Viðskipti innlent

Aðalfundur Íslandsbanka: Enginn arður greiddur út

Friðrik sagði þá gagnrýni sem komið hefði fram um umsvif bankanna á fyrirtækjamarkaði að mörgu leyti skiljanlega.
Friðrik sagði þá gagnrýni sem komið hefði fram um umsvif bankanna á fyrirtækjamarkaði að mörgu leyti skiljanlega.

Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Friðrik Sophusson, formaður bankastjórnar Íslandsbanka flutti skýrslu stjórnar en í máli hans kom meðal annars fram að stjórn bankans teldi mikilvægt að fjárfesta enn frekar í innviðum bankans. Friðrik segir þá stefnu endurspeglast í því að ekki verði greiddur út arður fyrir starfsárið 2009.

Friðrik sagði einnig að innan Íslandsbanka væri nú verið að fara yfir niðurstöður skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis með það að markmiði að skoða hvaða umbætur kunna að vera nauðsynlegar innan bankans. „Ítrekaði hann þó að strax í kjölfar stofnunar bankans, í október 2008, hefði slíku umbótarstarfi verið ýtt úr vör og nefndi hann ýmis dæmi þess efnis," segir í tilkynningu frá bankanum.

„Friðrik sagði þá gagnrýni sem komið hefði fram um umsvif bankanna á fyrirtækjamarkaði að mörgu leyti skiljanlega og að mikilvægt væri að draga úr tortryggni -þar væri gagnsæi lykilatriði. Hann ítrekaði þá stefnu Íslandsbanka að koma þeim rekstarfélögum sem bankinn þarf að yfirtaka sem fyrst í hendur annarra rekstaraðila og benti á að bankinn hefur verið í fararbroddi þegar kemur að gagnsæu söluferli fyrirtækja," segir ennfremur.

Að lokum ræddi Friðrik stöðu fjármálafyrirtækjanna og vitnaði til umræðu um einkavæðingu Landsbanka og Búnaðarbanka. „Hann benti á að saga Íslandsbanka væri allt önnur þar sem hann hefði orðið til úr samruna þriggja einkabanka og eins ríkisbanka, Útvegsbanka Íslands. Þannig hefði Íslandsbanki verið í einkaeigu löngu áður en hugtakið einkavæðing varð til."

Engar breytingar á stjórninni

Engar breytingar urðu á stjórn bankans en í stjórninni sitja Friðrik Sophusson, formaður stjórnar, Árni Tómasson, John E. Mack, Marianne Økland, Martha Eiríksdóttir, Neil Graeme Brown og Raymond J. Quinlan. Allir þessir aðilar hafa víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og rekstri fjármálafyrirtækja.

Birna Einarsdóttir bankastjóri, tók einnig til máls og fór yfir rekstrar- og efnahagsreikning bankans og það helsta í starfi Íslandsbanka á liðnu ári.

„Rekstur bankans gekk vel á árinu þrátt fyrir erfitt efnahagsumhverfi og er bankinn með sterkt eiginfjárhlutfall, eða um 19,8% miðað við 16% lágmarksviðmið FME," segir í tilkynningunni. Hreinar fjármunatekjur bankans námu alls 11,1 milljarða króna og eru þær að mestu leyti tilkomnar vegna gengishagnaðar á fyrri hluta ársins af lánum í erlendri mynt sem síðan er að stærstum hluta gjaldfærður sem virðisrýrnun vegna skertrar greiðslugetu lántaka með tekjur í íslenskum krónum en lán í erlendum myntum.

Heildarstærð efnahagsreiknings bankans þann 31.12.09 var 717 milljarðar króna og hækkaði um 59 milljarða á milli ára. „Heildarútlán til viðskiptavina og fjármálafyrirtækja námu um 577 ma. kr. Innlán námu um 479 ma. kr. en bankinn yfirtók innlán frá Straumi fyrir 45 ma. kr. um mitt ár 2009 gegn skuldabréfi sem tryggt er með eignum Straums og með baktryggingu frá íslenska ríkinu. Hlutfall heildarinnlána af heildarútlánum bankans nam 83% í árslok."

3100 nýta sér höfuðstólslækkanir bílalána

Þá segir einnig að í máli Birnu hafi komið fram að um 1200 viðskiptavinir hafi nýtt sér höfuðstólslækkun verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána. Að sama skapi hafi um 3100 nýtt sér höfuðstólslækkun vegna bílasamninga. „Þá hafa um 800 fyrirtæki nýtt sér höfuðstólslækkun vegna fjármögnunarsamninga hjá Íslandsbanka Fjármögnun. Einnig kom fram að bankinn er að kynna samskonar lausnir fyrir fyrirtæki sem eru með lán í erlendri mynt en tekjuflæði í íslenskum krónum."

Birna sagði stjórn Íslandsbanka hafa samþykkt á fundi sínum fyrr í dag að bankinn ætli að vinna að samkomulagi við stjórnvöld til að koma til móts við þá einstaklinga sem tóku bílalán í erlendri mynt. Nýleg skýrsla Seðlabanka Íslands sýndi að vandinn væri hvað stærstur hjá þessum hópi og að í mörgum tilfellum myndi slíkt samkomulag hafa í för með sér frekari lækkun á höfuðstól þeirra bílalána sem hafa hækkað hvað mest.

Einnig kom fram að innan Íslandsbanka hafi mikið umbótastarf verið unnið í tengslum við regluverk bankans og almenna starfshætti. „Birna sagði að bankinn ætlaði sér að fara vandlega í gegnum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis enda væri mikilvægt að draga réttan lærdóm af niðurstöðu hennar. Hún sagði ljóst að bankarnir hefðu verið of áhættusæknir. Hinsvegar yrði að gæta að því að herða regluverk ekki svo mikið að atvinnulífið myndi líða fyrir það. Bankarnir yrðu að vera tilbúnir að fjármagna góðar hugmyndir sem byggðu á vönduðum áætlunum."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×