Fleiri fréttir

Hagnaður af Hörpu

Á árinu 2013 komu 1,3 milljónir gesta í tónlistar- og ráðstefnuhúsið.

Atvinnuleysi 6,1 prósent

Að jafnaði voru 183.200 manns á vinnumarkaði og af þeim voru 172 þúsund starfandi. Þá voru 11.200 án vinnu og í atvinnuleit.

Vodafone Group sýnir verkefni á Glerártorgi áhuga

Ný verslun Vodafone og Tes og kaffis hefur vakið áhuga breska fjarskiptarisans Vodafone Group. Hugmyndin kviknaði í febrúar. Fjarskiptafyrirtækið er nú að breyta öllum 2.500 verslunum sínum.

Hagnaður Össurar nær tvöfaldast

Sala jókst um 24 prósent milli fyrstu ársfjórðunga áranna 2013 og 2014 hjá Össuri og hagnaður var yfir 95 prósent meiri en í fyrra.

Bréfin lækkuðu í kjölfar uppgjörsfregna

Marel tapaði sem svarar 295 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi og hefur sagt upp 75 manns. Bréf félagsins lækkuðu á markaði í gær í kjölfar fregnanna.

Útlánabóla í Kína sögð ógna hagvexti í heiminum

Þrjátíu hagfræðingar sem AP spurði út í þróun efnahagsmála í Kína telja að smitáhrif gætu orðið af minnkandi hagvexti þar. Aðgerða sé þörf hjá Kínastjórn. AGS varaði nýverið við auknum veikleikum í fjármálakerfi Kína.

Marel sagði upp 75 starfsmönnum

Marel hefur birt uppgjör fyrir fyrsta fjórðung ársins 2014 en þar kemur fram að tekjur fyrirtækisins á tímabilinu námu 154,8 milljónum evra.

FÍ kaupir gamla DV-húsið í Þverholti

FÍ fasteignafélag hefur fest kaup á gamla DV húsinu við Þverholt í Reykjavík. Líklegt kaupverð er á milli sjö og átta hundruð milljónir króna. Listaháskóli Íslands er með húsið á langtímaleigu. Leigutekjur FÍ og EBITDA eykst um 40% við kaupin.

Gjaldþrot fimmtungi færri í mars

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði (apríl 2013 til mars 2014) fjölgaði um níu prósent, borið saman við mánuðina tólf þar á undan.

Krefja Kópavogsbæ um 75 milljarða

Erfingjar Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúenda á Vatnsenda, hafa stefnt Kópavogsbæ vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007.

„Við vorum bara að sinna því sem okkur bar“

Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans, sagðist ekkert hafa gert af sér í Imon málinu í dag, honum hafi verið óheimilt að hafa upplýsingar um fjármögnun lánaviðskipta.

Sigurjón fór mikinn í ræðu sinni í héraðsdómi

Aðalmeðferð hófst í Imon málinu í dag. Meðal ákærðu er Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans sem hélt þrumuræðu þar sem hann kannaðist ekkert við þær sakir sem hann er borinn.

Handfylli sölu út um landið en 100 á höfuðborgarsvæðinu

Þinglýstir kaupsamningar um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu 18. til og með 24. apríl voru 100 talsins. Fram kemur á vef Þjóðskrár að þar af hafi 77 verið um eignir í fjölbýli, 19 um sérbýli og fjórir samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

24,9% heimila í leiguhúsnæði

Alls 24,9 prósent heimila voru í leiguhúsnæði á almennum markaði árið 2013 samanborið við 15,4 prósent heimila árið 2007.

Svipmynd Markaðarins: Styður Njarðvíkurliðin og Barcelona

Margrét Sanders, formaður SVÞ og framkvæmdastjóri hjá Deloitte, hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin fimmtán ár. Hún lærði íþróttafræði, lauk MBA-námi frá WCU í Norður-Karólínu og elskar spænska fótboltann.

Sonurinn enn að jafna sig á handtöku föður

Fyrrverandi yfirmaður verðbréfamiðlunar Landsbankans segir son sinn enn vera að jafna sig á því þegar hann horfði á föður sinn handtekinn í harkalegum aðgerðum sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á Imon-málinu. Hann telur hörku í húsleit og handtöku algjörlega þarflausa enda hafi þetta verið tveimur og hálfu ári eftir að viðskiptin sem ákært var fyrir áttu sér stað.

Sjá næstu 50 fréttir