Íslandsbanki býður fyrirtækjum höfuðstólslækkun 28. apríl 2010 11:50
Íslandsbanki hefur ákveðið að bjóða fyrirtækjum, sem uppfylla ákveðin skilyrði, að sækja um lækkun á höfuðstól erlendra lána og breyta þeim um leið í lán í íslenskum krónum. Erlendum lánum er breytt í óverðtryggð eða verðtryggð lán í íslenskum krónum miðað við sölugengi Seðlabanka Íslands þann 29. september 2008.Í tilkynningu segir að höfuðstólslækkunin býðst eingöngu þeim fyrirtækjum í viðskiptum við bankann sem eru með stóran hluta tekna sinna í íslenskum krónum. Þar að auki þarf lánið að hafa verið tekið fyrir 15. október 2008 en að öðru leyti eru umsóknir metnar í samræmi við lána- og vinnureglur bankans. Byrjað verður að taka á móti umsóknum á morgun 29. apríl. Til að sækja um höfuðstólslækkun þarf að hafa samband við starfsmenn fyrirtækjaþjónustu í útibúum bankans og á fyrirtækjasviði.Lán með myntskiptinguna 30% í dollurum (USD), 30% í svissneskum frönkum (CHF) og 40% í japönskum jenum (JPY) getur lækkað um allt að 27% miðað við gengi þann 23. apríl 2010. Lækkunin breytist í takt við þróun gengis á hverjum degi sem og eftir myntsamsetningu hvers láns.„Þessi lausn er aðkallandi fyrir fjölmörg fyrirtæki og því ánægjulegt að við getum boðið hana fyrirtækjum í viðskiptum við okkur sem eru skuldsett í erlendri mynt. Það er að mínu mati mikilvægt fyrir fyrirtæki að eiga þess kost að lækka skuldastöðu sína með þessum hætti og styrkja þar með efnahagsreikning sinn. Einnig minnkar þessi lausn gengisáhættu þeirra fyrirtækja sem hana nýta og gerir greiðslubyrði lána jafnari og fyrirsjáanlegri," segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, í tilkynningunni.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Sjá meira