Sjóvá í ríkiseign braut gegn lögum um vátryggingar 26. apríl 2010 20:28
Sjóvá hefur verið gert að greiða Fjármálaeftirlitinu (FME) eina milljón kr. í sátt vegna brots félagsins á lögum um vátryggingastarfsemi. Athygli vekur að brotið var framið þegar Sjóvá var í raun komið í eigu ríkissjóðs. Eins og kunnugt er af fréttum var það tilkynnt þann 24. september í fyrra að FME hefði heimilað yfirfærslu vátryggingastofna Sjóvár Almennra trygginga hf. til SA trygginga hf. að fengnu starfsleyfi þess félags, dags. 21. september 2009. SA tryggingar voru aftur á móti stofnaðar með rúmlega 13 milljarða kr. framlagi frá ríkissjóði. Á vefsíðu FME um málið segir að í síðasta mánuði gerðu Fjármálaeftirlitið og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) með sér sátt vegna brots félagsins gegn 12. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi. Samkvæmt nefndu ákvæði skal vátryggingastarfsemi og hliðarstarfsemi ...rekin í samræmi við góða viðskiptahætti og venjur í vátryggingaviðskiptum og með hag vátryggingataka og vátryggðra fyrir augum. Gróf eða ítrekuð brot gegn ákvæðinu varða stjórnvaldssektum samkvæmt lögunum. Á tímabilinu frá 22. september til 22. október 2009 gátu vátryggingartakar samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi sagt upp vátryggingasamningi sínum vegna flutnings vátryggingastofna Sjóvár Almennra trygginga hf. til SA trygginga hf. (Síðar breytt í Sjóvá- Almennar tryggingar hf.). Fjármálaeftirlitinu bárust upplýsingar um að á nefndu tímabili hefði félagið, í a.m.k. einu tilviki, dregið afgreiðslu uppsagnar í tæpar tvær vikur. Fyrir lá að aðilinn sem sagði upp vátryggingasamningi sínum hefði þegar gert vátryggingasamning við annað vátryggingafélag. Fjármálaeftirlitið taldi drátt á afgreiðslu uppsagnarinnar stríða gegn markmiði... laganna og skýrum rétti vátryggingartaka samkvæmt ákvæðinu. Jafnframt taldi Fjármálaeftirlitið háttsemi félagsins til þess fallna að valda vafa um réttarstöðu vátryggingartaka ef til tjóns hefði komið á tímabilinu. Þar af leiðandi hefði verið brotið gegn góðum viðskiptaháttum og venjum í vátryggingaviðskiptum samkvæmt fyrrgreindum lögum. "Að teknu tilliti til umfangs og alvarleika málsins og með vísan til... laga um vátryggingastarfsemi og reglna ... um heimild Fjármálaeftirlitsins til að ljúka máli með sátt, var það mat Fjármálaeftirlitsins að fjárhæð sáttarinnar væri hæfilega ákveðin kr. 1.000.000," segir á vefsíðunni.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Sjá meira