Standard & Poors ætlar líka með lánshæfismatið í ruslflokk 6. janúar 2010 06:51
Matsfyrirtækið Standard & Poors hefur aftur sett lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á neikvæðar horfur og segir jafnframt að töfin sem verður á Icesave málinu muni valda því að einkunnin verði lækkuð um einn til tvo flokka innan mánaðar. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Samkvæmt þessu mun lánshæfiseinkunnin hjá Standard & Poors fyrir Ísland fara niður í ruslflokk. Eins og kunnugt er af fréttum setti matsfyrirtækið Fitch Ratings lánshæfismat Íslands í ruslflokk í gærdag. Lánshæfiseinkunnir Standard & Poors fyrir Ísland eru BBB-/A-3 í erlendri mynt og BBB+/A-2 í innlendri mynt, á athugunarlista með neikvæðum horfum. Í rökstuðningi matsfyrirtækisins segir að það að lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands hafi verið sett á athugunarlista gefur til kynna líkur á lækkun lánshæfismats ef stjórnmálaleg óvissa fer vaxandi og felur í sér að áfram reyni á greiðslugetu gagnvart útlöndum í kjölfar þess að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, beitti neitunarvaldi gagnvart „Icesave-lögunum" sem Alþingi samþykkti 30. desember 2009. Sú löggjöf sem neitað var staðfestingar hefði tryggt ríkisábyrgð á láni frá hollenskum og breskum stjórnvöldum til íslenska innstæðutryggingasjóðsins. Með því láni hefði á hinn bóginn hollenskum og breskum stjórnvöldum verið endurgreitt fyrir bætur þeirra til innstæðueigenda í Icesave, sem var útibú hins fallna Landsbanka í Hollandi og Bretlandi. Lausn Icesave-málsins er forsenda fyrir tvíhliða viðbótarfjármögnun frá Norðurlöndum sem er hluti af samkomulagi Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Vegna þess að málinu var synjað staðfestingar væntum við þess að útgreiðslur á þeim 2,3 milljörðum Bandaríkjadala sem eftir eru af samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frestist og að forsendur áætlunarinnar kunni að þarfnast endurskoðunar, hugsanlega með því m.a. að hækka markmið um frumjöfnuð ríkissjóðs. Fjármögnunin er lykillinn að því að auka við gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans (nú u.þ.b. 2,5 milljarðar evra) og að mögulegt verði með tímanum að afnema þau gjaldeyrishöft sem sett voru síðla í nóvember 2008. Í kjölfar synjunarinnar geta stjórnvöld nú valið um það að vísa löggjöfinni í þjóðaratkvæðagreiðslu, en þá gerum við ráð fyrir að hún verði felld, eða að draga löggjöfina til baka. Í hvoru tilfelli um sig virðist ólíklegt að deilan verði leyst á næstunni.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira