar verði kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 en grunur leikur á að tekjum hafi verið skotið undan í rekstri félagsins. 21.4.2010 21:20
Hefði átt að upplýsa hluthafa FL um hvarf á þremur milljörðum Stjórn FL Group og forstjóra bar skylda til að upplýsa hluthafa félagsins um að þrír milljarðar hefðu horfið úr bókum þess í apríl 2005, andstætt því sem forstjórinn fyrrverandi hélt fram í gær. Þetta fullyrðir sérfræðingur í félagarétti. 21.4.2010 21:26
Rólegt á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 3,9 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,6 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 2,3 milljarða viðskiptum. 21.4.2010 16:07
AGS: Auknir skattar á eldsneyti og tóbak skila engu Í skýrslu starfsliðs Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland er að finna töflu þar fjallað er um tekjur ríkissjóðs af nýlegum skattahækkunum. Þar kemur fram að skattar á eldsneyti og tóbak muni ekki skila neinu aukalega til ríkisins á þessu ári. 21.4.2010 16:01