Fleiri fréttir Frestun S&P kann að hafa lækkað skuldatryggingaálagið Greining Íslandsbanka segir að svo kunni að vera að jákvæð tíðindi á borð við framlengingu frests Standard&Poor´s (S&P) á því að taka ákvörðun um lánshæfiseinkunn Íslands og aukinn stuðning við málstað landsins í Icesave á erlendri grundu hafi einhver áhrif á lækkandi skuldatryggingaálags ríkissjóðs. 4.2.2010 13:59 Lögregla rannsakar á ný sölu SPRON-bréfa Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur nú fjögur mál til rannsóknar tengd sölu stjórnarmanna og tengdra aðila á stofnfjárbréfum í SPRON sumarið 2007 vegna gruns um innherjaviðskipti, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 4.2.2010 13:45 Valitor sendir ný kort til 1.200 korthafa Greiðslukortafyrirtækið Valitor hefur sent ný kort til tólf hundruð korthafa fyrirtækisins til að koma í veg fyrir að eldri kortin þeirra verði misnotuð. 4.2.2010 12:27 Seðlabankastjóri Hollands sakar íslensk stjórnvöld um lygar Nout Wellink aðalbankastjóri Seðlabanka Hollands segir að íslensk stjórnvöld hafi logið að hollenskum stjórnvöldum um fjárhagsstöðu íslensku bankanna árið 2008. Þetta kom fram í máli Wellink þegar hann kom fyrir hollensku þingnefndina sem rannsakar fjármálakreppuna í morgun. 4.2.2010 12:14 Nýskráningum bifreiða heldur áfram að fækka Í janúar síðastliðnum voru nýskráðir 133 bílar hér á landi sem er fækkun upp á 43% frá sama mánuði 2009. Þannig voru nýskráðir 235 bílar í janúar fyrir ári en þess má geta að þá hafði þeim fækkað um 89% frá sama tíma 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Umferðastofan hefur birt um nýskráningar bifreiða. 4.2.2010 11:57 Segir lánamálum Saxbygg snúið á haus Framkvæmdarstjóri Saxbygg, Björn Ingi Sveinsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins um dómsmál sem skiptastjóri félagsins hefur höfðað vegna viðskipta félagsins við félög því tengdu. 4.2.2010 11:52 Þrír erlendir aðilar fá að bjóða áfram í Sjóvá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist 12 óskuldbindandi tilboð í hlutafé Sjóvár Almennra trygginga hf. Í flestum tilvikum er boðið í allt hlutafé félagsins. Þar af voru þrír erlendir aðilar og fá Þeir allir að taka þátt í áframhaldandi söluferli. 4.2.2010 11:33 Yfir 10 milljarðar lagðir inn eftir slökun gjaldeyrishafta Á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því að fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishaftanna var stigið hafa tæplega 5 milljarðar kr. verðir lagðir hér inn á bankareikninga og tæplega 4,5 milljarðar kr. verið varið til að fjárfesta í atvinnurekstri. Rúmir 0,9 milljarðar kr. hafa farið í hlutabréfakaup og rúmir 0,2 milljarðar kr. í fasteignakaup. Samtals hafa því borist tæpir 10,6 milljarðar kr. í formi nýfjárfestinga á þessu tímabili. 4.2.2010 11:28 Kaupþing auglýsir eftir fulltrúum í kröfuhafanefnd Skilanefnd Kaupþings hefur auglýst eftir fulltrúum í nýja kröfuhafanefnd. Á heimsíðu skilanefndar segir að áhugasamir geti haft samband við nefndin fyrir 20. febrúar n.k. 4.2.2010 10:55 Lykla-Pétur fær VB1000 gæðastimpilinn í annað sinn Íslenska vírusvörnin Lykla-Pétur hefur fengið VB100 gæðastimpilinn frá Virus Bulletin. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem vírusvörnin fær þennan gæðastimpil. 4.2.2010 10:37 Össur hagnaðist um 30 milljónir á sölunni Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa selt bréf í SPRON fyrir 62 milljónir árið 2007. Hann hafi hagnast um 30 milljónir króna á sölunni og hafi greitt af því fjármagnstekjuskatt fyrir það ár. 4.2.2010 09:57 Kauphöllin tekur upp tífalt hraðara viðskiptakerfi Kauphöllin mun á mánudaginn innleiða nýtt viðskiptakerfi, INET, sem hefur verið notað á NASDAQ markaðnum síðan 2007. INET er tílfalt hraðara en núverandi viðskiptakerfi (SAXESS) og annar miklu meira magni af viðskiptum. 4.2.2010 09:22 Íslandssjóðir með bestu ávöxtun í ríkisskuldabréfum Ríkisverðbréfasjóðir Íslandssjóða, Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, hafa skilað bestu ávöxtun sambærilegra sjóða yfir nánast öll samanburðartímabil miðað við gengi 30. desember 2009. Þetta kemur fram í óháðum samanburði allra verðbréfasjóða á vefsíðunni www.sjodir.is. 4.2.2010 08:59 Danskir fjárfestar ánægðir með uppgjör Össurar Danir hafa tekið ársuppgjöri Össurrar hf. vel í morgun en hlutir í Össurri hafa hækkað um rétt tæp 10% frá opnun kauphallarinnar. Hlutirnir stóðu í 6,50 dönskum kr. en eru í augnablikinu skráðir á 7.20 dönskum kr. 4.2.2010 08:55 Utanríkisráðherra seldi stofnfjárhluti í SPRON fyrir tugi milljóna Viðskiptablaðið greinir frá þvi í dag að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi selt stofnfjárhluti í SPRON fyrir tugi milljóna kr. áður en bréf í sparisjóðnum fóru á markað árið 2007. 4.2.2010 08:41 Hlutabréf í Toyota hrynja í verði Hlutabréf í Toyota hafa fallið gríðarlega á hlutabréfamarkaðnum í Tokyo og hafa ekki verið lægri í tíu mánuði. Ástæðan er rakin til mikilla umræðna um öryggi Toyota bifreiðanna. 4.2.2010 08:04 Össur hagnaðist um 2,9 milljarða króna í fyrra Stoðtækjafyrirtækið Össur hagnaðist um tæpa 2,9 milljarða króna í fyrra, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Þetta er 670 milljóna króna minni hagnaður en árið áður. 4.2.2010 07:49 Kraftvélar í rekstur á ný Selt úr þrotabúi Kraftvéla. 4.2.2010 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Frestun S&P kann að hafa lækkað skuldatryggingaálagið Greining Íslandsbanka segir að svo kunni að vera að jákvæð tíðindi á borð við framlengingu frests Standard&Poor´s (S&P) á því að taka ákvörðun um lánshæfiseinkunn Íslands og aukinn stuðning við málstað landsins í Icesave á erlendri grundu hafi einhver áhrif á lækkandi skuldatryggingaálags ríkissjóðs. 4.2.2010 13:59
Lögregla rannsakar á ný sölu SPRON-bréfa Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur nú fjögur mál til rannsóknar tengd sölu stjórnarmanna og tengdra aðila á stofnfjárbréfum í SPRON sumarið 2007 vegna gruns um innherjaviðskipti, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 4.2.2010 13:45
Valitor sendir ný kort til 1.200 korthafa Greiðslukortafyrirtækið Valitor hefur sent ný kort til tólf hundruð korthafa fyrirtækisins til að koma í veg fyrir að eldri kortin þeirra verði misnotuð. 4.2.2010 12:27
Seðlabankastjóri Hollands sakar íslensk stjórnvöld um lygar Nout Wellink aðalbankastjóri Seðlabanka Hollands segir að íslensk stjórnvöld hafi logið að hollenskum stjórnvöldum um fjárhagsstöðu íslensku bankanna árið 2008. Þetta kom fram í máli Wellink þegar hann kom fyrir hollensku þingnefndina sem rannsakar fjármálakreppuna í morgun. 4.2.2010 12:14
Nýskráningum bifreiða heldur áfram að fækka Í janúar síðastliðnum voru nýskráðir 133 bílar hér á landi sem er fækkun upp á 43% frá sama mánuði 2009. Þannig voru nýskráðir 235 bílar í janúar fyrir ári en þess má geta að þá hafði þeim fækkað um 89% frá sama tíma 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Umferðastofan hefur birt um nýskráningar bifreiða. 4.2.2010 11:57
Segir lánamálum Saxbygg snúið á haus Framkvæmdarstjóri Saxbygg, Björn Ingi Sveinsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins um dómsmál sem skiptastjóri félagsins hefur höfðað vegna viðskipta félagsins við félög því tengdu. 4.2.2010 11:52
Þrír erlendir aðilar fá að bjóða áfram í Sjóvá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist 12 óskuldbindandi tilboð í hlutafé Sjóvár Almennra trygginga hf. Í flestum tilvikum er boðið í allt hlutafé félagsins. Þar af voru þrír erlendir aðilar og fá Þeir allir að taka þátt í áframhaldandi söluferli. 4.2.2010 11:33
Yfir 10 milljarðar lagðir inn eftir slökun gjaldeyrishafta Á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því að fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishaftanna var stigið hafa tæplega 5 milljarðar kr. verðir lagðir hér inn á bankareikninga og tæplega 4,5 milljarðar kr. verið varið til að fjárfesta í atvinnurekstri. Rúmir 0,9 milljarðar kr. hafa farið í hlutabréfakaup og rúmir 0,2 milljarðar kr. í fasteignakaup. Samtals hafa því borist tæpir 10,6 milljarðar kr. í formi nýfjárfestinga á þessu tímabili. 4.2.2010 11:28
Kaupþing auglýsir eftir fulltrúum í kröfuhafanefnd Skilanefnd Kaupþings hefur auglýst eftir fulltrúum í nýja kröfuhafanefnd. Á heimsíðu skilanefndar segir að áhugasamir geti haft samband við nefndin fyrir 20. febrúar n.k. 4.2.2010 10:55
Lykla-Pétur fær VB1000 gæðastimpilinn í annað sinn Íslenska vírusvörnin Lykla-Pétur hefur fengið VB100 gæðastimpilinn frá Virus Bulletin. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem vírusvörnin fær þennan gæðastimpil. 4.2.2010 10:37
Össur hagnaðist um 30 milljónir á sölunni Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa selt bréf í SPRON fyrir 62 milljónir árið 2007. Hann hafi hagnast um 30 milljónir króna á sölunni og hafi greitt af því fjármagnstekjuskatt fyrir það ár. 4.2.2010 09:57
Kauphöllin tekur upp tífalt hraðara viðskiptakerfi Kauphöllin mun á mánudaginn innleiða nýtt viðskiptakerfi, INET, sem hefur verið notað á NASDAQ markaðnum síðan 2007. INET er tílfalt hraðara en núverandi viðskiptakerfi (SAXESS) og annar miklu meira magni af viðskiptum. 4.2.2010 09:22
Íslandssjóðir með bestu ávöxtun í ríkisskuldabréfum Ríkisverðbréfasjóðir Íslandssjóða, Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, hafa skilað bestu ávöxtun sambærilegra sjóða yfir nánast öll samanburðartímabil miðað við gengi 30. desember 2009. Þetta kemur fram í óháðum samanburði allra verðbréfasjóða á vefsíðunni www.sjodir.is. 4.2.2010 08:59
Danskir fjárfestar ánægðir með uppgjör Össurar Danir hafa tekið ársuppgjöri Össurrar hf. vel í morgun en hlutir í Össurri hafa hækkað um rétt tæp 10% frá opnun kauphallarinnar. Hlutirnir stóðu í 6,50 dönskum kr. en eru í augnablikinu skráðir á 7.20 dönskum kr. 4.2.2010 08:55
Utanríkisráðherra seldi stofnfjárhluti í SPRON fyrir tugi milljóna Viðskiptablaðið greinir frá þvi í dag að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi selt stofnfjárhluti í SPRON fyrir tugi milljóna kr. áður en bréf í sparisjóðnum fóru á markað árið 2007. 4.2.2010 08:41
Hlutabréf í Toyota hrynja í verði Hlutabréf í Toyota hafa fallið gríðarlega á hlutabréfamarkaðnum í Tokyo og hafa ekki verið lægri í tíu mánuði. Ástæðan er rakin til mikilla umræðna um öryggi Toyota bifreiðanna. 4.2.2010 08:04
Össur hagnaðist um 2,9 milljarða króna í fyrra Stoðtækjafyrirtækið Össur hagnaðist um tæpa 2,9 milljarða króna í fyrra, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Þetta er 670 milljóna króna minni hagnaður en árið áður. 4.2.2010 07:49
Eigendur Saxbygg lánuðu sjálfum sér 5,3 milljarða Skiptastjóri þrotabús fjárfestingarfélagsins Saxbygg hefur stefnt fyrri eigendum fyrirtækisins vegna sölu á erlendum fasteignaverkefnum til félaga þeim tengdum, lánveitingum Saxbygg til eigenda og ráðstöfunar eigna til fyrirtækja þeim tengdum. 4.2.2010 00:01
Sólin skín fékk þrjá milljarða frá Baugi án veða Glitnir gerir kröfu upp á 8 milljarða króna í félagið Sólin skín, sem var eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevins Stanfords. Baugur Group lánaði fyrirtækinu þrjá milljarða króna án nokkurra trygginga. Sólin skín er gjaldþrota og fullkomlega eignalaust. 3.2.2010 18:45
Gengi hlutabréfa Færeyjabanka hækkaði mest Gengi hlutabréfa Færeyjabanka hækkaði um 3,4 prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Marels um 1,49 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 2,8 prósent. 3.2.2010 16:52
GAMMA: Heildarvelta óverðtryggðra ríkisbréfa tæpir 6 milljarðar Vísitala Gildi 1 dagur 1 vika 1 mánuður GAMMA:GBI 176,538 0,025% -1,017% 0,298%. GAMMAi:Vtr 180,587 0,032% -1,440% -0,165% .GAMMAxi:Óvtr 157,951 0,008% 0,155% 1,547% 3.2.2010 15:48
TIF telur kröfur banka og sparisjóða í þrotameðferð 0 krónur Tryggingarsjóður innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) telur að kröfur banka og sparisjóða sem eru í þrotameðferð á hendur sjóðnum vera 0 krónur. 3.2.2010 14:23
BM Vallá fær heimild til greiðslustöðvunar Í dag, miðvikudaginn 3. febrúar, var BM VALLÁ hf. veitt heimild til greiðslustöðvunar svo unnt verði að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Undanfarið ár hefur starfsfólkið unnið hörðum höndum að endurskipulagningu félagsins með víðtækum sparnaðar- og hagræðingaraðgerðum í góðri samvinnu við helstu lánadrottna félagsins. 3.2.2010 14:18
Skuldatryggingaálag ríkisins lækkar að nýju Skuldatryggingaálag ríkisins lækkaði í dag frá gærdeginum að því er kemur fram í daglegu fréttayfirliti frá gagnaveitunni CMA. Lækkunin nemur tæpum 4%. 3.2.2010 13:09
Utanlandsferðir Íslendinga aukast að nýju Í janúar fjölgaði utanferðum Íslendinga um 7,4% frá sama tíma í fyrra og er þetta þriðji mánuðurinn í röð sem slík aukning á sér stað. 3.2.2010 12:17
Mun birta samninga við stjórnir bankanna Bankasýsla ríkisins mun gera samninga við stjórnir þeirra fjármálafyrirtækja sem ríkið verður ráðandi hluthafi í um markmið í rekstri og verða þessir samningar birtir innan tólf mánaða frá gerð þeirra. 3.2.2010 12:11
Kauphöllin: Skoða verður uppgjör bankanna fyrrihluta 2008 Forstjóri Kauphallarinnar segir að skoða verði hvort hálfsársuppgjör bankanna 2008 hafi verið rétt og reikningarnir eðlilega sett fram. Einnig þurfi að kanna í þaula hvort yfirlýsingar bankastjóranna nokkrum mánuðum fyrir hrun um gæði eignasafna og sterka lausafjárstöðu standist skoðun. 3.2.2010 11:59
Gistinóttum fækkaði lítillega milli áranna 2008 og 2009 Gistinætur á hótelum árið 2009 voru 1.333.200 og fækkar lítillega frá árinu 2008 þegar gistinætur voru 1.339.900. Á flestum landsvæðum fækkar gistinóttum á milli ára eða standa í stað. Hlutfallslega fækkar gistinóttum mest á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða en fjölgar mest á Norðurlandi og Suðurlandi. 3.2.2010 09:00
Starfsmönnum SÍ óheimilt að þiggja gjafir eða boðsferðir Samkvæmt starfs- og siðareglum Seðlabanka Íslands (SÍ) er starfsmönnum bankans óheimilt að þiggja gjafir og boðsferðir. Eina undantekningin er ef ferðirnar eru taldar hafa upplýsingagildi fyrir bankann en þá greiðir bankinn kostnaðinn við ferðina. 3.2.2010 08:52
Froskur sem sló í gegn Auglýsingaherferð Vodafone þar sem „essasú“-froskurinn var í aðalhlutverki er með þeim íslensku auglýsingaherferðum sem hvað mesta athygli hafa vakið. 3.2.2010 06:00
Konur ragari en karlar við hlutabréfakaup Konur gætu hagnast meira ef þær væru hugaðri í hlutabréfakaupum en raun ber vitni. Þetta sýnir rannsókn sem Greens Analyseinstitut vann fyrir danska viðskiptablaðið Børsen og birtist á laugardag. 3.2.2010 06:00
Frakkar vilja hjálpa til við endurreisnina Frönsk stjórnvöld vilja leggja lóð sitt á vogarskálarnar og styðja Ísland upp úr kreppunni, að sögn Emmanuel Jacques, formanns stjórnar Fransk-íslenska viðskiptaráðsins og viðskiptasendifulltrúa Frakka hér. 3.2.2010 06:00
Auglýst eftir rektor Embætti rektors við Háskóla Íslands hefur verið auglýst laust til umsóknar. 3.2.2010 06:00
Heimsyfirráð CCP Flutningar standa nú yfir hjá netleikjafyrirtækinu CCP úti á Granda. Fyrirtækið hefur fjölgað starfsfólki verulega upp á síðkastið og þurft að dreifa úr sér. CCP var með efstu hæðirnar í Grandagarði 8 en hefur smám saman verið að taka þær neðri yfir. Teiknimyndafyrirtækið CAOZ og tengd fyrirtæki eru um þessar mundir að flytja út, ásamt almannatengslafyrirtækinu APPR, og mun komið undir annað þak. Sjóminjasafnið og heildverslunin Forval eru enn í húsinu og þykir spurning hvenær þau hverfa á braut. Óvíst er hvort húsið dugi CCP, sem tútnar út sem aldrei fyrr. Ef allt þrýtur er aldrei að vita nema fyrirtækið taki yfir varðskipið Óðin, sem liggur við bryggju handan við húsið. 3.2.2010 04:30
Vilja hleypa „vondum“ krónum inn Unnið er að því að opna fjárfestum leið inn í landið með íslenskar krónur sem þeir hafa keypt á aflandsmörkuðum eftir að gjaldeyrishöft voru sett í nóvember 2008. Ræddar hafa verið ýmsar hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að gera þetta mögulegt innan stjórnsýslunnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Horft er til þess að aflandsféð verði nýtt til að fjármagna íslensk fyrirtæki á meðan dyrnar eru lokaðar landinu á erlendum lánamörkuðum. Ekkert mun fast í hendi og vildi því enginn tjá sig um það opinberlega. 3.2.2010 04:00
Misstu stjórn á sér „Mig er farið að klæja í puttana að loka nýjum díl, við höfum ekkert gert á þessu ári," sagði einn viðmælenda Ástu Dísar Óladóttur sem rannsakaði fjárfestingar Íslendinga erlendis í doktorsritgerð sinni sem hún varði við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Ásta Dís komst meðal annars að því í rannsókn sinni að er líða tók á fyrsta áratug 21. aldarinnar töpuðu menn sérhæfni í fjárfestingum og fóru að fjárfesta í alls konar fyrirtækjum. Græðgi hafi jafnvel virst ráða för í sumum tilfellum frekar en úthugsuð fjárfestingarstefna, eins og ofangreind tilvitnun sýnir. 3.2.2010 03:15
Margmenni hjá Marel Rúmlega 130 gestir úr ýmsum áttum komu á kynningu sérfræðinga á nýjustu lausnum Marel í framleiðslusal fyrirtækisins um miðjan mánuðinn. Flestir gestanna voru fulltrúar helstu kjöt- og kjúklingavinnsla landsins auk fulltrúa fiskiðnaðarins. Á meðal helstu nýjunganna var nýjasta gerðin af verðmerkivog til að verðmerkja neytendapakkaðar afurðir og vél undir vörumerkinu Townsend, sem himnudregur kjöt og kjúkling eða roðdregur fisk. Vörumerkið varð hluti af Marel með kaupunum á hollensku iðnsamsteypunni Stork fyrir tveimur árum. Vélar sem þessar hafa aldrei verið sýndar hér áður. - jab 3.2.2010 02:30
Almenn bjartsýni með ferðasumarið Almenn bjartsýni ríkir meðal fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu hér á landi með komandi ferðasumar, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Ferðamenn bóka þó með sífellt styttri fyrirvara svo erfitt er að spá fyrir um sumarið. 3.2.2010 02:00
Hlutafé í 365 aukið um milljarð Ákveðið var á hluthafafundi hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365 miðlum í dag, sem á og rekur fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar, að auka hlutafé fyrirtækisins um milljarð. Gefið verður upp á næstu vikum hvaðan nýtt hlutafé kemur. Jón Ásgeir Jóhannesson er stærsti hluthafi 365 miðla. Hluatfé í fyrirtækinu er í dag rúmir tveir milljarðar en verður rúmir þrír milljarðar með þessu. Ari Edwald forstjóri fyrirtækisins segir tilganginn að styrkja fjárhag fyrirtækisins. 2.2.2010 18:06
Hollendingar hunsuðu hugmyndir um varasjóð Landsbankans Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins vísar ásökunum um lygar á bug en fyrrverandi yfirmaður hollenska fjármálaeftirlitsins og seðlabankans, Arnold Schilder, sagði fyrir þingnefnd þar í landi að trekk í trekk hefðu Íslendingar logið að sér og starfsmönnum sínum. Jónas segir að stungið hafi verið upp á að Landsbankinn setti upp varasjóð í Hollandi en þær hugmyndir hafi aldrei verið afgreiddar af hálfu Hollendinga. 2.2.2010 17:49
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann Að loknu alþjóðlegu útboði á síðasta ári ákvað IFC, sem er deild innan Alþjóðabankans að taka tilboði Capacent í ráðgjöf vegna vörudreifingarfjármögnunar. 2.2.2010 15:22
Icelandair þarf ekki að greiða 130 milljónir í sekt Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. 2.2.2010 15:08
Fjórar hópuppsagnir í janúar, 60 misstu vinnuna Vinnumálastofnun bárust 4 hópuppsagnir í janúarmánuði þar sem sagt var upp 60 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og upplýsinga- og útgáfustarfsemi. 2.2.2010 15:06
Einar Sigurðsson forstjóri Auðhumlu Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar. 2.2.2010 13:49