Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bankakvartanir vegna Íslands streyma inn til ESA Kvartanir evrópskra banka vegna Íslands streyma nú inn til ESA, Eftirlitsstofnunnar EFTA með EES-samningnum. Alls hafa 40 evrópskir bankar sent inn kvartanir til ESA og nemur heildarupphæðin í þessum kvörtunum um 13,5 milljörðum kr. 7.1.2010 09:25
Gistinóttum í nóvember fækkaði um rúm 7% milli ára Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 71.800 en voru 77.500 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi. Fækkunin nemur rúmlega 7%. 7.1.2010 09:03
Fasteignakaup í desember jukust um rúm 34% milli ára Fasteignakaup á höfuðborgarsvæðinu jukustu um rúm 34% í desember s.l. miðað við sama mánuð árið 2008. Þetta kemur fram á vefsíðu Fasteignaskrár Íslands. 7.1.2010 08:06
Álagið rýkur upp Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hefur hækkaði viðstöðulaust frá því Ólafur Ragnar Grímsson forseti neitaði að staðfesta Icesave-lögin á þriðjudag. Álagið stóð í 485,79 punktum síðdegis í gær og hafði þá hækkað nokkuð frá því um hádegið í gær, samkvæmt upplýsingum Credit Market Analysis (CMA). Til samanburðar stóð skuldatryggingarálagið í 411 punktum við lokun markaða á mánudag. 7.1.2010 06:00
Engin krónukaup skýra stöðugleikann Gengi krónunnar hefur haldist svo til óbreytt þrátt fyrir hræringar á fjármálamörkuðum í kjölfar synjunar forseta. 7.1.2010 04:00
Steingrímur: Við erum ekki á leið í greiðsluþrot Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í samtali við Daily Telegraph að hann telji ekki að nokkuð benti til þess að Ísland lendi í greiðsluþroti. Hann segir þó að þolinmæði gagnvart Íslandi sé að renna út. Þetta sagði Steingrímur við blaðið aðspurður um viðbrögð við því að Standard & Poors færði lánshæfismat Íslands í neikvæðar horfur. 6.1.2010 20:12
Ólíklegt að endurskoðun AGS fari fram á tilsettum tíma Hverfandi líkur eru á því að önnur endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fari fram á tilsettum tíma að mati efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir að erlendir fjárfestar haldi að sér höndum vegna þeirrar óvissu sem upp er komin hér á landi. 6.1.2010 19:32
Matsfyrirtækið Moody´s skellir skuldinni á forseta Íslands Matsfyrirtækið Moody's Investors Service sagði í dag að sú ákvörðun forseta Íslands að synja staðfestingar breytingum á „Icesave-samningnum" við stjórnvöld í Hollandi og Bretlandi hafi óvissar afleiðingar fyrir lánstraust landsins, en muni áreiðanlega torvelda öll áform Íslands um að komast út úr fjármála- og efnahagskreppu sinni á næstunni. 6.1.2010 18:42
Viðsnúningur ríkissjóðs til hins verra orðinn 130 milljarðar Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 123 milljarða kr., sem er 130,1 milljörðum kr. lakari útkoma en á sama tímabili í fyrra. Tekjur reyndust 25,1 milljarða kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 91,4 milljarða kr. 6.1.2010 18:31
Standard & Poors setur Íbúðalánasjóð á athugunarlista Matsfyrirtækið Standard & Poors greindi frá því í dag 6. janúar 2010, að það hefði sett Íbúðalánasjóð (ÍLS) á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. 6.1.2010 18:02
Össur hífði upp úrvalsvísitöluna Eina félagið í úrvalsvísitölunni sem hreyfðist í dag var Össur. Hækkaði Össur um 1,6% sem hafði þau áhrif að úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,7%. Vísitalan stendur í 817 stigum eftir daginn. 6.1.2010 16:03
Fjárfestar veðja á hækkandi verðbólgu vegna synjunar Heildarvelta skuldabréfa nam tæpum 20 milljörðum króna í dag GAMMA. Greinilegt er að fjárfestar eru í miklu mæli að reyna að losa sig við óverðtryggð skuldabréf sem þýðir að þeir reikni með að verðbólga hækki verulega á næstunni. Þessa veltu má rekja beint til ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. 6.1.2010 16:03
Skuldabréf Landsbankans hækkuðu um tæp 40% Skuldabréf Landsbankans hækkuðu um tæp 40% í verði í gærdag skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti um ákvörðun sína í Icesave málinu. 6.1.2010 15:54
Áfengissalan í fyrra 1,4% minni en árið 2008 Á árinu 2009 voru seldir rúmlega 20 milljón lítrar af áfengi. Í lítrum var salan 1,4% minni en árið 2008. Sala rauðvíns dróst saman um 2,5% en sala hvítvíns var ein fárra tegunda sem meira var selt af á árinu en salan þar var 5,1% meiri en árið áður. 6.1.2010 14:40
Business.dk: Frá kamikaza fjármálum til bananalýðveldis „Nú hrynur þetta alveg fyrir hið íslenska frændfólk okkar. Frá kamikaza fjármálum til bananalýðsveldis." Þannig hefst grein dálkahöfundarins Jens Chr. Hansen á vefsíðunni business.dk en Hansen er sérfræðingur Berlingske Tidende í efnahagsmálum og handhafi Calving verðlaunana dönsku. 6.1.2010 14:11
Framkvæmdir við gagnaver Verne Holding stöðvaðar Framkvæmdum við gagnaver Verne Holding hafa verið stöðvaðar. Tugir iðnaðarmanna sem hafa verið við störf við mikla uppbyggingu húsnæðis fyrirtækisins fengu bréf um að leggja verkfærunum þangað til annað kæmi í ljós. 6.1.2010 12:51
Yfirlýsingar Breta um eignir Landsbankans eru endaleysa Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptarápherra, sagði í samtali við fréttastofu að yfirlýsingar Breta um að ganga að eftirstandandi eignum Landsbankans séu einhver misskilningur og lagaleg endaleysa. 6.1.2010 12:17
Lækkun lánshæfiseinkunnar S&P mun alvarlegri en Fitch Lækki Standard & Poors (S&P) lánshæfiseinkunn Íslands niður úr fjárfestingarflokki eru það töluvert alvarlegri tíðindi en lækkun á einkunn Fitch Ratings, þar sem fyrrnefnda fyrirtækið metur ekki einungis lánshæfi ríkissjóðs heldur einnig lánshæfi Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs. 6.1.2010 11:27
Gylfi: Ekki hægt að sameina Arion banka og Íslandsbanka Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir að það sé ekki hægt að sameina Arion banka og Íslandsbanka eins og staðan er í dag. Sem kunnugt er af frétt hér á síðunni í morgun segir Finnur Sveinbjörnsson fráfarandi bankastjóri Arion banka að óformlegar viðræður hafi átt sér stað um slíka sameiningu. 6.1.2010 11:18
Gordon Brown hótar diplómatísku stríði við Íslendinga Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands hefur hótað diplómatísku stríði við Íslendinga ef að íslensk stjórnvöld standi ekki við skuldbindingar sínar í Icesave málinu. 6.1.2010 11:03
Gert er ráð fyrir 653 milljóna tapi hjá Reykjanesbæ í ár Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar verði jákvæð um 47 milljónir kr. en samstæðan sem inniheldur framkvæmdir Reykjaneshafnar og félagslegar íbúðir verði neikvæð um 653 milljónir kr. á næsta ári. Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 7.924 milljónir kr. en útgjöld 7.877 milljónir kr. 6.1.2010 10:31
Innflutningur bíla í fyrra aðeins 16,7% af 10 ára meðaltali Innflutningur bíla hrapaði í fyrra og nam aðeins 16,7% af meðaltali síðustu 10 ára þar á undan. Í fyrra voru nýskráningar bíla samtals 2.211 talsins. Á tímabilinu 1999 til 2008 námu nýskráningar hinsvegar rúmlega 12.500 að meðaltali á hverju ári. 6.1.2010 10:10
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs orðið hærra en hjá Dubai Ekkert lát hefur verið á hækkunum á skuldatrygginaálagi ríkissjóðs síðan um hádegisbilið í gærdag. Samkvæmt Credit Market Analysis er álagið komið í rúma 458 punkta og er orðið hærra en álagið hjá Dubai sem stendur í 432 punktum. 6.1.2010 09:53
Vöruskiptin í nóvember hagstæð um 6,2 milljarða Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,3 milljarða króna og inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 6,2 milljarða króna. Í nóvember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 2,6 milljarða króna á sama gengi. 6.1.2010 09:32
75 fyrirtæki á hausinn í nóvember Í nóvember 2009 voru 75 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 73 fyrirtæki í nóvember 2008, sem jafngildir tæplega 3% fjölgun milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 26 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 11 gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun og fyrirtækjum sem sinna viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. 6.1.2010 09:24
Norðmenn veita Íslandi ekki lán fyrr en eftir þjóðaratkvæði Sigbjörn Johnsen fjármálaráðherra Noregs segir að norsk stjórnvöld muni ekki taka afstöðu til þess hvort þau láni Íslandi í tengslum við áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en eftir að þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave er lokið. Þar með er ljóst að önnur endurskoðun á áætlun AGS sem átti að fara fram í lok þessa mánaðar mun frestast. 6.1.2010 07:57
Greining: Frekari stýrivaxtalækkanir eru úr sögunni í bili Greining Arion Banka segir að afleiðingar af ákvörðun forseta Íslands í Icesavemálinu verði þær að vonir um stýrivaxtalækkanir hljóta að vera úr sögunni í bili. 6.1.2010 07:03
Standard & Poors ætlar líka með lánshæfismatið í ruslflokk Matsfyrirtækið Standard & Poors hefur aftur sett lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á neikvæðar horfur og segir jafnframt að töfin sem verður á Icesave málinu muni valda því að einkunnin verði lækkuð um einn til tvo flokka innan mánaðar. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. 6.1.2010 06:51
Venjulegt segir Seðlabankinn „Ég hef ekki orðið var við neitt sérstakt,“ sagði Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabankans, spurður í gær um gjaldeyrisviðskipti eftir að forseti Íslands kynnti synjun sína í Icesave-málinu. 6.1.2010 05:30
Vísaði gróusögum á bug um áramót Saga Capital hefur ekki fellt niður skuldir starfsmanna sinna líkt og Kaupþing og þá hafa engir fjármunir farið frá ríkinu til Saga Capital. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, forstjóra bankans, til hluthafa á gamlársdag. 6.1.2010 05:00
Decode vísað burt af Nasdaq Decode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, hefur verið tekið úr skráningu á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í New York í Bandaríkjunum. Þetta gildir frá og með deginum í dag. Eins og kunnugt er óskaði Decode eftir greiðslustöðvun seint á síðasta ári, erlenda starfsemin var farin í þrot og tilboða leitað í reksturinn á innlendri starfsemi fyrirtækisins. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Decode er mögulegt að viðskipti verði með hlutabréf félagsins á svokölluðum „Pink sheet“ millimarkaði vestanhafs. Það er hins vegar sagt óvíst þar sem ekki sé gefið að einhver miðlari vilji skrá bréfin. 6.1.2010 04:45
Ísland í ruslflokk og í einangrun Lánshæfiseinkunn Íslands er komin í ruslflokk samkvæmt mati sem breska matsfyrirtækið Fitch Ratings gaf út síðdegis í gær í kjölfar þess að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði að staðfesta lög frá Alþingi vegna Icesave-saminga við Breta og Hollendinga. 6.1.2010 04:30
Nýr við stýrið hjá Hagfræðistofnun „Þetta verður með hefðbundnu sniði, ámóta og það hefur verið undanfarin ár,“ segir Sveinn Agnarsson hagfræðingur sem um áramótin tók við starfi forstöðumanns Hagfræðistofnunar háskólans af Gunnari Haraldssyni. Ekki var vatnið sótt langt yfir lækinn en Sveinn hefur unnið sem fræðimaður hjá stofnuninni í áratug. 6.1.2010 04:30
Fækkar um 17% milli ára Farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 16,7 prósent milli síðasta árs og ársins 2008. Alls fóru tæplega 1,7 milljónir ferðamanna um völlinn á nýliðnu ári, um 4.500 á dag, samanborið við um 5.500 árið áður, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. 6.1.2010 04:15
Fyrirtækin verða til á servíettum Hugmyndasamkeppni Gulleggsins, sem frumkvöðlasetrið Innovit heldur í samstarfi við fjóra háskóla, er í fullum gangi en lokafrestur til að taka þátt í henni og skila inn viðskiptahugmyndum rennur út 20. janúar næstkomandi. Keppnin hefur verið haldin í tvö ár. Í fyrra bárust 120 hugmyndir í keppnina og urðu fimmtíu að fullmótuðum viðskiptahugmyndum. Á meðal fyrirtækja sem litið hafa dagsins ljós úr henni eru sprotafyrirtækið Clara, Eff², sem þróar tækni og búnað til að greina myndefni sem dreift er ólöglega um Netið, og fjármálafyrirtækið Meniga. Alls hafa tuttugu fyrirtæki og hundrað störf orðið til í tengslum við keppnina. 6.1.2010 04:00
Síðasta haldreipið í myrkrinu Sjaldan ef nokkru sinni hefur verið farsælt að lenda í ruslbréfaflokki alþjóðlegu matsfyrirtækjanna. Þó er glæta í myrkrinu sem skall á í gær í hugum sumra eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti synjaði staðfestingu á lögum um ríkisábyrgð á Icesave-samningunum og setti málið í hendur þjóðarinnar. Glætan felst nefnilega í tækifærunum sem felast í kaupum á skuldabréfum í ruslbréfaflokki. Þetta er vissulega gífurleg áhætta en líkt og matsfyrirtækið Standard & Poor‘s benti á í gær hefur ávöxtun fjárfesta sem keyptu bandarísk skuldabréf með einkunnina CCC eða minna skilað 124 prósenta ávöxtun frá í mars í fyrra. 6.1.2010 04:00
AGS: Icesave ekki skilyrði fyrir áætlun okkar en... „Samkomulag í Icesave málinu er ekki skilyrði fyrir áæltun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) svo lengi sem áætlunin er að fullu fjármögnuð." 5.1.2010 21:22
Ríkissjóður Íslands kominn í ruslflokk Fitch lánshæfismatsfyrirtækið hefur lækkað lánshæfismat Íslands niður í ruslflokk í kjölfar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja Icesave lögunum staðfestingar. Þetta kemur fram á fjármálavefnum Marketwathc. 5.1.2010 17:45
Velta skuldabréfa nam 15,83 milljörðum í dag Heildarvelta skuldabréfa á markaði í dag nam 15,83 milljörðum króna. Þar af var velta með verðtryggð íbúðabréf 2,01 milljarður og velta með óverðtryggð ríkisbréf nam 13,82 milljarða króna. 5.1.2010 17:22
FT: Ólíklegt að Bretar semji um betri kjör á Icesave skuldum Viðskiptablaðið Financial Times segir að það sé lítill áhugi á því innan bresku stjórnarinnar að semja við Íslendinga um betri kjör á Icesave skuldinni. Kjörin séu þegar nægilega örlát í garð Íslendinga og gefi þjóðinni sjö ára frið til að endurbyggja efnahag sinn. 5.1.2010 15:14
Tilkynnt um 5 hópuppsagnir í desember Vinnumálastofnun bárust 5 hópuppsagnir í desembermánuði þar sem sagt var upp 167 manns. Um er að ræða fyrirtæki í fiskvinnslu, iðnaði, verslun, flutningastarfsemi og upplýsinga- og útgáfustarfsemi. 5.1.2010 14:14
Skuldatrygginarálag ríkissjóðs hækkaði strax Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hækkaði strax eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti ákvörðun sína í Icesave málinu. Álagið stóð í 411 punktum við lok markaða í gærdag en er nú komið í rúma 428 punkta og er á uppleið. 5.1.2010 12:58
Flugferðir til Evrópuborga á 8.900 kr. aðra leið Hægt er að komast til Berlínar, Kaupmannahafnar, London Gatwick, London Stansted og Varsjár fyrir 8.900 krónur með sköttum og gjöldum aðra leiðina. 5.1.2010 12:19
Veruleg óvissa ríkir um lánshæfismat ríkissjóðs Eftir yfirlýsingu forsetans um að undirrita ekki lögin um Icesave-frumvarpið er ljóst að veruleg óvissa ríkir um lánshæfismat ríkissjóðs. 5.1.2010 12:12
Greining: Líklegra að lánshæfismat ríkissjóðs lækki Greining Íslandsbanka greinir frá fyrstu viðbrögðum fjármálamarkaðarins við ákvörðun forsetans í Icesave málinu. Þar kemur m.a. fram að nú sé líklegra en ella að lánshæfismat ríkissjóðs lækki. 5.1.2010 12:09